Útikennsla í 2.bekk - Skynfærin
Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 12. febrúar 2026

Í gær nýttu nemendur og kennarar í 2.bekk góða veðrið og færðu kennsluna upp í skógrækt.
Viðfangsefnið var að vinna með skynfærin og að æfa samvinnu.
Nemendunum var skipt í 4-5 manna hópa, hver hópur fékk bingóspjald þar sem þau áttu að finna 16 mismunandi hluti í náttúrunni.
Virkilega skemmtilegt verkefni og gaman hvað samvinnan gekk vel. Þegar í skólann var komið gerðu nemendur verkefni og rifjuðu upp hvað þau sáu, fundu og heyrðu í skógræktinni.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
13. maí 2026
Í dag fórum við í sveitaferð að Miðdal í Kjós. Við fengum mjög góðar móttökur og dagurinn var frábær í alla staði. Veðrið lék við okkur og börnin nutu sín vel í sveitinni. Gillaðar voru pylsur í hádeginu og allir fengu svala og kex. Hér fylgja nokkrar myndir með:

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
12. maí 2026
Í dag breyttist skólastarfið aðeins þegar allir nemendur og starfsfólk skólans tóku þátt í sameiginlegum tiltektardegi í kringum skólann. Nemendur unnu saman í hópum og lögðu sig fram við að gera skólalóðina og nærumhverfið fallegra. Stemningin var góð og gaman að sjá hvað samvinna, dugnaður og jákvætt viðhorf geta skilað miklu. Svona dagar minna okkur á mikilvægi þess að bera sameiginlega ábyrgð á umhverfinu okkar. Við erum afar stolt af okkar öflugu nemendum og starfsfólki sem tóku virkan þátt í deginum.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
11. maí 2026
10. bekkur fór í vel heppnaða og skemmtilega lokaferð í Skagafjörðinn í síðustu viku. Veðrið lék við okkur, þótt það hafi verið kalt og léku nemendur á alls oddi í þrautabraut, fljótasiglingu og litabolta. Þess á milli fengu nemendur frjálsan tíma sem var meðal annars vel nýttur í sund- og sjoppuferðir, körfubolta og almenna afslöppun. Stemningin í hópnum var frábær og nemendur stóðu sig með miklum sóma alla ferðina. Það var gaman að sjá hversu vel þau nutu samverunnar og sköpuðu skemmtilegar minningar saman á þessum síðustu vikum grunnskólagöngunnar. Við fengum frábærar móttökur á Bakkaflöt og í félagsheimilinu Miðgarði – þökkum kærlega fyrir okkur!! Frábær endapunktur á vetrinum.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
11. maí 2026
Grundaskóli tók þátt í skólahreysti miðvikudaginn 6 maí í íþróttahúsinu Varmá í Mosfellsbæ. Lið Grundaskóla var skipað 7 hressum krökkum úr 9.bekk. Ólöf Oddný Jenssen, Stefanía Rakel Engilbertsdóttir, Hekla María Davíðsdóttir, Linda María Márusdóttir, Breki Þór Ellertsson, Styrmir Líndal Gíslason og Viktor Hugi Sigurgeirsson. Krakkarnir stóðu sig mjög vel og gerðu sitt allra besta. Klapplið Grundaskóla var frábært en það voru rúmlega 90 nemendur að hvetja, einnig var lið Brekkó að keppa líka og það var frábært að sjá samstöðu nemenda Grundó og Brekkó þar sem allir sameinuðust í því að hvetja bæði lið skagakrakkana áfram.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
11. maí 2026
Dagana 4.-7. maí voru kennarar frá Þýskalandi í heimsókn. Ferð þeirra var í gegnum Erasmus. Þeir voru mjög hrifnir af skólanum og höfðu orð þá því hversu þrifalegt væri í skólanum, hversu vel mannaður skólinn væri og að allur aðbúnaður væri góður. Alltaf gaman og fróðlegt að taka á móti gestum.

Eftir Snorri Kristleifsson
•
8. maí 2026
Söngleikurinn Smellur er kominn á YouTube rás Grundaskóla. Söngleikurinn var fluttur af 10. bekk (árgangi 2010) á sal Grundaskóla í nóvember. Smellur var gríðarlega vel sóttur en uppselt var á nær allar 10 sýningar. Höfundar: Einar Viðarsson, Flosi Einarsson og Gunnar Sturla Hervarsson Leikstjórn: Einar Viðarsson Tónlistarstjórn: Flosi Einarsson Söngstjórn: Elfa Margrét Ingvadóttir og Margrét Saga Gunnarsdóttir Danshöfundur: Sandra Ómarsdóttir Búningahönnun: Eygló Gunnarsdóttir Hér má nálgast leikskrána

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
7. maí 2026
Við í 1. bekk fengum góða heimsókn þegar vinir okkar í 1. bekk í Brekkubæjarskóla komu til okkar. Við byrjuðum á að dansa saman inn á sal sem var virkilega skemmtilegt. Eftir það áttum við skemmtilega stund þar sem við lékum saman. Við erum strax farin að hlakka til að endurtaka leikinn í 2. bekk.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
6. maí 2026
Í gær fengu nemendur í 3.–6. bekk skemmtilega og lærdómsríka heimsókn frá Evu Rún og Blæ á vegum „List fyrir alla“. Krakkarnir fengu innsýn í heim sögugerðar þar sem ímyndunaraflið fékk að njóta sín. Á fyrirlestrinum hófu nemendur vinnuna á því að skapa eigin sögupersónu sem Blær teiknaði jafnóðum upp, sem vakti mikla lukku. Í kjölfarið unnu þau áfram með persónuna og bjuggu til sögu þar sem hún lifnaði við. Heimsóknin lærdómsrík og gaf nemendum tækifæri til að tjá hugmyndir sínar á nýjan hátt. Það verður spennandi að fylgjast með áframhaldandi vinnu þeirra í sögugerð.


















