Appelsínugul veðurviðvörun
Heiða Viðarsdóttir • 28. október 2025

Akraneskaupstaður hvetur forsjáraðila til að fylgja börnum í eða úr skóla eða frístundastarfi.
Akraneskaupstaður vill vekja athygli íbúa á að Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula veðurviðvörun fyrir Faxaflóa og Akranes. Viðvörunin tekur gildi frá og með klukkan 14.00 í dag og mun standa fram eftir degi.
Líkur eru á mikilli snjókomu, skafrenningi og lélegu skyggni.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
19. desember 2025
Það er alltaf nóg um að vera hjá okkur í skógræktinni í útináminu. Í þessari ferð vorum við að vinna með tugina í stærðfræðinni. Bjuggum til píluspjald og reyndum að fá sem flest stig. Einning vorum við að leika okkur með garn og trjágreinar. Börnin njóta sín vel í þessari náttúruparadís sem skógræktin okkar er. Í nóvember var markaðurinn "Breytum krónum í gull" Föstudaginn 12.desember lögðum við af stað í óvissuferð með kakó, smákökur eða sparinesti. í myrkrinu. Nemendur voru vel útbúnir með höfuðljós og vasaljós. Áningastaður okkar var fyrir utan Stúkuhúsið við Byggðasafnið. Þar settumst við niður og fengum okkur sparinesti og hlustuðum á jólasögu og áttum notalega stund í köldu vetrarveðri. Við óskum ykkar gleðilegra jóla og njótið samverunnar um hátíðarnar. Jólakveðja frá 2.bekk








