Skólablað Grundaskóla á rafrænu formi

Púlsinn 2024

Fréttir

Árgangar

Myndbönd

1. bekkur (árgangur 2017)

Í haust hófu 60 hressir og skemmtilegir krakkar skólagöngu sína í Grundaskóla. Við höfum brallað margt saman bæði í leik og starfi. Við erum búin að læra vel á skólaumhverfið og eignast marga nýja vini. Í vetur höfum við lagt áherslu á þemavinnu og byrendalæsi og staðið okkur vel í að læra að lesa og skrifa. Við erum búin að læra um tröll og gerðum við tröllabók því tengdu. Í lok janúar vorum við búin að vera 100 daga í skólanum og héldum við upp á það með pomp og prakt. Við gerðum líka skemmtilegt verkefni þar sem skrifuðum hvað vildum gera áður en við yrðum 100 ára.


Í vetur fórum við tvisvar í viku í list- og verkgreinar þar sem við lærðum að dansa, sauma, syngja, baka og hvernig á að vera góður vinur. Í apríl byrjuðum við í skólasundi, það fannst okkur virkilega skemmtilegt. Það verður spennandi að byrja í 2. bekk í næsta haust og halda áfram að læra skemmtilega hluti. 

1. ÁB

Efri röð frá vinstri:

Sóley María Ólafsdóttir, Karitas Líf Andradóttir , Móey Embla Daníelsdóttir, Alexia Del Carmen Perozo Montilla, Einar Maríus Þórðarson, Rowaid Al Darraji, Fríður Norðkvist Jóhannesdóttir, Telma Björk Magnúsdóttir, Eva Charlotte Hay, Unnur Margrét Guðmundsdóttir, Viktor Heiðar Arnórsson.

 

Neðri röð frá vinstri:

Sigurrós Harpa Sigurðardóttir, Hlynur Ágúst Rúnarsson, Julia Stella Zielinska, Rúrik Leó Bachmann Sigurðsson, Sóley Birta Gunnarsdóttir, Victoria A. Lopez Flames, Róbert Ingi Sigurðarson, Ásthildur Lea I. Sigurðardóttir, Elín Ragna Káradóttir, Óliver Elí Jónsson, Maren Lind Björnsdóttir, Ásta Benediktsdóttir.

1. LDV

Efri röð frá vinstri:

Ólafur Ernir Arnórsson, Ísabella Mist Bjarnadóttir, Brynja Sóley Hinriksdóttir, Katrín Efemía Barkardóttir, Saga Guðmundsdóttir, Sylva Sól Styrmisdóttir, Leó Örn Vilhjálmsson, Birkir Snær Guðmundsson, Ísabella Jónsdóttir, Magnús Karl Magnússon.


Neðri röð frá vinstri:

Guðrún Birna Kristófersdóttir, Brynjar Logi Gíslason, Fylkir Þór Kárason, Maren Lea Sigurðardóttir, Natalía Jónsdóttir, Brynjúlfur Þorleifsson, Ernir Skarphéðinsson, Fryderyk Mateusz Podlewski, Gunnar Berg Lúðvíksson, Eva Berg Cracolici, Kristinn Helgi Gunnarsson, Lára Dóra umsjónarkennari.

1. LSH

Efri röð frá vinstri:

Helena Másdóttir, Kristín Elísabet Guðgeirsdóttir, Þórður Reynir Þórðarson, Fjóla Andradóttir, Aldís Lilja Sigurbjörnsdóttir, Emilía Hjaltested, Eydís Lilja Gunnarsdóttir, Hanna Mjöll Aronsdóttir, Gerður Guðjónsdóttir, Guðmundur Kári Guðmundsson, Alexander Ævar Hilmarsson og Lilja Sigríður Hjaltadóttir.

 

Neðri röð frá vinstri:

Ólöf Petrea Magnúsdóttir, Íris Lilja Skúladóttir, Kristín Rannveig Haraldsdóttir, Móey Ragnarsdóttir, Óskar Dýri Jónsson, Hjalti Steinn Hilmisson, Freyja Hjaltested, Hafsteinn Mjölnir Björnsson, Aþena Bára Arnórsdóttir og Jonas Bistrickas.

