Skólablað Grundaskóla á rafrænu formi
Púlsinn 2024
Fréttir
Árgangar
Myndbönd
Barnaþing
Það voru öflugir fulltrúar frá Grundaskóla á Barnaþinginu sem haldið var í Hörpunni. Barnaþingið er ætlað að efla börn til þátttöku í lýðræðislegri umræðu um málefni sem snerta þau og veita sjónarmiðum þeirra farveg inn í almenna stefnumótun og þjóðfélagsumræðu.
Við erum afar stolt af okkar nemendum en þeir eru Emilía Kristín Guðjónsdóttir í 10. bekk, Alexander Almarsson í 9. bekk og Halldór Emil Unnarsson í 7. bekk.

Bekkjarfundir
Í Grundaskóla er lögð áhersla á vikulega bekkjarfundi í öllum árgöngum. Nemendur sitja í hring og umsjónarkennari stýrir fundunum. Farið er yfir fundarreglur í upphafi fundar, s.s. að rétta upp hönd, allir hafa leyfi til að tjá sig og fá tækifæri til þess, bera virðingu fyrir skoðunum annarra þó maður sé ekki sammála o.s.frv.
Markmiðið er m.a. að kenna nemendum lausnaleit á lýðræðislegan og félagslegan hátt, þjálfa þá í að tjá eigin þarfir og tilfinningar og ræða sameiginleg gildi og viðhorf bekkjarins. Bekkjarfundir er góður vettvangur fyrir nemendur að ræða hvað þeir myndu vilja hafa öðruvísi og einnig það sem þeir eru ánægðir með í skólanum. Nemendur finna í sameiningu leiðir til að leysa mál og skapa jákvæðari bekkjar- og skólabrag.
Bekkjarfundir eru hluti af forvarnaráætlun Grundaskóla.

Bókasafnið
Það er alltaf líf og fjör á bókasafninu í Grundaskóla og hefur veturinn verið viðburðarríkur.
Hér hefur farið fram ýmiskonar starf, t.d. hefur hluti af yngsta stiginu hefur fengið fræðslu frá kennara um bókasafnið og unnið í verkefnabók því tengdu.
Tölvurýmið er í stöðugri notkun en þar hefur skipulögð upplýsingatæknikennsla farið fram hjá 4, 5, 6 og 7. bekk, auk þess sem unglingar hafa unnið að úrvinnslu verkefna sinna í kvikmyndavali. Eldri nemendur eru duglegir að nýta sér aðstöðu bókasafnsins í ýmsa verkefnavinnu.
Við höfum gert okkar besta til að hvetja börnin til lesturs og lagt okkur fram við að aðstoða þau að finna bækur sem vekja áhuga þeirra. Til að auðvelda börnunum leitina og auka sjálfstæði þeirra við að finna bók höfum við unnið að sjónrænni uppsetningu. Við höfum einnig verið að prófa okkur áfram með að merkja bækur sérstaklega sem hafa hentað börnum með lesblindu.
Þematengdar uppstillingar hafa fengið jákvæð viðbrögð í vetur. Síðustu vikur höfum við stillt upp bókum um styrkleika og ævintýri.
Höfundur mánaðarins var verkefni sem við unnum með í haust, þá stilltum við fram bókum eftir ýmsa höfunda ásamt mynd af viðkomandi og fróðleiksmolum. Vissuð þið að Sigrún Eldjárn hefur skrifað 54 barnabækur og að hún myndskreytir bækurnar sínar sjálf.
Safnkosturinn okkar er nokkuð stór, við höfum verið dugleg að kaupa nýjar og spennandi bækur en á sama tíma höfum við verið dugleg að vekja athygli á eldri bókum því þessar gömlu og góðu eru alls ekki síðri en þær nýju.
Árgangar mæla með var verkefni sem við prófuðum um miðjan vetur. Árgangarnir tóku þá saman bókatitla sem þeim þóttu skemmtilegir og gáfu stutta umsögn um bókina. Bókunum var svo stillt upp hér á bókasafninu en meðmælin nýttust öðrum nemendum vel við val á bók.
