Opni skólinn frístundanámskeið

Opni skólinn frístundanámskeið
„Kleinugerð með afa og ömmu“
Fyrir foreldra og börn
Ekki missa af þessu tækifæri til að gera
eitthvað skemmtilegt með barninu þínu.
Grundaskóli býður nú foreldrum og nemendum tengt áherslum Opna skólans upp á spennandi námskeið í kleinubakstri. Vinnusmiðju þar sem foreldrar og börn vinna saman og læra handbragðið af eldri kynslóð (ömmum eða öfum).
Markmiðið er að kynnast betur, eiga skemmtilega stund saman, efla gagnrýna hugsun og lausnamiðaða nálgun.
Öll tæki og efniviður er til staðar og þurfa þátttakendur eingöngu að mæta með vilja og áhuga um að gera eitthvað skemmtilegt saman.
Næsta tímasetning er miðvikudagurinn 7. okt. frá kl. 16 - 19
Þátttakendafjöldi er takmarkaður og hér gildir sem fyrr fyrstir koma fyrstir fá.
Þátttökugjald er 1000 kr. á mann (2000 kr. á par) og gengur upp í efniskostnað
Leiðbeinendur eru vanir kleinugerðarmenn og konur, afar og ömmur 😊










