4.bekkur í kvikmyndagerð

Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 11. febrúar 2026

Nemendur í 4.bekk eru í list-og verkgreinum að taka upp eigin stuttmynd.

Þau skrifa stutt handrit, taka upp og klippa sjálf myndina í klippiforriti. 


Fyrirhugað er að nemendur í 4.-7.bekk fái möguleika á að taka þátt í árlegri

kvikmyndahátíð skólans sem haldin verður í byrjun júní. 

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 25. september 2026
Nemendur í unglingadeild voru duglegir í heimilisfræðinni og útbjuggu tortillupönnukökur alveg frá grunni ásamt fjölbreyttu meðlæti. Þau fengu tækifæri til að vinna sjálfstætt, prófa sig áfram og sjá hvernig einföld hráefni verða að góðri máltíð. Markmiðið var að nemendur læri að gera sjálfir og vita hvað er í matnum sem þau borða . Með því að útbúa matinn frá grunni fá þau betri innsýn í hráefnin, matreiðsluna og mikilvægi þess að geta bjargað sér í eldhúsinu.  Nemendur ganga vel um eldhúsið, halda vinnusvæðinu hreinu og leggja metnað í að ganga frá eftir sig. Það skilar sér í notalegu og góðu vinnuumhverfi þar sem allir geta notið sín.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 25. september 2026
Ólympíuhlaup ÍSÍ 2026 fór fram í flestum skólum landsins á síðustu dögum og tóku þúsundir nemenda og starfsmanna skólakerfisins sprettinn í nafni heilsueflingar.  Nemendur Grundaskóla hlutu á dögunum viðurkenningu ÍSÍ fyrir að hlaupa samtals 3302 km.
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 24. september 2026
Fjórar vikur til stefnu
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 23. september 2026
Gangbrautagæsla við Grundaskóla í allan vetur 
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 22. september 2026
Minnum á reglur um útivistartíma barna og ungmenna.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 18. september 2026
Nemendur í 2. og 8. bekk tóku nýlega þátt í skemmtilegri útikennslu þar sem áhersla var lögð á samvinnu, samskipti og tengsl milli árganga . Nemendur unnu saman í blönduðum hópum og tókust á við náttúru-bingó þar sem þau þurftu að leita að ýmsu í umhverfinu. Meðal annars þurftu þau að fylgjast vel með náttúrunni, finna mismunandi hluti og leysa verkefnin í sameiningu.  Verkefnið gaf nemendum tækifæri til að kynnast hvert öðru, hjálpast að og læra hvert af öðru. Eldri nemendur fengu tækifæri til að leiðbeina og styðja þau yngri, á meðan 2. bekkur komu með forvitni, gleði og mikinn áhuga á verkefninu. Það var gaman að sjá hversu vel nemendur unnu saman og hvernig samvinna og góð samskipti gerðu útikennsluna bæði fræðandi og skemmtilega .
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 18. september 2026
Í gær fengum við þær Evu Rún Þorgeirsdóttur, rithöfund, og Blæ Guðmundsdóttur, teiknara og barnabókahöfund, í heimsókn í Grundaskóla. Þær kynntu fyrir nemendum í 1.–7. bekk Svakalegu lestrarkeppnina, sem nú er hafin og við í Grundaskóla tökum auðvitað þátt.  Við hvetjum alla nemendur og foreldra til að taka höndum saman og vera einstaklega dugleg að lesa saman. Keppnin stendur til 6. október , svo nú er um að gera að grípa í góða bók og lesa sem mest.
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 18. september 2026
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 17. september 2026
„Þetta er bara algjör snilld, svo gaman að taka þátt.“ Fólk á öllum aldri er á einu máli um þátttöku á frístundanámskeiðum Opna skólans. Nemendur Grundaskóla, mömmur og pabbar, afar og ömmur hafa fjölmennt á frístundanámskeiðin sem hafa verið í boði og færri komist að en vilja. Fjölbreytt námskeið eru framundan og margt spennandi í boði fyrir alla fjölskylduna. Takk öll fyrir að taka þátt, það er gaman að vera saman.  Meðfylgjandi eru nokkrar myndir af okkar fólki á námskeiði tengt kleinubakstri.
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 17. september 2026
Opni skólinn frístundanámskeið „Kleinugerð með afa og ömmu“ Fyrir foreldra og börn Ekki missa af þessu tækifæri til að gera eitthvað skemmtilegt með barninu þínu. Grundaskóli býður nú foreldrum og nemendum tengt áherslum Opna skólans upp á spennandi námskeið í kleinubakstri. Vinnusmiðju þar sem foreldrar og börn vinna saman og læra handbragðið af eldri kynslóð (ömmum eða öfum). Markmiðið er að kynnast betur, eiga skemmtilega stund saman, efla gagnrýna hugsun og lausnamiðaða nálgun. Öll tæki og efniviður er til staðar og þurfa þátttakendur eingöngu að mæta með vilja og áhuga um að gera eitthvað skemmtilegt saman. Tímasetning er þriðjudagurinn 22. Sept. frá kl. 16 - 19 Þátttakendafjöldi er takmarkaður og hér gildir sem fyrr fyrstir koma fyrstir fá. Þátttökugjald er 1000 kr. á mann og gengur upp í efniskostnað Leiðbeinendur eru vanir kleinugerðarmenn og konur, afar og ömmur 😊
Show More