Yngstu börnunum var boðið í sögustundir, rúm prinsessunnar á bauninni prýddi hornið okkar á meðan leikritið Úlfur, úlfur var í sýningu. Það er svo óhætt að segja að sögustund í teppatjaldinu hafi slegið í gegn.
Kosning bókaverðlauna barnanna fór fram í mars, börnin sýndu henni mikinn áhuga og gaman að sjá hversu dugleg þau voru að kynna sér þær bækur sem kosið var um. Í lok kosningarinnar drógum við úr kosningaseðlum og veittum bókaverðlaun.
Í mars hófum við samstarf við bókasafn móðurmáls og höfum því getað boðið upp á úkraínskar, arabískar, litháískar og spænskar bækur auk þeirra pólsku sem safnið okkar á nú þegar.





Breytum krónum í gull
Árlegi góðgerðardagurinn til styrktar hjálparstarfi var haldinn 23. nóvember frá klukkan 11:30-13:00. Rauði krossinn hefur umsjón með að úthluta þeim fjármunum sem safnast og undanfarin ár hafa fjármunir farið til Malaví, alls söfnuðust 1.019.862 krónur.
Markaðurinn var haldinn í íþróttahúsinu, því fjöldi gesta hefur verið það mikill. Kaffihús var á staðnum sem 9. bekkur sá um að selja kökur og drykki. Skólakórinn og nemendur í tónlistarvali munu tróðu upp.
Eins og fyrri ár sá 7. bekkjar nemendur um að selja varninginn. Lagt er upp úr að nemendur búi til hluti sem kostar ekki mikið að búa til.
Dagur gegn einelti
8. nóvember er ár hvert tileinkaður degi gegn einelti en markmiðið með deginum er m.a að efna til umræðu, fræðslu og viðburða til að vinna gegn einelti, hvetja til jákvæðra samskipta og efla vináttu. Nemendur og starfsfólk Grundaskóla tekur þátt í þessum degi ár hvert og í ár dönsuðu allir saman í íþróttahúsinu við mikla lukku. Þennan dag hafa grunnskólar bæjarins reynt að vinna saman að viðburði þar sem allir koma saman og hittast. Eftir hádegi þennan dag fór því Grundaskóli í skrúðgönu niður á stjórnsýsluhúsi, þar sem við hittum nemendur og starfsfólk Brekkubæjarskóla. Þar trommuðum við saman í sjö mínútur undir leiðsögn trommusveitar skólanna, ein mínúta fyrir hvern dag sem við öll viljum hafa eineltislausan í hverri viku.
Góður dagur þar sem nemendur okkar voru til fyrirmyndar.
Fjölmenningarþema
Í þemavinnunni dagana 16.-18. apríl frá kl. 8:30-11:00 var lögð áhersla á fjölbreytt nám, bæði félagslegt- og verklegt. Nemendum var skipt upp í um 28 nemenda hópa þar sem 1., 3., 5., 7. og 9. bekkur og svo hins vegar 2., 4., 6., 8. og 10. bekkur unnu saman.
Hver hópur útbjó fána viðkomandi lands og hver nemandi teiknaði hjarta og skrifaði VINUR á viðkomandi tungumáli og allir lærðu sömu dansana.
Fjölbreytt vinna átti sér stað, t.d. foreldri frá Aruba kom og var með kynningu á landinu, Skakki turninn í Pisa búin til úr pappakössum, danskar byggingar byggðar úr Lego kubbum, úkraínskar brauðbollur bakaðar og þjóðdansar dansaðir og margt fleira.
Þemavinnan endaði úti í skrúðgöngu í lögreglufylgd og dansi á skólalóðinni á lokadegi þemavinnunar.
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla
Grundaskóli var tilnefndur til foreldraverðlauna Heimilis og skóla árið 2024 fyrir verkefnin Stefnan sett og söngleikinn Úlfur Úlfur.
