Frétt frá 3.bekk
Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 2. desember 2025

Í gær kom Slökkviliðið í heimsókn til okkar í 3.bekk á degi reykskynjarans. Farið var yfir mikilvægi þess að skoða reykskynjara á heimilinu 4 sinnum á ári og skipta um rafhlöðu 1.des ár hvert.
Nemendur fengu að gjöf bókina Ævintýri Orra og Möggu – Eldvarnir ásamt því að fá litarbók, buff og endurskinmerki. Við þökkum Slökkviliðinu fyrir þessar dásamlegu gjafir.
Kveðja, frá 3.bekk

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
19. desember 2025
Það er alltaf nóg um að vera hjá okkur í skógræktinni í útináminu. Í þessari ferð vorum við að vinna með tugina í stærðfræðinni. Bjuggum til píluspjald og reyndum að fá sem flest stig. Einning vorum við að leika okkur með garn og trjágreinar. Börnin njóta sín vel í þessari náttúruparadís sem skógræktin okkar er. Í nóvember var markaðurinn "Breytum krónum í gull" Föstudaginn 12.desember lögðum við af stað í óvissuferð með kakó, smákökur eða sparinesti. í myrkrinu. Nemendur voru vel útbúnir með höfuðljós og vasaljós. Áningastaður okkar var fyrir utan Stúkuhúsið við Byggðasafnið. Þar settumst við niður og fengum okkur sparinesti og hlustuðum á jólasögu og áttum notalega stund í köldu vetrarveðri. Við óskum ykkar gleðilegra jóla og njótið samverunnar um hátíðarnar. Jólakveðja frá 2.bekk











