Ráðleggingar um morgunnesti grunnskólanema

Heiða Viðarsdóttir • 2. október 2026

Börnin eru misjöfn og ekki dugar öllum að fá einungis ávexti og grænmeti í morgunhressingu

Börnin eru misjöfn og ekki dugar öllum að fá einungis ávexti og grænmeti í morgunhressingu.

Einnig þarf að taka mið af því hvort borðað var nægilega vel í morgunmatnum og hve langt er í hádegismat.

Í ráðleggingunum eru gefin viðmið fyrir morgunhressingu og sýnd dæmi um hvaða matvæli gætu verið heppileg, með ávöxtum og grænmeti, háð mismunandi þörfum barna.

Grundaskóli hefur boðið nemendum að taka með sparinesti í skólann öðru hvoru en það er tilbreyting frá því sem er venjulega. Í ráðleggingunum eru einnig gefin viðmið fyrir sparinesti og dæmi um hvaða vörur gætu hentað í slíkum tilvikum

Eftir Heiða Viðarsdóttir • 2. október 2026
Þegar skemmtileg stærðfræði þraut bíður nemanda í unglingadeild eru nemendur mættir fyrir allar aldir til að reyna að leysa hana 😃
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 2. október 2026
Opni skólinn frístundanámskeið „Kleinugerð með afa og ömmu“ Fyrir foreldra og börn Ekki missa af þessu tækifæri til að gera eitthvað skemmtilegt með barninu þínu. Grundaskóli býður nú foreldrum og nemendum tengt áherslum Opna skólans upp á spennandi námskeið í kleinubakstri. Vinnusmiðju þar sem foreldrar og börn vinna saman og læra handbragðið af eldri kynslóð (ömmum eða öfum). Markmiðið er að kynnast betur, eiga skemmtilega stund saman, efla gagnrýna hugsun og lausnamiðaða nálgun.  Öll tæki og efniviður er til staðar og þurfa þátttakendur eingöngu að mæta með vilja og áhuga um að gera eitthvað skemmtilegt saman. Næsta tímasetning er miðvikudagurinn 7. okt. frá kl. 16 - 19 Þátttakendafjöldi er takmarkaður og hér gildir sem fyrr fyrstir koma fyrstir fá. Þátttökugjald er 1000 kr. á mann (2000 kr. á par) og gengur upp í efniskostnað Leiðbeinendur eru vanir kleinugerðarmenn og konur, afar og ömmur 😊
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 29. september 2026
Áfall varð að tækifæri 
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 29. september 2026
Frístund Grundaskóla hefur flutt starfsemi sína á ný yfir í Grundasel og verður þar til að annað er ákveðið. Miklar framkvæmdir voru fyrirhugaðar á Grundaseli og því starfsemin flutt tímabundið inn í aðalbyggingu Grundaskóla. Þessum framkvæmdum hefur nú verið frestað um óákveðin tíma. Fyrstu vikurnar hafa verið flóknar því hátt í 150 nemendur og starfsmenn koma saman í frístund skólans og aðstæður í aðalbyggingunni réðu illa við það samhliða hefðbundinni skólastarfsemi.  Frístund er því komin aftur heim á Grundasel og fer miklu betur um alla aðila, bæði yngri og þá sem eldri eru.
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 28. september 2026
Það er samstarfsverkefni heimilis og skóla að tryggja börnum farsælt lestrarnám og góða lestrarfærni. Lestur er undirstaða alls náms og því mikilvægt að þjálfun hans fari jafnt fram í skóla og heima. Heimaþjálfunin eykur líkur á árangri. Hér eru tillögur að heimaþjálfun sem FLÍS félag læsisfræðinga á Íslandi tók saman.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 25. september 2026
Nemendur í unglingadeild voru duglegir í heimilisfræðinni og útbjuggu tortillupönnukökur alveg frá grunni ásamt fjölbreyttu meðlæti. Þau fengu tækifæri til að vinna sjálfstætt, prófa sig áfram og sjá hvernig einföld hráefni verða að góðri máltíð. Markmiðið var að nemendur læri að gera sjálfir og vita hvað er í matnum sem þau borða . Með því að útbúa matinn frá grunni fá þau betri innsýn í hráefnin, matreiðsluna og mikilvægi þess að geta bjargað sér í eldhúsinu.  Nemendur ganga vel um eldhúsið, halda vinnusvæðinu hreinu og leggja metnað í að ganga frá eftir sig. Það skilar sér í notalegu og góðu vinnuumhverfi þar sem allir geta notið sín.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 25. september 2026
Ólympíuhlaup ÍSÍ 2026 fór fram í flestum skólum landsins á síðustu dögum og tóku þúsundir nemenda og starfsmanna skólakerfisins sprettinn í nafni heilsueflingar.  Nemendur Grundaskóla hlutu á dögunum viðurkenningu ÍSÍ fyrir að hlaupa samtals 3302 km.
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 24. september 2026
Fjórar vikur til stefnu
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 23. september 2026
Gangbrautagæsla við Grundaskóla í allan vetur 
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 22. september 2026
Minnum á reglur um útivistartíma barna og ungmenna.
Show More