Verkefnið Stefna sett er heildstætt verkefni þar sem námsgreinar eru samþættar og áherslan er á þætti eins og styrkleika, sjálfsþekkingu og áhugasvið. Verkefninu lauk síðan með að nemendur mættu í sviðsett atvinnuviðtal innan skólans.
Það var öflugt samstarf við foreldra í verkefninu. Þeir voru bæði góður stuðningur við börnin sín við gerð ferilskránna og í undirbúningi fyrir atvinnuviðtalið. Einnig héldu nokkrir foreldrar starfskynningar fyrir allan árganginn sem vakti mikla lukku meðal nemenda og starfsfólks.
Verkefnið Úlfur Úlfur var lokaverkefni nemenda í 10. bekk. Úlfur Úlfur er söngleikur þar sem allir nemendur tók þátt á einn eða annan hátt. Verkefninu lauk með nokkrum sýningum á sal skólans fyrir fullu húsi.
Það var einnig öflugt samstarf við foreldra í þessu verkefni. Foreldrar komu að mörgum verkum eins og t.d. uppsetningu á sviði, hárgreiðslu og förðun, eldamennsku, vinnu á sýningum, aðstoð við að sauma búninga ásamt fleiri verkefnum.
Við erum ótrúlega stolt af miklu og góðu samstarfi við foreldra. Saman erum við sterkari.
List og verkgreinar veturinn 2023-2024
Í mars 2023 fluttu list og verkgreinar í húsnæði þar sem leikskólinn Garðasel var til húsa og var nafninu breytt í Grundasel. Þar eru kenndar greinarnar heimilisfræði, myndmennt, textílmennt og tónmennt, aðrar list og verkgreinar eru kenndar á öðrum stöðum. Á Grundaseli hafa list og verkgreinar verið kenndar að morgni og eftir hádegi tekur Frístund við húsnæðinu. Aðstæður í vetur hafa verið mikil áskorun, m.a vegna þrengsla og fjarlægðar við skólann. Með hækkandi sól þá horfum við á nýjan skóla rísa og hlökkum til að byrja að kenna í nýjum og endurbættum stofum.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir úr starfinu á Grundaseli í vetur.
Skólahlaup Grundaskóla
Fimmtudaginn 7. september tóku nemendur og starfsfólk Grundaskóla þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ sem áður bar heitið Norræna skólahlaupið. Á hverju hausti setur ÍSÍ Ólympíuhlaupið formlega og í ár var það Grundaskóli sem varð fyrir valinu. Með Ólympíuhlaupi ÍSÍ er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Starfsfólk ÍSÍ mætti á staðinn ásamt Blossa lukkudýri Smáþjóðaleikanna á Íslandi. Allir stóðu sig vel og gerðu sitt besta. Sá sem hljóp lengst fór 15 km.
Uppbrot í íþróttakennslu Grundaskóla
Í vetur höfum við verið heppin að fá góða gesti í heimsókn. Í nóvember kom Jorgen Nilsson til okkar og kynnti fyrir nemendum sirkuslistir. Nemendur fengu m.a. að prófa juggl með boltum og slæðum, snúa diskum á priki, kasta höttum og margt fleira. Einnig fengum við til okkar kynningu á amerískum fótbolta í febrúar. Nemendur lærðu grunnatriði leiksins og fengu að prófa undir leiðsögn þjálfara. Báðar þessar heimsóknir voru mjög vel heppnaðar og nemendur sérlega áhugasamir og skemmtu sér vel.
Knex tæknismiðja
Hvernig virkar gírkassi? Hvernig flytjum við hreyfiorku frá vél út í hjól? Hvernig byggjum við upp næga stöðuorku til að rússíbanavagn geti runnið heilan hring eftir ákveðinni braut? Þessar spurningar eru á meðal þeirra sem við vörpum fram og leitum svara við þegar við byggjum úr Knex!
