Glæsileg uppskera og frábær stemning á Kvikmyndahátíð Grundaskóla 2026

Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 8. júní 2026

Kvikmyndahátíð Grundaskóla, sem fram fór dagana 1. til 8. júní, tókst vonum framar. Dagskrá hátíðarinnar var fjölbreytt og metnaðarfull og ríkti mikil ánægja með hvernig til tókst. Allir dagskráliðir gengu ótrúlega vel og sýndu nemendur einstakan áhuga og sköpunargleði.


Hátíðin hófst mánudaginn 1. júní með afar líflegu spjalli við Jóel Þór Jóhannesson. Jóel ræddi við nemendur í 8.–10. bekk um gerð myndefnis fyrir samfélagsmiðla og mikilvægi samfélagsmiðlaöryggis. Umræðurnar voru bæði gagnlegar og skemmtilegar, og voru nemendur duglegir við að koma með góðar spurningar.
Miðvikudaginn 3. júní hélt dagskráin áfram í Bíóhöllinni með viðburðinum UngRIFF x Dýnamík sviðslistaskóli, þar sem myndirnar Tólf og Heimavist voru sýndar, og fengu nemendur tækifæri til að ræða beint við leikstjóra í kjölfarið.


Fimmtudaginn 4. júní var boðið upp á pallborðsumræður í samstarfi við Kvikmyndaskólann. Þar mættu þeir Gunnar Björn og Þorsteinn Bachmann og spjölluðu við 8.–10. bekk. Nemendur Grundaskóla sýndu mikla virkni og nýttu tækifærið vel til að fræðast um heim kvikmyndagerðar.


Frábært hátíðarkvöld

Hápunktur hátíðarinnar var án efa sýningarnar, þar sem afrakstur nemenda var sýndur á stóra skjánum. Sýningarnar voru hreint út sagt frábærar og mætingin góð, sérstaklega á fyrri sýninguna hjá 4.–7. bekk. Nemendafélagið hélt uppi stemningunni með sjoppu og kvikmyndakahooti, þar sem keppt var um flottan vinning. Vegna þess hve vel tókst til er það klárt mál að við munum halda áfram að bjóða yngri nemendum skólans að taka þátt í hátíðinni.


Hátíðinni lauk svo með 24 Hour Challenge dagana 5. og 8. júní, þar sem nemendur úr Fjölbrautarskólanum við Ármúla (FÁ) komu í heimsókn á vordögum og stýrðu verkefni þar sem nemendur spreyttu sig á því að búa til stuttmynd á aðeins sólarhring.


Úrslit og verðlaunahafar

Dómnefnd átti siður en svo auðvelt verk fyrir höndum, en eftirfarandi verk og nemendur hlutu opinbera viðurkenningu og verðlaun á hátíðinni í ár:


Yngri nemendur:

  • Besta handritið: Sumarbústaðaruglið
  • Besta klippingin: Innbrotið í skólann
  • Frumlegasta hugmyndin: Fréttatíminn 

Unglingadeild:

  • Besta myndin, besta handritið og besta kvikmyndatakan: Framboð Frostasonar
  • Besta klippingin: Skuld
  • Besti leikur í aðalhlutverki: Róbert Kári Örnólfsson
  • Besti leikur í aukahlutverki: Albert Hrafn Lúðvíksson

Í dómnefnd hjá okkur í ár voru þau Lilja Margrét Riedel og Kristján Alexander Reiners hjá 4.-7.bekk og hjá 8.-10.bekk voru þau Heiðar Mar Björnsson, Lára Magnúsdóttir og Salvör Bergmann. Salvör var fulltrúi RIFF í dómnefnd. Við þökkum þeim kærlega fyrir að taka þetta verkefni að sér.


Innilegar þakkir

Kvikmyndahátíð Grundaskóla vill að lokum færa innilegar þakkir til samstarfsaðila okkar sem gerðu þennan viðburð mögulegan: Kvikmyndaskólinn, RIFF og Fjölbrautarskólinn við Ármúla.



Einnig fá styrktaraðilar hátíðarinnar okkar bestu þakkir fyrir að styðja við bakið á ungu kvikmyndagerðarfólki með glæsilegum verðlaunum. Við stefnum ótrauð á að gera hátíðina enn stærri og flottari að ári!

