Opni skólinn - Frístundanámskeið
Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 4. mars 2026

Zentangle - Fyrir foreldra og börn frá 5. - 10.bekk.
Grundaskóli býður nú foreldrum og nemendum tengt áherslum Opna skólans upp á spennandi námskeið sem við köllum Zentangle listasmiðju. Listasmiðju þar sem foreldrar og börn vinna saman að því að skapa myndverk eftir Zentangle teikniaðferðinni.
Markmiðið er að kynnast betur, eiga skemmtilega stund saman, efla gagnrýna hugsun og lausnamiðaða nálgun. Zentangle teikniaðferðin gengur út á "eitt strik í einu" og engin mistök.
Hægt að fara inn á vefsíðuna zentangle.com og skoða hugmyndafræðina, ólík mynstur og margt fleira.
Tímasetning eru tveir mánudagar 9. og 16. mars frá kl. 17 - 19
Hlekkur hefur verið sendur í pósti til foreldra.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
16. október 2026
Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá á Vökudögum Það verður sannkölluð menningarveisla á Vökudögum sem fram fara dagana 22. október til 1. nóvember. Fjölbreytt dagskrá verður í boði fyrir alla aldurshópa og ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Á meðal þess sem boðið verður upp á eru fjölbreyttar listasýningar víðs vegar um bæinn, tónleikar, kvikmyndasýningar og skemmtilegar smiðjur fyrir börn og fjölskyldur þeirra, svo fátt eitt sé nefnt. Við vekjum sérstaka athygli á fimm frístundatilboðum fyrir nemendur og foreldra tengt Opna skólanum. Sjá: https://www.vokudagar.is/vidburdir/opni-skolinn-list--og-verkgreinar-grundaskoli Vökudagar eru kjörið tækifæri fyrir fjölskyldur til að njóta samveru, upplifa menningu og listir og taka þátt í fjölbreyttum viðburðum. Heimasíða Vökudaga Áhugafólk um hátíðina er hvatt til að kynna sér dagskrána á heimasíðu Vökudaga, www.vokudagar.is , þar sem finna má upplýsingar um þá fjölmörgu viðburði sem verða í boði. Foreldrar og forráðamenn eru sérstaklega hvattir til að skoða dagskrána með börnum sínum og finna saman eitthvað skemmtilegt til að taka þátt í. Einnig má fylgjast með fréttum og viðburðum á Facebook-síðu Vökudaga . Takið dagana frá og njótið fjölbreyttrar menningar- og fjölskyldudagskrár á Vökudögum!

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
14. október 2026
Nú eru Förustafirnir farnir að stækka það mikið að óhætt er að taka þá úr búrinu. Þeir vekja mikla lukku hjá mörgum nemendum sem vilja ólmir taka þá til sín og leyfa þeim að vera með sér á meðan þeir eru í kennslustund. Förustafirnir eru farnir að fá hin ýmsu nöfn á meðan þeir eru að læra með nemendum. Það er gaman að fylgjast með áhuga nemenda á þessu saklausu dýrum í náttúrfræðistofunni.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
12. október 2026
Nokkrir áhugasamir lestrarhestar í 5. bekk taka þátt í bókaklúbbi sem hittist einu sinni í viku. Þar hafa þær kynnt uppáhaldsbækur sínar fyrir hvor annarri, lesið upp úr bókum og eru nú byrjaðar í samlestri. Um þessar mundir er hópurinn að lesa bókina Silfurlykilinn eftir Sigrúnu Eldjárn og hafa skapast líflegar og skemmtilegar umræður um söguna. Bókaklúbburinn er hluti af verkefninu Opni skólinn.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
5. október 2026
Grundaskóli tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 Grundaskóli hefur verið tilnefndur til íslensku menntaverðlaunanna í flokknum; Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur . Alls eru þrjár menntastofnanir tilnefndar í þessum flokki. Tilkynnt verður um hver hlýtur verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í byrjun nóvember. Nánar má lesa um íslensku menntaverðlaunin, flokkana sem veitt eru verðlaun í og tilnefningar í hverjum flokki hér: https://skolathroun.is/tilnefningar-til-islensku-menntaverdlaunanna-2026-2/ Þess má geta að Grundaskóli hlaut fyrst allra skóla Íslensku menntaverðlaunin árið 2005.