Knex kubbar eru skemmtileg námsgögn sem bjóða upp á óendanlega möguleika í vinnu með tækni, stærðfræði og eðlisfræði. Skólaárið 2023-2024 fengu allir nemendur í 7. bekk að spreyta sig á fjölbreyttum verkefnum með Knex kubbum, auk þess sem þeir voru í boði fyrir nemendur í Opna skólanum. Bílar, flugvélar, þyrlur, hringekjur, parísarhjól og rússíbanar voru á meðal þeirra fjölbreyttu tækja og bygginga sem litu dagsins ljós í þessari vinnu. Nemendur fengu tækifæri til að byggja eftir fyrirfram ákveðnum leiðbeiningum, en einnig að láta sköpunargáfuna njóta sín við að byggja hluti frá eigin brjósti.
Vinna með Knex kubbana krefst mikillar stærðfræðilegrar hugsunar, þótt við gerum okkur ekki alltaf endilega grein fyrir því. Við erum sífellt að finna út hvaða horn og hvaða lengdir henta til að koma byggingunni okkar saman eins og best þjónar tilgangi hennar, hvaða form henta best til að bæta stöðugleika hennar og hvernig við tryggjum að hún beri þann þunga sem henni er ætlað. Þessi stærðfræðivinna er fyrst og fremst unnin með höndunum, með því að prófa sig áfram og finna lausnir. Þar sem leiðbeiningar eru byggðar upp á myndum og númerum, þá geta nemendur sem tala mismunandi tungumál unnið saman í Knex á fullkomnum jafningagrundvelli.
Á skólaárinu stækkuðum við safnið okkar af Knex kubbum verulega og ætlum okkur að halda áfram að byggja þessa skemmtilegu og fjölbreyttu tæknismiðju upp á næstu árum.
Skólakór Grundaskóla
Við í skólakór Grundaskóla höfum haft nóg að gera þetta skólaárið. Við leiddum samsöng fyrir áramót með góðum árangri. Einsöngvarar úr röðum kórsins fengu að vera forsöngvarar og leiddu sönginn af mikilli ánægju. Síðan sungum við annars vegar á Fjölmenningarhátíð í október og á jólatónleikum í kirkjunni í desember við mikinn fögnuð áheyrenda.
Í kórnum eru stúlkur úr 1., 3., og 6. bekk. Við höfum blandaðar æfingar en það hefur gengið vel þar sem yngri hjálpa eldri og öfugt.
Við heimsóttum Höfða í tvígang við góðar undirtektir. Æfingar hafa gengið vel og munum við taka þátt í Barnamenningarhátíð þann 29.maí kl.17 og stjórna samsöng á bókasafninu. Við völdum lögin í samráði við kórstjóra, Lilju Margréti Riedel, þar af eitt frumsamið lag sem við sömdum sjálfar, lag og texta.
Eldri stúlkurnar í kórnum fengu að fara í dagsferð í Borgarnes þar sem sungið var í Brákarhlíð fyrir eldri borgara. Þá verðlaunuðum við okkur með sundferð, út að borða og heimsókn á Bjössaróló.
Leikrit nýbúa
Jólaleikrit nýbúa í Grundaskóla var flutt á íslensku og stóðu allir þátttakendur sig frábærlega og voru hylltir af öðrum nemendum skólans í lok sýningar.
Allur hópurinn fær hrós fyrir að leggja sig vel fram í íslenskunáminu og taka þátt í skólastarfinu okkar af heilum hug. Í lok sýningar fengu allir áhorfendur afhenta sérmálaða piparköku frá leikhópnum.
Hlaðvarp Grundaskóla
Hlaðvarp Grundaskóla gekk vel þetta skólaárið en í allt gáfu nemendur út 17 þætti á Spotify rás skólans. Í byrjun skólaárs var boðið uppá skráningu á bókasafninu og myndaðist fljótt langur biðlisti af áhugasömum nemendum. Nemendur voru síðan kallaðir á undirbúningsfund og eftir það í upptökutíma á þættinum sínum.
Það var gaman að sjá hversu fjölbreyttir þættirnir urðu í vetur en það voru m.a. draugasögur, þættir um áhugamál, um Eurovision og margt fleira.
