Kveðja frá 10.bekk

Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 3. júní 2026

Starfsfólk Grundaskóla þakkar foreldrum og nemendum í árgangi 2010 innilega fyrir sig.


Buðu þau öllu starfsfólki skólans upp á köku í þakklætisskyni fyrir öll þau mikilvægu hlutverk í skólagöngu barna þeirra.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 1. september 2026
En bætist í fjölbreytileika Grundaskóla og hafa nemendur skólans gaman af. Þessir nýnemar hafa vakið mikla athygli og margir bíða spenntir eftir að geta tekið þá úr búrinu til að skoða betur, en nú eru þeir að stækka og þroskast. Það verður gaman að sjá hvernig þessi vinna þróast í vetur. Förustafir eru mjög vinsæl námsdýr í skólum og einföld gæludýr vegna þess hve auðvelt er að hugsa um þá. Þeir eru heillandi skordýr sem eru þekktust fyrir einstaka feluliti og líkamslögun sem líkist spýtum, greinum eða laufblöðum. Þeir bita ekki eða fljúga ef maður heldur á þeim reyna þeir frekar að standa alveg kyrrir eða labba hægt yfir á næstu hendi. Þar sem þeir geta hvorki flogið né stökkið, er mjög auðvelt og streitulaust að sýna nemendum þá, taka þá upp úr búrinu og leyfa þeim að skríða um hendur án þess að hætta sé á að þeir fljúgi burt.  Það sem þarf að hafa í huga þegar umgengist er Förustafi er aðallega dýrið sjálft þar sem þetta er mjög viðkvæm dýr.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 31. ágúst 2026
Í tilefni af skólahlaupinu sem haldið var á föstudag var pylsuveisla í Grundaskóla. Hér koma nokkrar myndir.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 28. ágúst 2026
Hið árlega skólahlaup var haldið í blíðskaparveðri í dag. Mikil og góð þátttaka var í hlaupinu og var gaman að sjá foreldra og ömmur taka þátt ásamt nemendum og starfsmönnum.  Þetta er skemmtileg hefð og skapast alltaf mikil og góð stemning á þessum degi.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 28. ágúst 2026
Í unglingadeild Grundaskóla er námskeiðabraut - Aðalval, fyrir 8.-9.bekk Það er á miðvikudögum og föstudögum. Nemendur fá kynningar og tækifæri til að velja sér af eftirfarandi auglýsingum þetta haustið fyrir þessar tvær lotur sem eru fyrir jól.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 28. ágúst 2026
Laugardaginn 29. ágúst 2026 fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið verður um hvort hefja skuli á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB). Nú liggur fyrir ákvörðun um kjörstað hér á Akranesi, hann verður í Grundaskóla og kjörfundur stendur frá kl. 9-22. Með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan má finna upplýsingar vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu, efni frá aðildarviðræðum Íslands sem fram fóru árin 2009-2013 og annað gagnlegt efni sem málið varðar. Gagnlegar upplýsingar
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 28. ágúst 2026
Nemendur 3.bekkjar hjálpuðust að við tína Rifsber sem þau ætla að sulta og selja á markaðinum Breytum krónum í gull. Mikil samvinna hjá þessum flottu krökkum.  Bestu kveðju, teymið í 3.bekk
Eftir Heiða Viðarsdóttir 26. ágúst 2026
Það var líf og fjör þegar krakkarnir fóru í fyrstu frímínúturnar á þessu skólaári í Unglingadeild í morgun.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 19. ágúst 2026
Skólasetning Grundaskóla 25.ágúst
Eftir Heiða Viðarsdóttir 11. júní 2026
Fundur í sal Grundaskóla 24. ágúst nk.
Eftir Heiða Viðarsdóttir 10. júní 2026
Í gær fór fram útskriftarathöfn í Grundaskóla þar sem árgangur 2010 lauk sinni grunnskólagöngu. Alls voru 78 nemendur sem tóku á móti lokavitnisburði frá skólanum á þessum viðburði. Við óskum útskriftarnemum til hamingju með góðan námsárangur og þökkum foreldrum þeirra einnig fyrir gott samstarf s.l. tíu ár. Megi gæfan fylgja ykkur um alla tíð.
Show More