Gestir frá Frakklandi
Heiða Viðarsdóttir • 16. apríl 2026

Þessa vikuna eru gestir frá Frakklandi í heimsókn á yngsta stigi í Grundaskóla.
Þær heita Emeline, Delphine og Calesia og eru hér á vegum Erasmus í svokölluðu job shadowing, þar sem þær fylgjast með starfi kennara og fá innsýn í íslenskt skólastarf.
Markmið heimsóknarinnar er að efla alþjóðlegt samstarf, deila reynslu og læra hvert af öðru.
Slík samskipti eru bæði kennurum og nemendum dýrmæt, þar sem þau auka skilning á ólíkum menningarheimum, kennsluaðferðum og skólastarfi.
Við í Grundaskóla fögnum þessari heimsókn

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
14. október 2026
Nú eru Förustafirnir farnir að stækka það mikið að óhætt er að taka þá úr búrinu. Þeir vekja mikla lukku hjá mörgum nemendum sem vilja ólmir taka þá til sín og leyfa þeim að vera með sér á meðan þeir eru í kennslustund. Förustafirnir eru farnir að fá hin ýmsu nöfn á meðan þeir eru að læra með nemendum. Það er gaman að fylgjast með áhuga nemenda á þessu saklausu dýrum í náttúrfræðistofunni.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
12. október 2026
Nokkrir áhugasamir lestrarhestar í 5. bekk taka þátt í bókaklúbbi sem hittist einu sinni í viku. Þar hafa þær kynnt uppáhaldsbækur sínar fyrir hvor annarri, lesið upp úr bókum og eru nú byrjaðar í samlestri. Um þessar mundir er hópurinn að lesa bókina Silfurlykilinn eftir Sigrúnu Eldjárn og hafa skapast líflegar og skemmtilegar umræður um söguna. Bókaklúbburinn er hluti af verkefninu Opni skólinn.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
5. október 2026
Grundaskóli tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 Grundaskóli hefur verið tilnefndur til íslensku menntaverðlaunanna í flokknum; Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur . Alls eru þrjár menntastofnanir tilnefndar í þessum flokki. Tilkynnt verður um hver hlýtur verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í byrjun nóvember. Nánar má lesa um íslensku menntaverðlaunin, flokkana sem veitt eru verðlaun í og tilnefningar í hverjum flokki hér: https://skolathroun.is/tilnefningar-til-islensku-menntaverdlaunanna-2026-2/ Þess má geta að Grundaskóli hlaut fyrst allra skóla Íslensku menntaverðlaunin árið 2005.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
5. október 2026
Í dag, á alþjóðadegi kennara, beinum við sjónum okkar að mikilvægi kennarastarfsins og því ómetanlega hlutverki sem kennarar gegna í samfélaginu. Flest eigum við minningar um kennara sem höfðu sérstök áhrif á líf okkar og standa enn í hugum okkar sem fyrirmyndir. Ástæðurnar geta verið margar. Kannski var það kennari sem mætti okkur ávallt með jákvæðni og hlýju, vakti áhuga okkar á nýjum viðfangsefnum, miðlaði þekkingu af eldmóði eða veitti okkur stuðning og hvatningu þegar mest á reyndi. Góðir kennarar gera meira en að miðla þekkingu. Þeir byggja upp sjálfstraust, efla trú nemenda á eigin getu og leggja mikilvægan grunn að framtíð þeirra. Það er hvorki sjálfgefið að eiga góða kennara né að búa við öflugt skólastarf. Þess vegna er full ástæða til að staldra við, þakka fyrir vel unnin störf og fagna þessum mikilvæga degi. Alþjóðadagur kennara er haldinn hátíðlegur ár hvert þann 5. október, að frumkvæði UNESCO, Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, og hefur verið haldinn frá árinu 1994. Við í Grundaskóla erum stolt af okkar kennurum og því mikilvæga starfi sem þeir sinna dag hvern. Innilegar hamingjuóskir með daginn og kærar þakkir fyrir fagmennsku, metnað og ómetanlegt framlag til skólasamfélagsins.