Við hlökkum til að taka upp fleiri skemmtilega þætti á næsta skólaári!
Kvikmyndahátíð Grundaskóla 2024
Í ár héldum við Kvikmyndahátíð Grundaskóla þann 3.-4.júní og hófst undirbúningur fyrir það verkefni í byrjun janúar. Umsjónaraðili hátíðarinnar var Margrét Saga listgreinakennari og alls voru yfir 100 nemendur úr unglingadeild skólans sem tóku þátt með einhverjum hætti. Nemendur fengu tækifæri til þess að búa til eigin stuttmyndir fyrir hátíðina á námskeiðsbraut fyrir 8. og 9.bekk og í list og verkgreinum í 10.bekk. Úr þessu komu 13 fjölbreyttar stuttmyndir sem við sendum til dómnefndar og voru síðan sýndar á skjánum á lokaviðburði hátíðarinnar 4.júní.
Í dómnefnd sátu þau Björn Þór Björnsson sagnfræðingur og fyrrum nemandi skólans, Edda Sigurlaug Ragnarsdóttir kvikmynda- og fjölmiðlafræðingur og Gunnar Thomas Kristófersson kvikmyndafræðingur.
Kvikmyndahátíðin var í samstarfi við Fjölbrautarskólann við Ármúla sem sér um skipulagningu á Kvikmyndahátíð Framhaldsskólanna sem haldin er árlega í Bíó Paradís. Nemendur frá fjölbrautarskólanum komu og hófu svokallað 24 hour challenge þar sem nemendur okkar áttu að endurgera senu úr þekktri bíómynd eða sjónvarpsþætti á einum sólarhring.
Kvikmyndahátíð Grundaskóla var einnig í samstarfi við Kvikmyndaskóla Íslands og fengum við til okkar Arnar Benjamín Kristjánsson framleiðanda, Hilmar Oddson leikstjóra, Hrafnkel Stefánsson handritshöfund og Rúnar Guðbrandsson leikara. Þeir mættu í bransaspjall og svöruðu fullt af flottum spurningum nemenda um hvernig það er að starfa í kvikmyndabransanum á Íslandi.
Fulltrúar frá Icedocs heimildamyndahátíðinni sem haldin er árlega hér á Akranesi komu einnig til okkar að kynna sitt starf og taka á móti hugmyndum frá nemendum.
Hátíðin náði síðan hápunkti þegar myndirnar voru sýndar fyrir fullum sal af fólki. Mikið var hlegið og gleðin einkenndi kvöldið. Það voru frábær tónlistaratriði á dagskránni undir leiðsögn Kristjáns tónmenntakennara og nemendafélagið sá um sjoppu og skreytingarnar á staðnum.
Verðlaunaafhendingin var síðan ekki af verri endanum en það voru vegleg verðlaun í boði í alls sex mismunandi flokkum. Fyrir hlutverk sitt í myndinni Bjartur Bóndadagur hlaut Pétur Ófeigur Bogason viðurkenningu fyrir besta leik í aukahlutverki. Emil Karl Jóhannesson úr myndinni Fortnite Krakkinn hlaut viðurkenningu fyrir besta leik í aðalhlutverki. Fyrir bestu klippinguna hlaut kvikmyndin Annað Líf eftir Jacob Margaretuson, Fjalar Þórir Óttarsson og Viktoríu Thelmu Ólafsdóttir í 9. bekk viðurkenningu og fyrir bestu myndatökuna var það kvikmyndin Núna er tíminn eftir Rúnar Már Jónasson, Heimir Leó Unnarsson og Róbert Kára Örnólfsson í 8.bekk sem hreppti titilinn.
