Kransakökunámskeið

Mikil ánægja ríkti á kransakökunámskeiði sem Grundaskóli á Akranesi bauð fermingarbörnum og forráðamönnum þeirra upp á á dögunum.
Námskeiðið var hluti af frístundastarfi skólans innan Opna skólans og fylltust þrjú kvöld af áhugasömum þátttakendum.
Alls tóku 36 manns þátt og mættu mömmur, ömmur og pabbar með börnum sínum til að læra listina að baka og skreyta hina hefðbundnu fermingarkransaköku.
Stemningin var létt og skemmtileg og greinilegt að samveran skipti ekki síður máli en sjálf baksturinn.
Frístundanámskeiðin sem Grundaskóli býður upp á hafa notið mikilla vinsælda og ljóst að þau eru alveg að slá í gegn meðal íbúa. Kransakökunámskeiðið er gott dæmi um hvernig skólinn eflir samstarf heimila og skóla með skapandi og skemmtilegum hætti.










































