Skipulagsdagur og vetrarfrí

Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 18. febrúar 2026

Við viljum minna á að skipulagsdagur er á morgun fimmtudag, 19.febrúar.
Strax í kjölfarið hefst vetrarfrí í Grundaskóla, föstudaginn 20.febrúar og mánudaginn 23.febrúar.
 
Skólinn hefst aftur samkvæmt stundaskrá Þriðjudaginn 24.febrúar.


Myndir af Öskudegi í Grundaskóla 2026 fá að fylgja hér með.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 19. maí 2026
Í dag fengu nemendur í 10.bekk heimsókn frá Samfélagslögreglunni á Vesturlandi með fræðslu um vímuefnavarnir.  Markmið fræðslunnar er: Að nemendur þekki raunverulega stöðu notkunar algengum vímuefnum meðal unglinga. Að nemendur skilji afleiðingar af notkun vímuefna og ávanabindandi efna m.a. nikótíns og áfengis. Að nemendur æfi sig í að standast hópþrýsting og segja nei. Að nemendur passi upp á vini sína. Við þökkum Garðari kærlega fyrir komuna og tímann sem hann gaf sér í að spjalla við unglingana eftir fræðsluna.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 15. maí 2026
Við í 7.bekk fórum í Reykjaskóla mánudaginn 4.maí og komum heim fimmtudaginn 7.maí, ásamt skólunum í Höfn í Hornafirði og Kirkjubæjarklaustri. Við gerðum ýmislegt skemmtilegt saman t.d. hlusta á sögu um Grettir, fórum á Byggðasafnið, spiluðum gaga bolta og fórum í allskonar hópeflisleiki. Einnig var sundlaugar partí þar sem flestir fóru ofan í og það kom froðuvél, tískusýning þar sem krakkar voru klæddir upp í búninga og málaðir og ball þar sem allir sungu, dönsuðu og höfðu gaman. Ferðin gekk mjög vel og allir skemmtu sér vel.
Eftir Heiða Viðarsdóttir 13. maí 2026
Í dag fórum við í sveitaferð að Miðdal í Kjós. Við fengum mjög góðar móttökur og dagurinn var frábær í alla staði. Veðrið lék við okkur og börnin nutu sín vel í sveitinni. Gillaðar voru pylsur í hádeginu og allir fengu svala og kex.  Hér fylgja nokkrar myndir með:
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 13. maí 2026
Í gær fengum við í 1. bekk góða heimsókn frá Kiwanis. Við fengum fræðslu um mikilvægi notkunar reiðhjólahjálma. Þau gáfu okkur einnig reiðhjólahjálma, buff og endurskinsmerki. Við erum Kiwanis afar þakklát.  Takk fyrir okkur. Kveðja 1. bekkur
Eftir Heiða Viðarsdóttir 12. maí 2026
Í dag breyttist skólastarfið aðeins þegar allir nemendur og starfsfólk skólans tóku þátt í sameiginlegum tiltektardegi í kringum skólann. Nemendur unnu saman í hópum og lögðu sig fram við að gera skólalóðina og nærumhverfið fallegra. Stemningin var góð og gaman að sjá hvað samvinna, dugnaður og jákvætt viðhorf geta skilað miklu. Svona dagar minna okkur á mikilvægi þess að bera sameiginlega ábyrgð á umhverfinu okkar.  Við erum afar stolt af okkar öflugu nemendum og starfsfólki sem tóku virkan þátt í deginum.
Eftir Heiða Viðarsdóttir 12. maí 2026
Hin árlega stærðfræðikeppni grunnskóla á Vesturlandi sem FVA stendur fyrir, fór fram 17. apríl sl og tóku 114 nemendur þátt. Innilega til hamingju með frábæran árangur Úrslit á heimasíðu FVA
Eftir Heiða Viðarsdóttir 11. maí 2026
10. bekkur fór í vel heppnaða og skemmtilega lokaferð í Skagafjörðinn í síðustu viku. Veðrið lék við okkur, þótt það hafi verið kalt og léku nemendur á alls oddi í þrautabraut, fljótasiglingu og litabolta. Þess á milli fengu nemendur frjálsan tíma sem var meðal annars vel nýttur í sund- og sjoppuferðir, körfubolta og almenna afslöppun. Stemningin í hópnum var frábær og nemendur stóðu sig með miklum sóma alla ferðina. Það var gaman að sjá hversu vel þau nutu samverunnar og sköpuðu skemmtilegar minningar saman á þessum síðustu vikum grunnskólagöngunnar. Við fengum frábærar móttökur á Bakkaflöt og í félagsheimilinu Miðgarði – þökkum kærlega fyrir okkur!! Frábær endapunktur á vetrinum.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 11. maí 2026
Grundaskóli tók þátt í skólahreysti miðvikudaginn 6 maí í íþróttahúsinu Varmá í Mosfellsbæ. Lið Grundaskóla var skipað 7 hressum krökkum úr 9.bekk. Ólöf Oddný Jenssen, Stefanía Rakel Engilbertsdóttir, Hekla María Davíðsdóttir, Linda María Márusdóttir, Breki Þór Ellertsson, Styrmir Líndal Gíslason og Viktor Hugi Sigurgeirsson. Krakkarnir stóðu sig mjög vel og gerðu sitt allra besta.  Klapplið Grundaskóla var frábært en það voru rúmlega 90 nemendur að hvetja, einnig var lið Brekkó að keppa líka og það var frábært að sjá samstöðu nemenda Grundó og Brekkó þar sem allir sameinuðust í því að hvetja bæði lið skagakrakkana áfram.
Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir 11. maí 2026
Dagana 4.-7. maí voru kennarar frá Þýskalandi í heimsókn. Ferð þeirra var í gegnum Erasmus. Þeir voru mjög hrifnir af skólanum og höfðu orð þá því hversu þrifalegt væri í skólanum, hversu vel mannaður skólinn væri og að allur aðbúnaður væri góður.  Alltaf gaman og fróðlegt að taka á móti gestum.
Eftir Snorri Kristleifsson 8. maí 2026
Söngleikurinn Smellur er kominn á YouTube rás Grundaskóla. Söngleikurinn var fluttur af 10. bekk (árgangi 2010) á sal Grundaskóla í nóvember. Smellur var gríðarlega vel sóttur en uppselt var á nær allar 10 sýningar. Höfundar: Einar Viðarsson, Flosi Einarsson og Gunnar Sturla Hervarsson Leikstjórn: Einar Viðarsson Tónlistarstjórn: Flosi Einarsson Söngstjórn: Elfa Margrét Ingvadóttir og Margrét Saga Gunnarsdóttir Danshöfundur: Sandra Ómarsdóttir Búningahönnun: Eygló Gunnarsdóttir Hér má nálgast leikskrána
Show More