Fyrir besta handrit og bestu myndina árið 2024 hlaut kvikmyndin Horfin viðurkenningu en hún var eftir þau Lilju Sól Ástþórsdóttir, Jón Þór Finnbogason, Jenný Lind Hannesdóttir, Eysteinn Orra Valdimarsson, Arnar Már Garðarsson, Adam Agnarsson, Nökkva Snorrason, Ísak Davíð Þórðarson, Sigurð Brynjarsson, Ronju Völu S.Gísladóttir, Birtu Maren Kristjánsdóttir, Styrmi Jóhann Ellertsson, Anítu Sif Flosadóttir, Söru Dís Óskarsdóttir, Ásrúnu Jónsdóttir, Þórkötlu Þyrí Sturludóttir og Emmu Lind Aðalsteinsdóttir í 10.bekk.
Við hlökkum til að halda áfram að efla kvikmyndakennslu í skólanum og stefnum á að gera hátíðina 2025 enn glæsilegri.
Námskeiðabraut í 8. og 9. bekk
Á þessu skólaári voru tvær stórar breytingar gerðar á Námskeiðabrautinni en brautin er val fyrir nemendur í 8. og 9. bekk. Loturnar urðu á þessu skólaári sex yfir skólaárið en voru fjórar áður. Með því styttum við hvert námskeið lítillega og á móti fengu nemendur fleiri svæði yfir skólaárið. Þá gerðum við einnig þá breytingu að skipta Námskeiðabrautinni upp í aðalnámskeið og örnámskeið og fóru nemendur í tvö námskeið í hverri lotu. Á mánudögum kl.13-14:20 voru örnámskeið og á miðviku- og föstudögum kl. 8:00-9:20 voru síðan aðalnámskeið. Mikill fjölbreytileiki lá í námskeiðum þessa skólaárs og lögðu kennarar sig fram við að bjóða upp námskeið sem buðu m.a upp á sköpun, hreyfingu, listir, verklegt og hönnun. Mjög margt í gangi þar sem nemendur fengu tækifæri til að láta ljós sitt skína.
Nemendafélag Grundaskóla skólaárið 2023-2024
Formenn nemendafélagsins þetta skólaárið voru þau Kara Líf Traustadóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson og síðan voru um 30 nemendur sem koma að skipulagningu á einn eða annan hátt. Breyting var gerð á þessu skólaári þar sem nemendur í 8. og 9. bekk gátu valið vinnu í NFG sem örnámskeið og þá voru þeir í slíku vali fram að áramótum. Annar hópur tók síðan við eftir áramót og var fram að skólalokum. Fundað var alltaf á mánudögum kl.13:00-14:20.
Nemendafélag Grundaskóla stóð fyrir ýmsum viðburðum á þessu skólaári og vann í miklu samstarfi við Félagsmiðstöðina Arnardal og Brekkubæjarskóla. Á haustmánuðum byrjuðum við vinnuna með góðum starfsdegi með nemendafélögum grunnskólanna þar sem við unnum saman að ýmsum málum. Góður dagur í Arnardal þar sem hópurinn stillti saman strengi.
Yfir skólaárið skiptumst við á að halda böll í skólunum. Fyrsta ball vetrarins er hið vinsæla Nýnemaball sem alltaf er haldið í Brekkubæjarskóla. Góð mæting var á ballið en þar er 8. bekkingar sérstaklega boðnir velkomnir í unglingdeild. Jólaballið er síðan haldið hér í Grundaskóla og í ár var ballið mjög vel heppnað. Nýársballið kallast yfirleitt ”Raveball” en þá mæta nemendur í neon litum og reykur og geislar eru aðalsmerki ballsins. Ballið var haldið í Brekkubæjarskóla en lokaballið er síðan haldið hér í Grundaskóla og var svakalegt stuð hér á vormánuðum þegar unglingarnir okkar skemmtu sér vel með Tónhyl og fleirum.
Árshátíð grunnskólanna og Arnardals var síðan haldin hátíðleg þann 18. apríl og í ár var hún haldin í íþróttahúsinu að Jaðarsbökkum. Allir voru sammála um að frábært væri að halda árshátíðina þarna og vonandi verður hún þar aftur næsta skólaár.