2. bekkur (árgangur 2016)

Í vetur höfum við verið að vinna að Stóru bókinni, en í henni eru fjölmörg verkefni um okkur sjálf og nærumhverfi okkar. Við höfum m.a. unnið verkefni um það hvernig við urðum til, tilfinningar okkar, fjölskylduna, heimilið, umferðina, öruggustu leiðina í skólann og ýmislegt fleira. Ýmis verkefni sem koma óvænt upp, eins og t.d eldgos, fá líka að fljóta með í bókina. Hverju verkefni fylgir mikil vinna, þar sem lestur, ritun og umræður skipa stóran sess. Við gerð bókarinnar fær sköpunargleði nemandana að njóta sín og hver bók verður einstök og engar tvær eins. Verkefnin hafa ýmist verið unnin inní bekk, í útikennslu eða margskonar hópavinnu sem hefur gert þau fjölbreytt og skemmtileg.

2. HJÓ

Efri röð frá vinstri:

Jón Agnar Ottesen, Benediktas Slapinska, Max Pecorins-Petunovs, Jóhann Helgi, Ármann Ingi Árnason, Sigurður Ýmir Njálsson, Dawid Elmar Pecila, Hörður Jóhannsson, Said S. Irheem


Neðri röð frá vinstri:

Guðlaug Sverrisdóttir kennari, Andrea Dögg Gísladóttir, Emma Dís Teitsdóttir, Arína Hólm Sigurðardóttir, Eldey Rán Runólfsdóttir, Arndís Heiða Steinþórsdóttir, Hafrún Jóhannesdóttir kennari, Nökkvi Berg Mánason, Þóra Bjarkadóttir, Ylfa Orradóttir, Emilía Þórðardóttir, Rahaf Al Darraji, Marselía Hrund Guðjónsdóttir, Erna Björk Jónsdóttir stuðningsfulltrúi.

2. ÓIG

Efsta röð:

Karolína, Laufey Lilja, Margrét Iðunn, Margrét Ragnheiður, Dagmar Ólöf, Rúrik Andri, Hilmir Þór, Saidhbhe stuðningsfulltrúi.


Miðjuröð frá vinstri:

Vilhjálmur Jón, Sigrún Rafney, Thelma Líf, Rúrik Logi, Eron Kastíel, Oliver, Björn Logi, Guðlaug Margrét kennari.


Fremsta röð:

Ólöf Inga umsjónarkennari, Jasmín Lillý, Ylfa Dís, Jóhanna Margrét, Alma Þórdís, Immanúel Enok, Eva Lív, Móeiður Agla.

2. SMV

Efsta röð frá vinstri:

Ester Lind stuðningsfulltrúi, Etna Hvönn, Elís Þór, Maron Darri, Hagalín Pálmi, Kári Leó, Hugrún Helga.


Miðjuröð frá vinstri:

Svava Mjöll umsjónarkennari, Ingi Már, Júlíana Dögg, Emilía Bergmann, Emilia Jadwiga, Birta Kristín, Lilja Maren, Heiður, Guðlaug Margrét kennari.


Fremsta röð frá vinstri:

Linda Þórunn, Ísold Nótt, Díana Ösp, Hamza, Sigurrós Kristín, Yrja Blær, Eydís Lilja, Karl Ísar, Aron Logi.


3. bekkur (árgangur 2015)

Í vetur hefur 3. bekkur unnið að stóru verkefni um Akranes. Margar vettvangsferðir voru farnar til að kynnast bænum betur. Nemendur fóru í heimsókn til bæjarstjórans, skoðuðu öll útilistaverkin, fóru á Langasand og rannsökuðu dýralífið og þá um leið fuglalífið á Akranesi.


Öll verkefnin sem nemendur unnu fóru í Akranesbókina en hver og einn nemandi gerði sína bók.

