Bréf frá umboðsmannni barna
Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 12. mars 2026

Umboðsmaður barna sendir bæjarstjórn Akraneskaupstaðar formlegt bréf eftir ánægjulega vettvangsheimsókn á Akranes.
Efni: Öryggi nemenda og sundkennsla.
Sjá nánar í meðfylgjandi hlekk:
Vettvangsheimsókn umboðsmanns barna á Akranes.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
11. mars 2026
Þessa dagana stendur yfir skemmtilegt Zentangle teikni og listanámskeið fyrir börn og foreldra tengt starfsemi opna skólans í Grundaskóla. Námskeiðunum er ætlað að gefa foreldrum og börnum tækifæri til að mæta og vinna einhver skemmtileg verkefni saman og læra eitthvað nýtt og spennandi. Í vetur höfum við boðið upp á nokkur námskeið um hin ýmsu viðfagsefni og hefur þátttaka verið mjög góð til þessa. Á næstu dögum verða ný tilboð send út og hvetjum við foreldra til að stökkva á þessi frábæru tilboð og gera eitthvað skemmtilegt og uppbyggjandi með börnunum sínum.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
3. mars 2026
Salvör Nordal, umboðsmaður barna kom í heimsókn í Grundaskóla mánudaginn 2. mars ásamt fylgdarliði og fundaði með fulltrúum í nemendaráði skólans. Á fundinum var farið yfir ýmis hagsmunamál barna og rætt um margvísleg mál er varða nemendur skólans. Meðal annars var farið ítarlega yfir aðstöðumál í sundlauginni á Jaðarsbökkum. Fundurinn var mjög vel heppnaður og í lok dagskrár fengu gestirnir kynningu á skólanum og þeirri þjónustu sem hér er veitt. Við þökkum fyrir ánægjulega heimasókn og góðar samræður.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
2. mars 2026
Starfið í Grundasel hefur gengið vel í vetur. í dag eru 110 börn úr 1. og 2.bekk skráð í frístund og því alltaf mikið líf og fjör. Við erum í samvinnu verkefni við skólann og fáum til okkar krakka úr unglingadeildinni sem hafa valið frístundastarf sem valnámskeið, það hefur slegið í gegn hjá okkar börnum. Í Grundasel höfum við brallað ýmislegt í vetur og hlökkum til að þróa starfið enn betur með hækkandi sól.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
18. febrúar 2026
Við viljum minna á að skipulagsdagur er á morgun fimmtudag, 19.febrúar. Strax í kjölfarið hefst vetrarfrí í Grundaskóla, föstudaginn 20.febrúar og mánudaginn 23.febrúar. Skólinn hefst aftur samkvæmt stundaskrá Þriðjudaginn 24.febrúar. Myndir af Öskudegi í Grundaskóla 2026 fá að fylgja hér með.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
17. febrúar 2026
Það er hefð fyrir því í 7. bekk að taka þátt í upplestarkeppni. Í síðustu viku fóru fram bekkjarkeppnir í upplestrarkeppninni en úr hverjum bekk komust svo sex nemendur áfram. Í lok febrúar verður forkeppnin haldin en þá stíga þessir 18 nemendur á svið sem komust áfram í þá keppni. Allir nemendur í 7.bekk tóku þátt með einhverju móti og stóðu allir sig frábærlega vel. Í byrjun mars verður lokakeppnin haldin í Tónberg og þar hittum við í Grundaskóla keppendur úr Brekkubæjarskóla. Um þessar mundir eru nemendur einnig að taka þátt í teikni-keppni en þar er verið að leita eftir mynd á boðskortið fyrir Tónbergs keppnina.






