Kallað eftir framboðum

Kallað eftir framboðum til Skólaráðs Grundaskóla og
í stjórn Foreldrafélags skólans
Fulltrúar foreldra í skólaráð Grundaskóla
Nú þarf að kjósa í skólaráðið okkar og því viljum við vekja athygli allra á að kosið verður í ráðið þann 15. sept. n.k. Þeir sem hafa hug á að bjóða sig fram sem fulltrúar foreldra (sjá nánar hér fyrir neðan) eru hvattir til að setja sig í samband við skrifstofu Grundaskóla (grundaskoli@grundaskoli.is) eða í síma 433-1400 og tilkynna um framboð.
Helstu verkefni:
Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð fjallar um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstrar áætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið. Skólaráð skal fá til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin. Skólaráð fylgist almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda.
Skólaráð starfar samkvæmt reglugerð um skólaráð við grunnskóla.
Fulltrúar eftirtalinna sitja í Skólaráði Grundaskóla
Skólastjóri: Ber ábyrgð á stofnun skólaráðs, boðar fundi og leiðir starf þess. Aðstoðarskólastjóri eða annar staðgengill er varamaður hans í skólaráði.
Kennarar: Tveir fulltrúar kennara eru kosnir á kennarafundi og tveir til vara.
Annað starfsfólk: Einn fulltrúi annars starfsfólks er kosinn á starfsmannafundi og einn til vara.
Foreldrar: Tveir fulltrúar foreldra skulu kosnir og tveir til vara.
Nemendur: Tveir fulltrúar nemenda skulu kosnir samkvæmt starfsreglum nemendafélags og tveir til vara.
Fulltrúi grenndarsamfélags: Einn fulltrúi Hollvinafélags Grundaskóla og einn til vara eru fulltrúar úr grenndarsamfélaginu.
Skólaráð getur tekið ákvörðun um að boða einstaklinga á fundi til að veita upplýsingar eða ráðgjöf í einstökum málum.
Framboðsfrestur til Skólaráðs Grundaskóla rennur út 12. sept. n.k.