Lokaafurðin var Akraneslíkan. Bekkjardeildum var blandað saman og nemendum skipt í marga hópa. Hver hópur fékk ákveðinn reit (hluta) af Akranesi til að vinna með. Hlutverk þeirra var að finna sérstöðu reitsins, t.d. áhugaverðar byggingar á reitnum eða útilistaverk eða hvað eina sem nemendur töldu að þyrfi að koma fram.

Þessi vinna var krefjandi og þá kannski helst vegna þess að nemendur urðu að taka tillit til allra „nágrannana“ – þ.e. reita í kringum þeirra reit.



Markmið með þessari vinnu er margþætt. Því um leið og unnið er með sköpun, félagsfærni og samvinnu en áhersla á íslensku, stærðfræði, náttúrufræði og myndmennt. En síðast en ekki síst þá eru nemendur að fræðast um Akranes og verða sérfræðingar um bæinn sinn.

3. AMÞ

Efsta röð frá vinstri:

Erla Björk, Heiðbjört og Barbara stuðningsfulltrúi


Miðröð frá vinstri:

Aðalheiður Þráinsd. umsjónarkennari, Ignacy, Bergþór, Nikodem, Björn Leó, Jón Valur, Ólafur Darri, Jóhannes, Sigurður Gísli, Garðar og Richard Ben.


Neðsta röð frá vinstri:

Kristín María, Anna, Marisa Von, Stella María, Anaya Elisabet, Ástdís Agla, Olivia Lilja, Salóme María, Sara Dís.


Á myndina vantar Ernu Dögg

3. ÍBÞ

Efsta röð frá vinstri:

Kennari: Íris Þorvarðardóttir, Elín Sigríður, Embla Karen, Guðrún Lilja, Ylfa Nótt, Ísabella Líf, Eiríkur Elía, Alexander Þór, Elías Þór.


Miðjuröð frá vinstri:

Eva Katrín, Heiða Kristín, Móeiður Una, Emilía Líf, Freyja Maren, Sölvi Snær, Christian Leó, Alexander Darri, Ívar Karel.


Neðsta röð frá vinstri:

Ísak Aron, Erik Fannar, Davyd Yehorov, Maron Már, Hrafnhildur Erla, Heimir Jóhann, Hreinn Snæland, Elías Helgi. 

3. RÞ

Efri röð frá vinstri:

Liwia Maria, Fanney Björt, Hugrún Tinna, Ingunn Dís, Valdís Inga, Erika Rún, Arndís Hekla, Kolbrún Erna, Emilía Ella, Alexa.


Neðri röð frá vinstri:

Bjarnfríður, Aníta Fönn, Agnes, Indíana Rós, Viktoría, Sigurður Helgi, Viktor Leví, Björn Snær, Viktor Gauti, Fannar Darri.


Umsjónarkennari: Ragnheiður Þórðardóttir

4. bekkur (árgangur 2014)

Í haust vann í 4. bekkur verkefni um himingeiminn. Teknar voru fjórar vikur í þessa vinnu þar sem unnið var bæði einstaklingslega sem og í blönduðum hópum þvert yfir árganginn.


Einstaklingsverkefnin voru unnin í úrklippubók þar sem m.a. var skrifað um pláneturnar og lífið í geimnum. Nemendur þurftu að lesa sig til í bókum og tölvum og fræða síðan hvort annað. Allir nemendur fengu í upphafi vinnunnar heimaverkefni þar sem þeir áttu að útbúa geimflaugar í samvinnu við foreldra með frjálsri aðferð.


Samhliða þessari vinnu unnu nemendurnir í hópavinnu þar sem frumkvæði og sköpun fékk sín notið. En markmiðið var að útbúa sýningu um himingeiminn sem lifnaði við jafnt og þétt á ganginum hjá okkur í Eyjunni.


Fyrsta verkefnið sem allir gerðu var að útbúa pláneturnar, sólina og fleira. Það gerðu nemendur með því að blása upp blöðrur og klína á þær dagblaðsrenningum sem bleyttar voru í veggfóðurslími sem síðar voru málaðar og hengdar upp. Hvert verkefnið leit síðan dagsins ljós og smátt og smátt lifnaði gangurinn við og hægt var að bjóða gestum og gangandi á sýningu. Flestir foreldrar kíktu við og nemendurnir sýndu stoltir afrakstur vinnunnar. 

