Vinaverkefni í 2.bekk
Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 13. mars 2026

Nemendur í 2. bekk unnu á dögunum vinaverkefni þvert á árgang eða með bekkjarfélugum. 2-3 nemendur unnu saman, teiknuðu mynd af sér og skrifuðu vinasögu. Skemmtileg vinna sem reyndi á samvinnu, skipulagningu, hjálpsemi, þolinmæði og hugmyndaflug.
Nemendur þurftu að koma sér saman um hverning myndin ætti að vera og semja söguna saman. Sumir eru góðir í að semja sögu, aðrir eru góðir í að skrifa en öll getum við eitthvað og með því að vinna saman getum við lært hvert af öðru.
Saman erum við sterkari. 😊

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
11. mars 2026
Þessa dagana stendur yfir skemmtilegt Zentangle teikni og listanámskeið fyrir börn og foreldra tengt starfsemi opna skólans í Grundaskóla. Námskeiðunum er ætlað að gefa foreldrum og börnum tækifæri til að mæta og vinna einhver skemmtileg verkefni saman og læra eitthvað nýtt og spennandi. Í vetur höfum við boðið upp á nokkur námskeið um hin ýmsu viðfagsefni og hefur þátttaka verið mjög góð til þessa. Á næstu dögum verða ný tilboð send út og hvetjum við foreldra til að stökkva á þessi frábæru tilboð og gera eitthvað skemmtilegt og uppbyggjandi með börnunum sínum.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
3. mars 2026
Salvör Nordal, umboðsmaður barna kom í heimsókn í Grundaskóla mánudaginn 2. mars ásamt fylgdarliði og fundaði með fulltrúum í nemendaráði skólans. Á fundinum var farið yfir ýmis hagsmunamál barna og rætt um margvísleg mál er varða nemendur skólans. Meðal annars var farið ítarlega yfir aðstöðumál í sundlauginni á Jaðarsbökkum. Fundurinn var mjög vel heppnaður og í lok dagskrár fengu gestirnir kynningu á skólanum og þeirri þjónustu sem hér er veitt. Við þökkum fyrir ánægjulega heimasókn og góðar samræður.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
2. mars 2026
Starfið í Grundasel hefur gengið vel í vetur. í dag eru 110 börn úr 1. og 2.bekk skráð í frístund og því alltaf mikið líf og fjör. Við erum í samvinnu verkefni við skólann og fáum til okkar krakka úr unglingadeildinni sem hafa valið frístundastarf sem valnámskeið, það hefur slegið í gegn hjá okkar börnum. Í Grundasel höfum við brallað ýmislegt í vetur og hlökkum til að þróa starfið enn betur með hækkandi sól.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
18. febrúar 2026
Við viljum minna á að skipulagsdagur er á morgun fimmtudag, 19.febrúar. Strax í kjölfarið hefst vetrarfrí í Grundaskóla, föstudaginn 20.febrúar og mánudaginn 23.febrúar. Skólinn hefst aftur samkvæmt stundaskrá Þriðjudaginn 24.febrúar. Myndir af Öskudegi í Grundaskóla 2026 fá að fylgja hér með.























