Kvikmyndahátíð Grundaskóla

Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 12. mars 2026

Vilt þú vera með?

Síðustu tvö ár höfum við haldið glæsilega kvikmyndahátíð í Grundaskóla.

Nú er tækifæri fyrir 4.-7.bekk að vera með!


Sjá meðfylgjandi auglýsingu.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 12. mars 2026
Umboðsmaður barna sendir bæjarstjórn Akraneskaupstaðar formlegt bréf eftir ánægjulega vettvangsheimsókn á Akranes. Efni: Öryggi nemenda og sundkennsla. Sjá nánar í meðfylgjandi hlekk: Vettvangsheimsókn umboðsmanns barna á Akranes.
Eftir Heiða Viðarsdóttir 11. mars 2026
Þessa dagana stendur yfir skemmtilegt Zentangle teikni og listanámskeið fyrir börn og foreldra tengt starfsemi opna skólans í Grundaskóla. Námskeiðunum er ætlað að gefa foreldrum og börnum tækifæri til að mæta og vinna einhver skemmtileg verkefni saman og læra eitthvað nýtt og spennandi. Í vetur höfum við boðið upp á nokkur námskeið um hin ýmsu viðfagsefni og hefur þátttaka verið mjög góð til þessa. Á næstu dögum verða ný tilboð send út og hvetjum við foreldra til að stökkva á þessi frábæru tilboð og gera eitthvað skemmtilegt og uppbyggjandi með börnunum sínum.
Eftir Heiða Viðarsdóttir 5. mars 2026
Fimmtudaginn 5. mars fengum við í 3. bekk Grundaskóla góða gesti í heimsókn þegar nemendur í 3. bekk í Brekkubæjarskóla komu til okkar. Við áttum saman skemmtilegan dag bæði inni og úti.  Alltaf gaman að efla tengslin á milli skólana. Takk fyrir komuna
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 4. mars 2026
Zentangle - Fyrir foreldra og börn frá 5. - 10.bekk.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 3. mars 2026
Salvör Nordal, umboðsmaður barna kom í heimsókn í Grundaskóla mánudaginn 2. mars ásamt fylgdarliði og fundaði með fulltrúum í nemendaráði skólans. Á fundinum var farið yfir ýmis hagsmunamál barna og rætt um margvísleg mál er varða nemendur skólans. Meðal annars var farið ítarlega yfir aðstöðumál í sundlauginni á Jaðarsbökkum. Fundurinn var mjög vel heppnaður og í lok dagskrár fengu gestirnir kynningu á skólanum og þeirri þjónustu sem hér er veitt.  Við þökkum fyrir ánægjulega heimasókn og góðar samræður.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 2. mars 2026
Starfið í Grundasel hefur gengið vel í vetur. í dag eru 110 börn úr 1. og 2.bekk skráð í frístund og því alltaf mikið líf og fjör. Við erum í samvinnu verkefni við skólann og fáum til okkar krakka úr unglingadeildinni sem hafa valið frístundastarf sem valnámskeið, það hefur slegið í gegn hjá okkar börnum.  Í Grundasel höfum við brallað ýmislegt í vetur og hlökkum til að þróa starfið enn betur með hækkandi sól.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 18. febrúar 2026
Við viljum minna á að skipulagsdagur er á morgun fimmtudag, 19.febrúar. Strax í kjölfarið hefst vetrarfrí í Grundaskóla, föstudaginn 20.febrúar og mánudaginn 23.febrúar. Skólinn hefst aftur samkvæmt stundaskrá Þriðjudaginn 24.febrúar. Myndir af Öskudegi í Grundaskóla 2026 fá að fylgja hér með.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 18. febrúar 2026
Í síðustu viku fengum við góða heimsókn frá Óskari Þorsteinssyni körfuboltaþjálfar hjá ÍA. Hann var gestur í íþróttatímum hjá 1.-5. bekk og kynnti þau fyrir íþróttinni. Alltaf gaman að fá góðar heimsóknir til okkar og þökkum við kærlega fyrir.
Eftir Heiða Viðarsdóttir 17. febrúar 2026
24. fundur bæjarstjórnar unga fólksins verður haldinn þriðjudaginn 17. febrúar 2026 að Dalbraut 4 og hefst kl 17:00. Akranes.is
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 17. febrúar 2026
Það er hefð fyrir því í 7. bekk að taka þátt í upplestarkeppni. Í síðustu viku fóru fram bekkjarkeppnir í upplestrarkeppninni en úr hverjum bekk komust svo sex nemendur áfram. Í lok febrúar verður forkeppnin haldin en þá stíga þessir 18 nemendur á svið sem komust áfram í þá keppni. Allir nemendur í 7.bekk tóku þátt með einhverju móti og stóðu allir sig frábærlega vel. Í byrjun mars verður lokakeppnin haldin í Tónberg og þar hittum við í Grundaskóla keppendur úr Brekkubæjarskóla.  Um þessar mundir eru nemendur einnig að taka þátt í teikni-keppni en þar er verið að leita eftir mynd á boðskortið fyrir Tónbergs keppnina.
Show More