4. AH

Efri röð frá vinstri:

Ísold Lílý Daníelsdóttir, Ernir Ingi Þorleifsson, Gunnar Logi Guðmundsson, Valur Heiðar Gíslason, Kolbeinn Orri Ívarsson, Aldís Lilja Sigurðardóttir, Olimpia Kamila Polok, Sigmar Orri Halldórsson, Guðrún Bjarney Huldudóttir, Marinó Myrkvi Antonsson, Albert Hafsteinsson.


Neðri röð frá vinstri:

Björn Elí Ármannsson, Leó Þór Gunnarsson, Sölvi Freyr Andrason, Ernir Salvarsson, Ingibjörg Rósa Haraldsdóttir, Björk Karenardóttir, Lea Rós da Silva, Þórdís Katla Gísladóttir, Agnes Anna Jóhannsdóttir, Athena Lind Káradóttir.


4. SRR

Efsta röð frá vinstri:

Viktor Andri Sigurðsson, Jóhann Þór Mishchuk, Arnfinnur Sölvi Ársælsson, Ingi Valur Guðjónsson, Skorri Birnir Blöndal, Hlifar Bragi Bjarnason, Ingólfur Thor Ottesen.


Miðjuröð frá vinstri:

Máni Freyr Bernódusson, Gabríel Freyr Sveinsson, Aría Rós Smáradóttir, Saga Mjöll Einarsdóttir, Ólafía Jóhannesdóttir, Ísabella Andradóttir, Huldís Fjóla Hafþórsdóttir,


Fremsta röð frá vinstri:

Ebba Sif Torfadóttir, Alexandra Mjöll Arnardóttir, Hanna Sólrún Eggertsdóttir, Emma Hjálmsdóttir, Una Guðrún Jónmundsdóttir, Hekla Karen Guðmundsdóttir, Katrín Bylgja Baldursdóttir, Amelía Rós Pétursdóttir og á myndina vantar Orra Frey Ingason.

Kennari: Sigurbjörg Ragna Ragnarsdóttir


4. VV


5. bekkur (árgangur 2013)

Í vetur hefur 5. bekkjar árgangur Grundaskóla lært um landnámsöld og víkingana. Fyrir áramót lærðu krakkarnir um gömlu goðin og hvernig Íslendingar skiptu um trú árið 1000. Á vorönninni höfum verið að læra um víkingana, ferðir þeirra og menningu og hvernig það tengist nútímanum.


Þegar ákveðið var hvert við ættum að fara í vorferðina okkar vildum við fara í fræðsluferð í Þjóðmynjasafnið og gera svo eitthvað skemmtilegt í leiðinni.


Þann 8. maí s.l. hélt hópur af glöðum krökkum af stað til Reykjavíkur. Við hófum ferðina á því að koma við í Skautahöllinni í Laugardalnum. Þar skautuðum við og skemmtum okkur á skautasvellinu við tónlist og ljós. Sumir voru vanir bæði á línuskautum og venjulegum skautum aðrir voru að prófa skauta í fyrsta skipti en allir skemmtu sér vel.

Eftir nestispásu og hópaskiptingu þar sem öllum árganginum var skipt í tvo hópa fór annar hópurinn inn á Þjóðminjasafnið á meðan hinn hópurinn fór annars vegar niður að tjörn en hinn hópurinn í Hólavallakirkjugarð þar sem við fengum óvæta leiðsögn hjá Heimi Janusar, Skagamanni.


Þegar komið var inn í Þjóðminjasafnið var hópnum aftur skipt í tvennt þar sem annar hópurinn fór að skoða og prófa hluti sem eru eftirlíking af fötum og vopn landnámsmanna Þarna skemmtu allir sér vel við að máta föt, hjálm og vopn og stilla sér upp fyrir myndatöku.


