Skapandi kennsluaðferðir

Þriðjudaginn 10. febrúar sl. voru haldin fræðandi og áhugaverð námskeið í Grundaskóla á Akranesi þar sem fjallað var um skapandi og inngildandi kennsluaðferðir.
Námskeiðin „Gamified learning, leikjavæðing“ og „Talent Maker, hæfileikamiðað nám“ vöktu mikinn áhuga og voru vel sótt af kennurum.
Tryggvi Thayer og Skúlína Kjartansdóttir frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands sáu um námskeiðið um leikjavæðingu þar sem farið var yfir leiðir til að auka áhuga og virkni nemenda í gegnum leik og áskoranir í námi.
Ragnheiður Alma Snæbjörnsdóttir, kennari í Akurskóla, stýrði námskeiðinu um hæfileikamiðað nám þar sem áhersla var lögð á skapandi verkefni og fjölbreyttar leiðir til að mæta styrkleikum og áhugasviði nemenda.
Námskeiðin voru haldin í samstarfi við Menntavísindasvið HÍ og GeoCamp Iceland og er liður í Evrópuverkefninu Acadimia.
Það er mikill fengur fyrir Grundaskóla að hafa fengið þetta tækifæri.












