Frístund flytur í Grundasel á ný
Heiða Viðarsdóttir • 29. september 2026

Frístund Grundaskóla hefur flutt starfsemi sína á ný yfir í Grundasel og verður þar til að annað er ákveðið.
Miklar framkvæmdir voru fyrirhugaðar á Grundaseli og því starfsemin flutt tímabundið inn í aðalbyggingu Grundaskóla. Þessum framkvæmdum hefur nú verið frestað um óákveðin tíma.
Fyrstu vikurnar hafa verið flóknar því hátt í 150 nemendur og starfsmenn koma saman í frístund skólans og aðstæður í aðalbyggingunni réðu illa við það samhliða hefðbundinni skólastarfsemi.
Frístund er því komin aftur heim á Grundasel og fer miklu betur um alla aðila, bæði yngri og þá sem eldri eru.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
28. september 2026
Það er samstarfsverkefni heimilis og skóla að tryggja börnum farsælt lestrarnám og góða lestrarfærni. Lestur er undirstaða alls náms og því mikilvægt að þjálfun hans fari jafnt fram í skóla og heima. Heimaþjálfunin eykur líkur á árangri. Hér eru tillögur að heimaþjálfun sem FLÍS félag læsisfræðinga á Íslandi tók saman.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
25. september 2026
Nemendur í unglingadeild voru duglegir í heimilisfræðinni og útbjuggu tortillupönnukökur alveg frá grunni ásamt fjölbreyttu meðlæti. Þau fengu tækifæri til að vinna sjálfstætt, prófa sig áfram og sjá hvernig einföld hráefni verða að góðri máltíð. Markmiðið var að nemendur læri að gera sjálfir og vita hvað er í matnum sem þau borða . Með því að útbúa matinn frá grunni fá þau betri innsýn í hráefnin, matreiðsluna og mikilvægi þess að geta bjargað sér í eldhúsinu. Nemendur ganga vel um eldhúsið, halda vinnusvæðinu hreinu og leggja metnað í að ganga frá eftir sig. Það skilar sér í notalegu og góðu vinnuumhverfi þar sem allir geta notið sín.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
25. september 2026
Ólympíuhlaup ÍSÍ 2026 fór fram í flestum skólum landsins á síðustu dögum og tóku þúsundir nemenda og starfsmanna skólakerfisins sprettinn í nafni heilsueflingar. Nemendur Grundaskóla hlutu á dögunum viðurkenningu ÍSÍ fyrir að hlaupa samtals 3302 km.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
18. september 2026
Nemendur í 2. og 8. bekk tóku nýlega þátt í skemmtilegri útikennslu þar sem áhersla var lögð á samvinnu, samskipti og tengsl milli árganga . Nemendur unnu saman í blönduðum hópum og tókust á við náttúru-bingó þar sem þau þurftu að leita að ýmsu í umhverfinu. Meðal annars þurftu þau að fylgjast vel með náttúrunni, finna mismunandi hluti og leysa verkefnin í sameiningu. Verkefnið gaf nemendum tækifæri til að kynnast hvert öðru, hjálpast að og læra hvert af öðru. Eldri nemendur fengu tækifæri til að leiðbeina og styðja þau yngri, á meðan 2. bekkur komu með forvitni, gleði og mikinn áhuga á verkefninu. Það var gaman að sjá hversu vel nemendur unnu saman og hvernig samvinna og góð samskipti gerðu útikennsluna bæði fræðandi og skemmtilega .

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
18. september 2026
Í gær fengum við þær Evu Rún Þorgeirsdóttur, rithöfund, og Blæ Guðmundsdóttur, teiknara og barnabókahöfund, í heimsókn í Grundaskóla. Þær kynntu fyrir nemendum í 1.–7. bekk Svakalegu lestrarkeppnina, sem nú er hafin og við í Grundaskóla tökum auðvitað þátt. Við hvetjum alla nemendur og foreldra til að taka höndum saman og vera einstaklega dugleg að lesa saman. Keppnin stendur til 6. október , svo nú er um að gera að grípa í góða bók og lesa sem mest.