Hinn hópurinn fór með Önnu Leif og skoðaði raunverulega mjög gamla hluti. Til dæmis skoðuðum við alvöru líkamsleifar landnámsmanns og konu sem varðveittar eru á safninu. Líka alvöru vopn og skart frá þessum tíma en á þessu svæði máttu krakkarnir ekki snerta eða prófa hlutina. Þessi fræðsla var mjög áhugaverð og fékk Anna Leif fullt af spurningum frá krökkunum sem sýndu þessari fræðslu mikinn áhuga.


Óhætt er að segja að ferðin hafi verið vel heppnuð. Veðrið var upp á sitt besta og tíminn leið hratt. Það voru svo kátir krakkar og ánægðir kennarar sem héldu heim á leið með rútunni.

 

Einn góðan dag í vetur ákváðu 5. bekkur að fara í heimsókn á byggðasafnið að Görðum þar sem nemendur fengu að skoða og fræðast um hluti sem voru algengir í notkunn fyrr á öldum, sjá hversu frábrugðið þessir hlutir eru nútímanum. Jón Allansson sagði okkur sögur af lifnaðarháttum á Akranesi og hvernig lífið hefur breyst. Síðan tók Kristrún Sigurbjörnsdóttir við og fræddi okkur um hluti sem notaðir voru. Enduðum við heimsókning á kaffikynningu hvernig kaffi er búið til og hvernig það verður að því kaffi eins og við drekkum í dag.

5. HJ

Efsta röð til vinstri:

Anna Krasnoselska, Oskar Janiszewski, Aron Emil Óskarsson, Sigurður Björn Þórðarsson, Ólafur Hrafn Taroni, Kristján Ingi Sigurbjörnsson, Elva Kristín, Pétursdóttir,

Fanney Dís Snæland Birgisdóttir.


Miðjuröð frá vinstri:

Grétar Mar Steinólfsson, Ólafur Máni Ágústsson, Engilbert Arnar Ársælsso, Ástrós Tara Ástþórsson, Agla Valdís Guðlaugsdóttir, Sóley Björt Ragnarsdóttir.


Neðsta röð frá vinstri:

Hrafnhildur Jónsdóttir umsjónakennari, Wiktoria Kuptel.



Á myndina vantar: Agnes Ásthildur Ásgeirsdóttir, Samúel Ísak Valdimarsson , Yaroslav Moskvychov.

5. KB

Efsta röð frá vinstri:

Katrín Lilja Unnarsdóttir, Friðmey Dögg Benediktsdóttir, Mía Vattar Steinólfsdóttir, Alexander Helgi O. Friðriksdóttir, Viktor Ísak Ólafsson, Jón Darri Elvarsson, Inga María Brynjarsdóttir, Lena Kluziak, Kristín Birta Skarphéðinsdóttir, Unnar Neisti Jökulsson.


Neðsta röð frá vinstri:

Karen Birgisdóttir kennari, Haukur Andri Jónsson, Heiðdís Þórðardóttir, Thelma Rún Hlinadóttir, Emelía Karen Björnsdóttir, Almar Berg Ottesen, Ívar Bæring Samúelsson, Fylkir Orrason, Kristófer Guðjónsson, Iðunn Ísis Árnadóttir, Helena María Eggertdóttir


Á myndina vantar: Anthony Þór Jaramillo, Helga Katrín Maronsdóttir

5. SÓ

Efri röð frá vinstri:

Tinna Guðún Aðalsteinsdóttir, Aldís Emilía Magnúsdóttir, Margrét Lilja Guðjónsdóttir, Kári Fannar Hannibalsson, Eyþór Allansson, Patrekur Smári Mánason, Sigurbjörg Vaka Vigfúsdóttir,Stella Harriet Hay, Hafsteinn Orri Gunnarsson, Erik Óli Jóhannsson, Sigurður Kári Halldórsson.


Neðri röð frá vinstri:

Arndís Inga Bjarnadóttir, Laufey Svanbergsdóttir, Rital A. S. Irheem, Sjana María Ragnarsdóttir, Birta Þyrí Jónsdóttir, Indíana Alba Mýrdal, Þorbjörn Máni Steinólfsson, Odai Jazan, Rúnar Geir Árnason, Bjarki Atlason.


