Námskeiðabraut - Örnámskeið vor 2026
Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 10. desember 2025
Í unglingadeild Grundaskóla er námskeiðabraut - Örnámskeið, fyrir 8.-10.bekk
Það er á fimmtudögum.
Nemendur fá kynningar og tækifæri til að velja sér af eftirfarandi auglýsingum fyrir þessar þrjár lotur sem eru fyrir sumarfríi.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
19. mars 2026
Miðvikudaginn 18. mars fór fram lokahátíð upplestrarkeppni grunnskólanna á Akranesi við hátíðlega athöfn í Tónbergi. Þar sýndu tólf öflugir fulltrúar úr 7. bekk Grundaskóla og Brekkubæjarskóla færni sína í vönduðum upplestri og skýrri framsögn. Undirbúningur nemenda hófst formlega á degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember síðastliðinn, og hafa nemendur lagt mikið á sig síðan þá við að æfa framburð og túlkun. Eftir útsláttarkeppnir innan skólanna stóðu tólf nemendur eftir sem kepptu til úrslita, sex frá hvorum skóla. Hátíðin hófst á því að Aldís Ylva Heimisdóttir flutti ávarp og auk þess voru veittar viðurkenningar fyrir teikningar sem prýddu boðskort keppninnar í ár. Dómarar kvöldsins lýstu því yfir að keppnin hefði verið mjög hörð og ljóst að nemendur hefðu lagt mikla vinnu í sína frammistöðu. Allir þátttakendur stóðu sig með stakri prýði og voru skólum sínum til mikils sóma. Eftir vandasama ákvörðun dómnefndar voru sigurvegarar kvöldsins kynntir, en það voru þau Laufey Svanbergsdóttir úr Grundaskóla og Gunnar Kristian Arnarson Wessman úr Brekkubæjarskóla sem hlutskörpust urðu. Við í Grundaskóla erum afar stolt af okkar fulltrúum og öllum þeim nemendum sem tóku þátt í ferlinu. Það er dýrmætt að sjá unga fólkið okkar rækta íslenska tungu af svo miklum metnaði og áhuga. Við óskum sigurvegurunum og öllum keppendum innilega til hamingju með glæsilegan árangur! Fleiri myndir frá keppninni má sjá hér https://photos.app.goo.gl/FnoDSu2xj8S24xgb6

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
16. mars 2026
Í aðalvali er meðal annars boðið upp á leirnámskeið. Hluti af námskeiðinu var að fá að prufa að renna leir á rennibekk, sem marga dreymir um að fá að reyna sig við. Anna Leif kennari fékk Íris Jönu, dóttur sína, til liðs við sig, tvo laugardaga í röð undir merkjum Opna skólans. Saman leyfðu þær nemendum að spreyta sig við þetta handverk. Áhugi og einbeitng sjást vel á meðfylgjandi myndum.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
13. mars 2026
Nemendur í 2. bekk unnu á dögunum vinaverkefni þvert á árgang eða með bekkjarfélugum. 2-3 nemendur unnu saman, teiknuðu mynd af sér og skrifuðu vinasögu. Skemmtileg vinna sem reyndi á samvinnu, skipulagningu, hjálpsemi, þolinmæði og hugmyndaflug. Nemendur þurftu að koma sér saman um hverning myndin ætti að vera og semja söguna saman. Sumir eru góðir í að semja sögu, aðrir eru góðir í að skrifa en öll getum við eitthvað og með því að vinna saman getum við lært hvert af öðru. Saman erum við sterkari. 😊

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
11. mars 2026
Þessa dagana stendur yfir skemmtilegt Zentangle teikni og listanámskeið fyrir börn og foreldra tengt starfsemi opna skólans í Grundaskóla. Námskeiðunum er ætlað að gefa foreldrum og börnum tækifæri til að mæta og vinna einhver skemmtileg verkefni saman og læra eitthvað nýtt og spennandi. Í vetur höfum við boðið upp á nokkur námskeið um hin ýmsu viðfagsefni og hefur þátttaka verið mjög góð til þessa. Á næstu dögum verða ný tilboð send út og hvetjum við foreldra til að stökkva á þessi frábæru tilboð og gera eitthvað skemmtilegt og uppbyggjandi með börnunum sínum.

