Eftir Heiða Viðarsdóttir • 21. október 2026
Grundaskóli tekur þátt í þróun nýs námsumsjónarkerfis í samstarfi við Comenius Grundaskóli tekur nú þátt í spennandi þróunarverkefni í samstarfi við sprotafyrirtækið Comenius, sem vinnur að gerð nýs námsumsjónarkerfis fyrir skóla. Markmiðið er að draga úr tímafrekri skráningarvinnu og bæta upplýsingaflæði milli heimila og skóla. Gangi áætlanir eftir gæti fyrsta útgáfa kerfisins verið tilbúin á fyrstu mánuðum næsta árs. Stjórnendur og starfsfólk Grundaskóla hafa um árabil haft mikinn áhuga á að þróa og bæta þau stafrænu kerfi sem notuð eru í skólastarfi. Fyrir nokkrum árum réðst skólinn í metnaðarfulla tilraun með innleiðingu námsumsjónarkerfisins Weduc. Þótt sú innleiðing hafi ekki gengið að öllu leyti samkvæmt væntingum skilaði verkefnið dýrmætri reynslu og mikilvægum lærdómi sem nýtist nú í áframhaldandi þróunarstarfi. Nú hefur þráðurinn verið tekinn upp að nýju með samstarfi við sprotafyrirtækið Comenius. Unnið er að þróun nýs námsumsjónarkerfis í nánu samstarfi við teymi skólafólks, þar sem reynsla og þarfir þeirra sem starfa í skólum eru hafðar að leiðarljósi. Einfaldara skólastarf og betra upplýsingaflæði Stefnt er að því að Comenius geti í framtíðinni leyst Mentor af hólmi og boðið upp á nútímalegri og skilvirkari lausnir fyrir skólasamfélagið. Áhersla er lögð á að draga úr tvíverknaði, spara starfsfólki tíma og auðvelda samskipti og upplýsingamiðlun milli skóla og heimila. Einn af helstu kostum kerfisins er fyrirhuguð samþætting við önnur stafræn kerfi sem skólar nýta nú þegar. Comenius er hannað til að sækja upplýsingar um nemendur, forráðamenn og skráningar beint úr Nemendagrunni og tengjast Google Classroom. Þannig er markmiðið að upplýsingar þurfi aðeins að skrá einu sinni og að þær birtist sjálfkrafa þar sem þeirra er þörf. Einnig eru fyrirhugaðar tengingar við námstól á borð við Læsi og Evolytes sem margir þekkja. Með þessu er stefnt að því að skapa heildstæðara og notendavænna starfsumhverfi fyrir kennara, stjórnendur, nemendur og foreldra. Comenius kynnt á lokadegi Startup SuperNova Fulltrúar Comenius tóku á þessu ári þátt í Startup SuperNova 2026, sex vikna viðskiptahraðli á vegum KLAK – Icelandic Startups, Nova og Huawei, með stuðningi frá Grósku. Á lokadegi hraðalsins, 18. september síðastliðinn, var Comenius kynnt og fyrsta útgáfa kerfisins sýnd. Þar gafst tækifæri til að kynna hugmyndafræðina að baki verkefninu og þá möguleika sem nýtt námsumsjónarkerfi getur skapað fyrir íslenskt skólastarf. Spennandi skref í þróun skólastarfs Samstarfið við Comenius er liður í þeirri viðleitni Grundaskóla að leita stöðugt leiða til að þróa skólastarfið og nýta tæknina á markvissan hátt. Mikilvægt er að stafræn kerfi þjóni þörfum skólasamfélagsins, séu einföld í notkun og styðji við það sem mestu máli skiptir – nám, kennslu og farsæl samskipti. Enn er töluverð þróunarvinna fram undan, en verkefnið lofar góðu og verður áhugavert að fylgjast með framgangi þess á næstu mánuðum.  Áhugasamir geta horft á upptöku af kynningu Comenius á lokadegi Startup SuperNova hér: Horfa á kynningu Comenius
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 21. október 2026
Í 9. og 10. bekk er verið að vinna eftir kennsluaðferðinni að skapa hugsandi skólastofu í stærðfræði. Ein af þrautunum sem lögð var fyrir nemendur var að þau fengu fjóra fjarka og verkefni þeirra var að setja einhverjar reikniaðgerðir á milli þannig þau fengju svör frá 1 og upp í 10. 4 4 4 4 = 1 4 4 4 4 = 2 4 4 4 4 = 3 o.s.frv.  Þessi þraut reyndi töluvert á nemendur og var því ákveðið að framlengja verkefnið fram á gang í keppni á milli nemenda. Í verkefninu sem hengt var fram á gang þurftu nemendur að finna svör frá 11-100. Einnig var auka blöðum bætt til hliðar þar sem nemendur gátu skráð ef þau hefðu aðrar lausnir en þær sem þegar voru uppkomnar. Sigurvegari þessarar þrautar var Daði Rafn Reynisson í 9. bekk en hann kom með svör við hvorki meira né minna en 111 dæmum. Í öðru sæti var Tinna María Sindradóttir nemandi í 10. bekk. Vel gert krakkar.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 16. október 2026