Á gólfinu umsjónakennarinn: Sigríður G. Ólafsdóttir 

Á myndina vantar: Malín Káradóttur og Hörpu Dögg Höskuldsdóttur

6. bekkur (árgangur 2012)

Ferðasaga

Það voru hressir krakkar sem lögðu af stað í ferð til Reykjavíkur, mánudaginn 22.apríl. Mikið var sungið í rútunni á leiðinni suður. Leiðin lá út á Granda þar sem bátur beið okkar. Helmingur árgangsins byrjaði á siglinu og á meðan heimsótti hinn helmingurinn Sjóminjasafnið. Við vorum einstaklega heppin með veður, það var hlýtt og sólin skein.


Á sjóminjasafninu var mikið af gömlu og flottu dóti og það mátti snerta suma hlutina. Það voru líka margar stöðvar þar sem mátti leika með hluti eða leysa þrautir. Safnvörður tók á móti okkur og fræddi okkur um safnið. 


Í siglingunni voru allir í björgunarvestum. Hópnum var skipt í tvennt, þeir sem voru niðri fengu að sjá og halda á uppstoppuðum fuglum og fiskum og fengu fræðslu um dýrin. Þeir sem voru uppi lærðu orð eins og stafn, skutur, stjórnborði og bakborði. Á leiðinni í land fór skipstjórinn að sigla í hringi og það skvettist sjór á okkur. Sumir urðu rennandi blautir. 


Ferðin endaði í Gufunesbæ. Þar eru skemmtileg leiktæki og við fengum að borða. Það var mjög gaman að leika sér í skemmtigarðinum og sólin skein og það var heitt.




Námskeið í félagsfærni og samskiptum í 6.bekk

Í 6.bekk hafa undanfarin sjö ár verið tíu tíma námskeið fyrir nemendur þar sem áhersla er lögð á sjálfsmynd, samskipti og félagsfærni. Tímarnir er byggðir upp á umræðum og verkefnum tengdum samskiptum og sjálfsstyrkingu í bland við ýmsa leiki. Árgangur 2012 fór í gegnum þetta námskeið í vetur og var nemendum skipt upp í sjö hópa. Starfsmenn úr stoðþjónustunni héldu utan um námskeiðið auk umsjónarkennara í 6.bekk.


6. ÁDO

Aftasta röð frá vinstri:
Guðrún Salka Hróðmarsdóttir, Una Soffía Sigurvinsdóttir, Halldóra Erla Þorvaldsdóttir, Ólafur Dór Bjarkason, Stefán Ágúst Þork. Skarstad, Olivier Morawski, Víkingur Aron Jónsson, Árdís Dögg Orradóttir, Steinunn Dögg Ólafsdóttir.


Miðröð frá vinstri:
Maren Erla Almarsdóttir, Sara Sesselja Sveinbjörnsdóttir, Fríða Snorradóttir, Katla Agnarsdóttir, Nadía Lív Davíðsdóttir, Unnur Valdís Lúðvíksdóttir, Vigdís Bríet Ingibjörnsdóttir.


Fremsta röð frá vinstri:
Reynard Henry Owusu Darkoh, Egill Þór Alfreðsson, Aron Bergmann Valtýsson og Agnar Ingi Godson Anuforo.


Fjarverandi voru Frímann Olsen Frímannsson og Sigurður Már Sigurjónsson.

6. EHÞ

Efsta röð frá vinstri:

Marinó Heiðar Guðlaugsson, Víkingur Thor Ellertsson, Viktoría Ósk Steinarsdóttir, Eydís Björt Steinólfsdóttir, Eyrún Helga Þorleifsdóttir.


Næst efsta röð frá vinstri:

Hilmar Erik Héðinsson, Marel Thor Picus, Birkir Andri Áskelsson, Unnur Katrín Guðmundsdóttir, Klaudia Pecula, Camilla Ýr Guðmundsdóttir.


Næst neðsta röð frá vinstri:

Davíð Stefánsson, Ísólfur Keran Árnason, Alba Sigrún Mikaelsdóttir, Ína Karen Vigfúsdóttir, Hekla Björk Aronsdóttir.


