Einelti einkennist af ójafnvægi eða misbeitingu valds sem getur birst með margvíslegum hætti, þar sem einn aðili eða fleiri fara
ítrekað og með ásetningi yfir mörk annars aðila.
Hegðunin getur falist í líkamlegu, andlegu, rafrænu og félagslegu áreiti eða ofbeldi, þar á meðal félagslegri einangrun.
Skökk samskipti eru neikvæð samskipti sem valda vanlíðan, óöryggi eða útilokun, án þess að öll skilyrði eineltis séu uppfyllt.