Vika 6 í unglingadeild


Vika 6 fór fram dagana 2.– 6. febrúar og í ár var þema vikunnar Öryggi og ofbeldi.
Í viku 6, sem haldin er árlega, er starfsfólk skóla hvatt til að setja kynheilbrigði í forgrunn og bjóða nemendum upp á fjölbreytta og aldursviðeigandi kynfræðslu.
Nemendur í unglingadeild fengu fræðslu inni í sínum bekkjum auk þess sem unnið var í blönduðum hópum í 8.– 10. bekk. Þar fóru nemendur á milli þriggja stöðva og tóku þátt í ýmsum verkefnum sem tengdust þema vikunnar.
Á fimmtudeginum sameinuðumst við Brekkubæjarskóla og Heiðarskóla í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum. Þar tóku nemendur þátt í fjölbreyttum leikjum sem Ívar og Jón Hjörvar úr Arnardal stýrðu af mikilli snilld og skapaðist afar skemmtileg stemning.
Við þökkum öllum nemendum fyrir góða þátttöku 😊