Neðsta röð frá vinstri:

Aðalsteinn Bói Sturluson, Helga Lind Viðarsdóttir.


Á myndina vantar: Adilu Ýr Iman Mwinyi,  Dísellu Ósk Þorsteinsdóttur.

6. KÓÓ

Efsta röð frá vinstri:

Þórður Páll Sölvason, Björn Atli Ásbjörnsson, Daði Haagensen, Elmar Snorrason, Alexandra María Ólafsdóttir, Karitas Ósk Ólafsdóttir.


Miðjuröð frá vinstri:

Marcus Morawski, Karen Eva Sigurðardóttir, Ernir Kristvinsson, Kristín Anna Guðmundsdóttir, Petra Kristín Baldvinsdóttir.


Neðsta röð frá vinstri:

Viktoriia Kharlanova, Zina Carla Al Jaber, Karen Ylfa Róbertsdóttir, Aþena Lóa Ásbjörnsdóttir, Mangirdas Moliusis.


Á myndina vantar: Brynja Líf Sölvadóttir, Emilía Ingibjörg Valmundsdóttir, Hallur Hrafn Oddsson, Valgerður Ósk Ólafsdóttir, Viktoría Líf Þorsteinsdóttir.

6. VH

Efsta röð frá vinstri:

Daði Rafn Reynisson, Ísarr Myrkvi Runólfsson, Fannar Þór Hannesson, Mikael Kári Ásþórsson, Davíð Leó Bjarnason.


Neðsta röð frá vinstri:

Heiða Björk Sævarsdóttir, Fríða Maren Guðmundsdóttir, Elektra Lind Káradóttir, Anna Daníelsdóttir, Maren Lind Arnardóttir, Sunna Karen Ingvarsdóttir, Sigríður Margrét Reynisdóttir.



Miðjuröð frá vinstri:

Illia Oliinyk, Arnar Óli Sigurjónsson, Aron Elí Aadnegard, Jóhannes Kári Jóhannesson, Rúrik Salvarsson, Karítas Lilja Stefánsdóttir.


Á myndina vantar: Gunnar Kári Hjaltason, Anna Rósa Ársælsdóttir, Markús Atli Þráinsson

7. bekkur (árgangur 2011)

Jólasveinaleikrit 2023

Sú hefð hefur tíðkast í Grundaskóla að 7. bekkur setji upp svokallað Jólasveinaleikrit í desember. Leikritið síðastliðinn desember var frumsamið út frá hugmyndum nemenda en það var í anda Back to the future myndanna. Börnin byggðu í samstarfi við kennara tímavél sem var, eins og þeir sem kannast við bíómyndina, bíll að nafni Delorean og fékk sviðsmyndin sérstakt hrós í ár en hún hefur aldrei verið jafn stórtæk. Einnig voru ýmsar persónur sem komu fyrir sögu, landnámsfjölskylda, nútímafjölskylda, Love Island keppendur, klikkaður vísindamaður, Kevin úr Home alone og margir fleiri. Allir úr árgangnum komu að leikritinu að einhverju leiti en það voru 78 nemendur. Hópur af stúlkum frumsamdi dans í samráði við íþróttakennara sem notaður var í lok leikritsins. Tæknimenn voru 7 krakkar sem renndu sýningunni og sáu um að skipta ljósum og stjórna hljóði. 


Upplestrarkeppnin

Í 7.bekk er hefð fyrir því að taka þátt í upplestrarkeppninni. Í janúar byrjuðu nemendur að æfa upplesturinn. Allir tóku þátt, lásu bæði texta úr bók og ljóð að eigin vali. Eftir stífar æfingar kom að bekkjarkeppninni. Hver og einn bekkur kepptu sín á milli. Dómarar voru Lilja Margrét og Laufey Karlsdóttir. Úr hverjum bekk komust sex krakkar áfram, 18 í heildina, sem kepptu öll á sal skólans fyrir framan allan árganginn. Sigurvegararnir sex kepptu svo að lokum í Tónbergi 13. mars ásamt sex krökkum úr Brekkubæjarskóla. Þar stóð einn uppi sem sigurvegari frá okkar skóla, hann Halldór Emil Unnarsson.

