Stefnan sett – heildstætt verkefni í 10. bekk

Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 6. febrúar 2026

Nemendur í 10. bekk eru nú að ljúka heildstæðu verkefni sem ber heitið Stefnan sett. Verkefnið endar með því að nemendur mæta í sviðsett atvinnuviðtal innan skólans. Námsgreinar eru samþættar og lögð er áhersla á þætti á borð við styrkleika, sjálfsþekkingu og áhugasvið nemenda.


Í verkefninu læra nemendur jafnframt að afla sér upplýsinga um ólíkar námsleiðir og vinnumarkaðinn. Þeir vinna meðal annars styrkleika- og áhugakannanir, setja saman ferilskrá og kynningarbréf og kynnast ráðningarferli frá upphafi til enda. Í öllu ferlinu er leitast við að verkefnin endurspegli raunverulegar aðstæður eins vel og mögulegt er.


Öflugt samstarf er við foreldra nemenda í verkefninu. Foreldrar hafa veitt góðan stuðning við gerð ferilskráa og undirbúning fyrir atvinnuviðtöl. Auk þess hélt fjöldi foreldra og utanaðkomandi aðilar starfskynningar fyrir allan árganginn, sem vakti mikla lukku meðal nemenda og starfsfólks.



Nemendur hafa lýst verkefninu sem skemmtilegu og lærdómsríku og segja auðvelt að sjá tilgang þess og tengingu við framtíðina.

Eftir Heiða Viðarsdóttir 4. febrúar 2026
1. bekkur heldur 100 daga hátíð
Eftir Heiða Viðarsdóttir 4. febrúar 2026
Spennandi úrklippur í anda Matisse
Eftir Heiða Viðarsdóttir 2. febrúar 2026
Nemendur í 10. bekk lærðu að útbúa vorrúllur frá grunni
Eftir Heiða Viðarsdóttir 29. janúar 2026
Að mæla horn
Eftir Heiða Viðarsdóttir 27. janúar 2026
Löggurnar spiluðu fótbolta með krökkunum
Eftir Heiða Viðarsdóttir 27. janúar 2026
Nemendur uppgötva stærðfræðina meira sjálf
Eftir Heiða Viðarsdóttir 23. janúar 2026
5. bekkur endurvinnur kertaafganga
Eftir Heiða Viðarsdóttir 12. janúar 2026
Verkefni sem unnið var í 10. bekk
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 19. desember 2025
Starfsfólk Grundaskóla óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Kennsla hefst að nýju samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 6. Janúar. Jólakveðja Starfsfólk Grundaskóla
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 19. desember 2025
Það er alltaf nóg um að vera hjá okkur í skógræktinni í útináminu. Í þessari ferð vorum við að vinna með tugina í stærðfræðinni. Bjuggum til píluspjald og reyndum að fá sem flest stig.  Einning vorum við að leika okkur með garn og trjágreinar. Börnin njóta sín vel í þessari náttúruparadís sem skógræktin okkar er. Í nóvember var markaðurinn "Breytum krónum í gull" Föstudaginn 12.desember lögðum við af stað í óvissuferð með kakó, smákökur eða sparinesti. í myrkrinu. Nemendur voru vel útbúnir með höfuðljós og vasaljós. Áningastaður okkar var fyrir utan Stúkuhúsið við Byggðasafnið. Þar settumst við niður og fengum okkur sparinesti og hlustuðum á jólasögu og áttum notalega stund í köldu vetrarveðri. Við óskum ykkar gleðilegra jóla og njótið samverunnar um hátíðarnar. Jólakveðja frá 2.bekk
Show More