Förustafir í Grundaskóla

Enn bætist í fjölbreytileika Grundaskóla og hafa nemendur skólans gaman af. Þessir nýnemar hafa vakið mikla athygli og margir bíða spenntir eftir að geta tekið þá úr búrinu til að skoða betur, en nú eru þeir að stækka og þroskast. Það verður gaman að sjá hvernig þessi vinna þróast í vetur.
Förustafir eru mjög vinsæl námsdýr í skólum og einföld gæludýr vegna þess hve auðvelt er að hugsa um þá. Þeir eru heillandi skordýr sem eru þekktust fyrir einstaka feluliti og líkamslögun sem líkist spýtum, greinum eða laufblöðum. Þeir bita ekki eða fljúga ef maður heldur á þeim reyna þeir frekar að standa alveg kyrrir eða labba hægt yfir á næstu hendi.
Þar sem þeir geta hvorki flogið né stökkið, er mjög auðvelt og streitulaust að sýna nemendum þá, taka þá upp úr búrinu og leyfa þeim að skríða um hendur án þess að hætta sé á að þeir fljúgi burt.
Það sem þarf að hafa í huga þegar umgengist er Förustafi er aðallega dýrið sjálft þar sem þetta er mjög viðkvæm dýr.