Eitt af verkefnum vetrarins hjá NFG var að vinna með frímínútur í unglingadeildinni. Í vetur var tekin ákvörðun að símar væru ekki leyfðir í skólanum og það á líka við í frímínútum. Tekið var á það ráð skipuleggja dagskrá í frímínútum og nýta bæði sal skólans, mötuneyti og nokkrar skólastofur. Nemendur gátu því fundið sér eitthvað að gera í fjölbreyttri dagskrá. Í boði var t.d að fara í pílu, borðtennis, spila, gera vinabönd, fara í Kahoot og Just Dance. Nokkur skipti var síðan boðið upp á keppnisleiki í frímínútum þar sem allskyns þrautir voru í gangi. Þetta verkefni gekk ágætlega hjá okkur en við munum halda áfram í þessari vinnu næsta skólaár og gera enn betur.
Við enduðum síðan skólaárið á að kjósa nýja formenn fyrir skólaárið 2024-2025. Formenn NFG verða Aldís Ingibjörg Ísólfsdóttir og Róbert Elli Vífilsson.
Tilraunanámskeið í Opna skólanum
Nokkrum nemendum í 1. og 2. bekk bauðst að taka þátt í tilraunanámskeiði á þessu skólaári, hvert námskeið var í 4 vikur.
Margar hugmyndir voru fengnar úr Vísindabókum Villa og nemendur voru líka duglegir að koma sjálf með hugmyndir.
Markmið með tilraunanámskeiðunum var að efla þor, hugrekki og sjálfstraust nemenda. Nemendur voru mjög áhugasamir og duglegir.
Pílukast
Nemendur og kennarar eru mjög spenntir yfir nýju aðstöðunni okkar sem við erum einstaklega stolt af. Þeir eru ákafir í að kynnast íþrótt sem fer ört vaxandi í heiminum.
Píla bíður upp á fjölbreyttar æfingar og keppni, samhliða því geta nemendur þjálfað einbeitingu og færni sína í stærðfræði.

Foreldrafélagið
Okkur langar að segja ykkur aðeins frá því hvað við í stjórn foreldrafélags Grundaskóla höfum verið að bralla síðast liðið ár.
Við reynum að funda saman í hverjum mánuði og fáum þá oftast einhvern frá skólanum á fund með okkur. Svo fundum við á hverri önn með stjórn foreldrafélags Brekkubæjarskóla líka. Einnig förum við saman á hverri önn með stjórn foreldrafélags Brekkubæjarskóla á fund með Skóla og frístundaráði. Þar komum við með okkar skoðanir til þess að hægt sé að betrum bæta skólastarfið og umhverfi þess. Einnig eigum við sameiginlegan fund öðru hvoru með Brekkó, Arnardal og fulltrúum frá Akraneskaupstað, þar sem við hjálpumst öll að við það að bæta hlutina fyrir börnin okkar á Akranesi.
Byrjuðum haustið á því að fara inná haustfundina hjá öllum árgöngum og töluðum meðal annars um það hvað foreldrasamstarfið er mikilvægt. Að skólinn og heimilinn þurfa að vinna saman. Öll getum við gert mistök og saman getum við hjálpast að við að laga þau og kenna börnunum munin á réttu og röngu og því er það svo mikilvægt að foreldrar geti talað saman sín á milli og unnið með skólanum.
Við höfum talað fyrir því í vetur hversu mikilvægt er að ná niður umferðahraðanum í kringum skólann og er heldur betur verið að vinna í því á Innnesveginum. Höfum haft háværar raddir um mötuneytismálin og skólinn klárlega tilbúin að reyna að bæta það sem hægt er með okkur öllum. Höfum bent á ýmislegt í strætómálum sem betur má fara . Viljum að foreldrafulltrúar bekkjanna geri eitthvað með hverjum árgangi á hverri önn, en reyni að sleppa að hafa þetta í desember þegar allt er á fullu allsstaðar. Stofnuðum facebook síðu fyrir foreldrafulltrúana með ýmsum hugmyndum og þar geta þeir sem eru foreldrafulltrúar kastað boltum á milli ef einhverjum vantar svör. Byrjuðum aftur með foreldraröltið fyrir 8, 9, 10 bekk í samvinnu við Brekkó og Arnardal og hafa foreldrar verið hörkuduglegir þar, sem er alveg frábært.
