Verðandi nemendur í 1. bekk Grundaskóla
Fundur í sal Grundaskóla 24. ágúst nk.
Ágætu foreldrar/forráðamenn verðandi nemenda í 1. bekk
Haldinn verður fundur með foreldrum/forráðamönnum í sal Grundaskóla, mánudaginn 24. Ágúst kl. 17:30.
Þar verður farið yfir skipulagið í 1.bekk, þjónustu frístundar Grundasels og annað.
Kennarar í 1. bekk eru, Elín Björk Davíðsdóttir, Lára Dóra Valdimarsdóttir og Ragnheiður Þórðardóttir.
Sótt er um í frístundina Grundasel, rafrænt inn á vef Akraneskaupstaðar.
Skráning fer fram hér: Vala frístund - Umsóknarvefur
Þann 25. ágúst er skólasetning og gert er ráð fyrir því að skólafrístund hefjist í þeirri viku. Skráning opnar 1. júní og fer fram í Völu. Öll börn munu fá pláss en ekki er hægt að tryggja pláss frá skólabyrjun ef umsóknir koma eftir 28.júní.
Við vekjum athygli á því að skólinn útvegar öllum nemendum ritföng og námsgögn sem eru geymd í skólanum. Margir nemendur hafa samt valið að vera með eigið pennaveski.
Við hlökkum til samstarfsins.
Kær kveðja frá okkur í Grundaskóla










