Lestrarkeppni milli árganga
Heiða Viðarsdóttir • 30. október 2025
 

Lestarkeppni sem lýkur 11. nóvember
Lestrarkeppni skólans í 1. - 7. bekk, hófst þriðjudaginn 28. október og lýkur þriðjudaginn 11. nóvember.
Markmiðið er að hvetja nemendur til aukins heimalesturs.
Keppnin fer vel af stað og sem dæmi eru krakkarnir í 6. bekk mjög metnaðarfull og ætla sér að vinna keppnina.
Áfram krakkar verum öll dugleg að lesa.

 Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 
 • 
 27. október 2025 
 
 Skólakór Grundaskóla kom fram á Þjóðahátíð sem haldin var síðastliðinn sunnudag í íþróttahúsinu á Vesturgötu við mikinn fögnuð áheyrenda.                                                                        Stjórnandi er Lilja Margrét Riedel.                                                                        Margrét Iðunn Benediktsdóttir lék á fiðlu.                                                            Tónleikarnir verða endurteknir seinna á önninni svo fleiri fái að njóta.
 

 Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 
 • 
 17. október 2025 
 
 Kæru foreldrar/forráðamenn                                                                             Næstkomandi mánudag 20. og þriðjudag 21. október er vetrarleyfi                                                              í Grundaskóla og fellur kennsla niður þessa tvo daga. Skólastarf hefst að nýju samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 22. október.                                                                             Samvera foreldra og barna er frábær forvörn og nú er einstakt tækifæri til að efla tengslin enn frekar. Það er alltaf hægt að njóta samverustunda með fjölskyldunni og hér má finna hugmyndir af margvíslegri afþreyingu sem börn og fjölskyldur geta notið saman heima við og utan dyra.                                                                             Við óskum fjölskyldum alls hins besta í vetrarleyfinu.                                                                             Kær kveðja,                       Starfsfólk Grundaskóla
 