Höfum talað fyrir því að það sé símabann í skólanum og hefur það tekist vel.
Við fengum Akraneskaupstað og lögregluna með okkur í lið í upphafi skólaárs til að ítreka notkun endurskinsmerkja og reiðhjóla hjálma. Þar vantar okkur að gera enn betur og biðja alla að passa að nota þessa hluti !!!
Hér er aðeins brot af því sem við höfum unnið að í vetur með skólanum og bænum okkar. Við reynum virkilega að vera á tánum og erum hér fyrir börnin og ykkur. Þetta er mjög skemmtilegt starf og erum við þakklát fyrir það traust sem við höfum fengið frá skólanum.
Biðjum ykkur foreldrana að vinna vel saman og hjálpast að, saman getum við svo mikið. Nú erum við að fara inní haustið og því viljum við líka biðja ykkur um að ítreka endurskinsmerkin, glitaugu á hjólin og notkun reiðhjólahjálma og muna að festa hjálminn, hann gerir lítið gagn ósmelltur eða heima í skáp.
Bestu kveðjur
Stjórn foreldrafélagsins
Anna María Þórðardóttir, Einar Gestur Jónasson, Ella Þóra Jónsdóttir, Ólöf Helga Jónsdóttir, Marsibil Björk Eiríksdóttir og Sigurrós Harpa Sigurðardóttir.
Söngleikurinn Úlfur úlfur
Í vetur setti 10. bekkur í Grundaskóla upp sýninguna Úlfur, úlfur. Alls var söngleikurinn sýndur 11 sinnum á sal skólans og var uppselt á þær allar. Um er að ræða söngleik eftir þá Einar Viðarsson, Flosa Einarsson og Gunnar Sturlu Hervarsson sem birtist okkur í nýjum búningi.
Söngleikurinn Úlfur, úlfur gerist á bókasafni þar sem ævintýrapersónur bókanna lifa og hrærast.
Í söngleiknum hittum við fyrir gamalkunnar ævintýrapersónur sem hafa áhyggjur af tilveru sinni vegna minnkandi lestraráhuga í samfélaginu. Sagan hefur að geyma margar skemmtilegar og litríkar persónur, hraða atburðarás, kraftmikla tónlist og dans, sem allt blandast saman í skemmtilegan hrærigraut, lituðum ævintýrablæ.
Leikstjórn: Einar Viðarsson
Tónlistarstjórn: Flosi Einarsson og Margrét Saga Gunnarsdóttir
Búningahönnun: Eygló Gunnarsdóttir og Victoria Rachel Zamora
Danshöfundur: Sandra Ómarsdóttir
Hár og förðun: Aldís Rós Hrólfsdóttir, nemendur og foreldrar
Framkvæmdastjórn: Hjördís Dögg Grímarsdóttir, Íris Aðalsteinsdóttir og Örn Arnarson
Hér má sjá glæsilegar ljósmyndir frá Skagafréttum
Vorskólinn
Dagana dagana 8.-10.apríl var Vorskólinn þar sem verðandi 1. bekkingar komu í Grundaskóla. Sigurður Arnar skólastjóri tók á móti hópnum og bauð þau velkomin.
Börnin fóru í fjölbreytta vinnu, æfðu sig í að skrifa stafi, dansa og að auki fóru þau í Frístund. Það er einnig mikilvægt að þau kynnist Frístund áður en þau byrja í skólanum, en flest börn í 1. bekk fara í Frístund. Á sama tíma fór hluti af 1. bekkingum í heimsókn í leikskólann sem þau höfðu verið í. Mikilvægt er að auka öryggi nemenda í nýjum aðstæðum.






















































































