100 daga hátíð

Heiða Viðarsdóttir • 4. febrúar 2026

1. bekkur heldur 100 daga hátíð

Í Grundaskóla er hefð fyrir því, í 1. bekk, að halda 100- daga hátíð. Þá er verið að fagna þeim áfanga að nemendur hafa verið 100 daga í skólanum.


Að þessu sinni var aðeins gert meira úr hátíðinni og byrjað nokkrum dögum fyrr á að gera teikningu að 100 skrímsli, skrifa sögu: þegar ég verð 100 ára og unnið með 100 töluna/töfluna. Síðan var skreytt með veifum, skrifað á plaköt og teiknaðar blöðrur með tölunni 100 og o.fl.


Á sjálfann hátíðsdaginn mættu allir í nátt-/kósýfötum og með lúrudýrin sín, bjuggu til kórónur og unnu á ýmsum stöðvum með töluna 100. 


 Í útiverunni voru gerðar 100 hreyfiæfingar sem allir fóru létt með. Síðan var gengið í skrúðgöngu um skólann og  sungið um 100 daga hátíðina. Loks var endað í salnum þar sem var dansað, fengið popp og tekin mynd af nemendum búa til töluna 100. 


Líf og fjör á 100. deginum eins og sjá má á myndunum. 

Eftir Heiða Viðarsdóttir 4. febrúar 2026
Spennandi úrklippur í anda Matisse
Eftir Heiða Viðarsdóttir 2. febrúar 2026
Nemendur í 10. bekk lærðu að útbúa vorrúllur frá grunni
Eftir Heiða Viðarsdóttir 29. janúar 2026
Að mæla horn
Eftir Heiða Viðarsdóttir 27. janúar 2026
Löggurnar spiluðu fótbolta með krökkunum
Eftir Heiða Viðarsdóttir 27. janúar 2026
Nemendur uppgötva stærðfræðina meira sjálf
Eftir Heiða Viðarsdóttir 23. janúar 2026
5. bekkur endurvinnur kertaafganga
Eftir Heiða Viðarsdóttir 12. janúar 2026
Verkefni sem unnið var í 10. bekk
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 19. desember 2025
Starfsfólk Grundaskóla óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Kennsla hefst að nýju samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 6. Janúar. Jólakveðja Starfsfólk Grundaskóla
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 19. desember 2025
Það er alltaf nóg um að vera hjá okkur í skógræktinni í útináminu. Í þessari ferð vorum við að vinna með tugina í stærðfræðinni. Bjuggum til píluspjald og reyndum að fá sem flest stig.  Einning vorum við að leika okkur með garn og trjágreinar. Börnin njóta sín vel í þessari náttúruparadís sem skógræktin okkar er. Í nóvember var markaðurinn "Breytum krónum í gull" Föstudaginn 12.desember lögðum við af stað í óvissuferð með kakó, smákökur eða sparinesti. í myrkrinu. Nemendur voru vel útbúnir með höfuðljós og vasaljós. Áningastaður okkar var fyrir utan Stúkuhúsið við Byggðasafnið. Þar settumst við niður og fengum okkur sparinesti og hlustuðum á jólasögu og áttum notalega stund í köldu vetrarveðri. Við óskum ykkar gleðilegra jóla og njótið samverunnar um hátíðarnar. Jólakveðja frá 2.bekk
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 18. desember 2025
Rauður dagur í Grundaskóla, samsöngur og jólamatur.
Show More