… nú hefst ævintýrið! Við auglýsum eftir hugmyndum fyrir uppsetningu á frumsömdum nýjum söngleik sem fyrirhugað er að setja upp skólaárið 2027-2028 í Grundaskóla. Við leggjum af stað með tvær hendur tómar, en vonandi fullt af hugmyndum í farteskinu. Ekkert handrit, engin lög og engin fyrir fram ákveðin saga – bara opinn hugur, sköpunarkraftur og ótal möguleikar. Hvernig söngleik langar okkur að skapa? Hvaða sögu viljum við segja? Hvaða persónur, tónlist, húmor og ævintýri gætu orðið hluti af sýningunni? Við erum rétt að hefja ferðalagið og viljum fá sem flesta með okkur. Öll stór ævintýri byrja á lítilli hugmynd. 🎶 Tökum fyrsta skrefið saman – sköpum nýjan söngleik í Grundaskóla! 🎶  🎭 Engin saga - Engin lög - Engin takmörk. Enn sem komið er! Við ætlum að: Safna hugmyndum frá nemendum, starfsfólki og öllu skólasamfélaginu. Kalla saman öflugt og skapandi teymi sem hefur áhuga á að taka þátt í verkefninu. Skoða hugmyndirnar, velta upp möguleikum og finna sameiginlega stefnu. Leggja grunn að nýjum, frumsömdum söngleik sem verður til í skapandi samstarfi í skólanum okkar.
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 16. október 2026
Mikið hefur borið á því að nemendur okkar sjáist illa í myrkrinu og framundan eru myrkustu mánuðir ársins. Til að forðast slys viljum við að allir taki umræðuna með börnum sínum um mikilvægi endurskinsmerkja og tryggja að þau séu notuð. Það er staðreynd að ökumenn sjá gangandi vegfarendur með endurskinsmerki fimm sinnum fyrr en ella og því getur notkun þeirra skilið milli lífs og dauða.  Einnig viljum við ítreka beiðni um að nota ávallt gangbraut þegar farið er yfir akbraut. Sýnum öll aðgát í umferðinni - Við viljum öll koma heil heim.
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 16. október 2026
Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá á Vökudögum Það verður sannkölluð menningarveisla á Vökudögum sem fram fara dagana 22. október til 1. nóvember. Fjölbreytt dagskrá verður í boði fyrir alla aldurshópa og ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Á meðal þess sem boðið verður upp á eru fjölbreyttar listasýningar víðs vegar um bæinn, tónleikar, kvikmyndasýningar og skemmtilegar smiðjur fyrir börn og fjölskyldur þeirra, svo fátt eitt sé nefnt. Við vekjum sérstaka athygli á fimm frístundatilboðum fyrir nemendur og foreldra tengt Opna skólanum. Sjá: https://www.vokudagar.is/vidburdir/opni-skolinn-list--og-verkgreinar-grundaskoli Vökudagar eru kjörið tækifæri fyrir fjölskyldur til að njóta samveru, upplifa menningu og listir og taka þátt í fjölbreyttum viðburðum. Heimasíða Vökudaga Áhugafólk um hátíðina er hvatt til að kynna sér dagskrána á heimasíðu Vökudaga, www.vokudagar.is , þar sem finna má upplýsingar um þá fjölmörgu viðburði sem verða í boði. Foreldrar og forráðamenn eru sérstaklega hvattir til að skoða dagskrána með börnum sínum og finna saman eitthvað skemmtilegt til að taka þátt í. Einnig má fylgjast með fréttum og viðburðum á Facebook-síðu Vökudaga .  Takið dagana frá og njótið fjölbreyttrar menningar- og fjölskyldudagskrár á Vökudögum!
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 14. október 2026
Uppsetning á söngleik er samvinnuverkefni skólasamfélags og í Grundaskóla iðar allt af lífi langt fram á nótt og allir glaðir. Hér erum við að ræða um Opinn skóla 😊
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 14. október 2026
Nú eru Förustafirnir farnir að stækka það mikið að óhætt er að taka þá úr búrinu. Þeir vekja mikla lukku hjá mörgum nemendum sem vilja ólmir taka þá til sín og leyfa þeim að vera með sér á meðan þeir eru í kennslustund.  Förustafirnir eru farnir að fá hin ýmsu nöfn á meðan þeir eru að læra með nemendum. Það er gaman að fylgjast með áhuga nemenda á þessu saklausu dýrum í náttúrfræðistofunni.
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 12. október 2026
Nokkrir áhugasamir lestrarhestar í 5. bekk taka þátt í bókaklúbbi sem hittist einu sinni í viku. Þar hafa þær kynnt uppáhaldsbækur sínar fyrir hvor annarri, lesið upp úr bókum og eru nú byrjaðar í samlestri. Um þessar mundir er hópurinn að lesa bókina Silfurlykilinn eftir Sigrúnu Eldjárn og hafa skapast líflegar og skemmtilegar umræður um söguna.  Bókaklúbburinn er hluti af verkefninu Opni skólinn.
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 9. október 2026
Á níunda hundrað manns, nemendur Grundaskóla, starfsfólk og gestir komu í dag og dönsuðu saman í tilefni 45 ára afmælis skólans.  Hér ríkir bæði gleði og samstaða. 😍 😍 😍
Eftir Heiða Viðarsdóttir • 9. október 2026
Kvöld og um helgar vinna foreldrar í samvinnu við börn sín og starfsfólk skólans að uppsetningu á söngleiknum Frelsi. Takk fyrir samvinnuna gott fólk - Við erum sterk liðsheild í Grundaskóla
Show More