Virkilega flottir og duglegir krakkar sem stóðu sig öll vel á einstakan hátt. Þetta verkefni reyndist mörgum mjög erfitt en það eitt og sér að koma fram og tala er sigur út á fyrir sig.


Danaheimsókn í 7. Bekk

Nemendur í 7. Bekk hafa verið í samskiptum við nemendur í Lilleskola í Óðinsvé í Danmörku síðan í haust en frá 29. apríl-3. maí tókum við á móti 23 dönum. 8 strákar og 15 stelpur urðu gestgjafar þessa daga og buðu dönunum að vera hjá sér. Hefðbundin stundaskrá var ýtt til hliðar og fórum við meðal annars með þau á Langasand, göngutúr um Akranes með allskyns þrautum, dönsuðum í Just dance, héldum pizzapartý og fórum í rútuferð um Borgarfjörðinn. Nemendur lærðu mikið af þessari reynslu og tengdust íslenskir og danskir nemendur miklum böndum og eignuðust góða vini í ferlinu.


,,Mér fannst mjög gaman að fá þau í heimsókn, það sem stóð upp úr var samverustund heima hjá einni okkar og við gerðum nammisalat, við létum danina smakka íslenskt nammi. Við spjölluðum mikið saman á kvöldin og hlóum mikið. Við grétum þegar kom að kveðjustund” – Maren Rún.


,,Mér fannst mjög gaman að hafa þau í heimsókn því við tengdumst mjög mikið og eignuðumst góðar vinkonur í ferlinu. Það sem stóð upp úr hjá mér hversu góðar vinkonur við vorum og grillpartý hjá einni okkar. Við felldum mörg tár þegar við kvöddum þær” -Sigurveig Sara


,,Mér fannst gaman að taka á móti dönskum nemanda, hann var mjög kurteis og ég gaf honum Nóa kropp og 66 Norður húfu”

-Daníel Árni

7. EK

Standandi:
Mikael Smári, Viktor Logi


Efst frá vinstri:
Gilbert Leó, Smári, Ethan Agnar, Hinrik Helgi, Pétur Steinn, Einar Orri, Guðmundur Bjarni


Næst efst frá vinstri:

Guðbjartur Hinrik, Kolbeinn Goði, Úlfar Orri, Alexander, Halldór Emil, Davíð Logi, Breki Þór


Næst neðst frá vinstri:

Eygló, Ólöf Oddný, Hafrún Alla, Jóhanna, Katrín Sara



Neðst frá vinstri:
Dagbjört Ósk, Hera Ósk, Sara María, Selma

 

Á myndina vantar: Inga Lind, Dominyka 

7. HJ

Tsimur, Tristan Reyr, Daniel Ágúst, Benjamín Örn, Hafsteinn Þór, Viktor Hugi, Kristian Stefán, Jörundur Óli, Daníel Árni, Styrmir Líndal, Guðjón Valur, Nadia, Sofiia, Linda María, Berglind Eldey, Tinna María, Hekla María, Hugrún Ingibjörg, Jófríður Jara, Maren Rún, Sigurveig Sara og Regína Rún.


Á myndina vantar: Óskar Veigar og Emilý Hönnu

7. UIK

Efsta röð frá vinstri:

Stefán Huginn, Egill Fannar, Jóhann Lár, Halldór Óli, Marcel, Stefán Indriði


Næst efsta röð frá vinstri:

Ninja Sóley, Mummi, Daníel Rafnar


Næst neðsta röð frá vinstri:

Sóldögg Rún, Lilja Sól, Drífa Katrín, Ása Lovísa, Stefanía Rakel, Guðrún Klara, Ásta Vordís


Neðsta röð frá vinstri:

Nadía Klara, Álfheiður, Dagný Lára, Hafdís Ósk, Eva Hrönn, Elva, Dagný, Unnur Inga


Á myndina vantar: Elísu, Alex Leó, Arndís Ling

8. bekkur (árgangur 2010)

Samskiptafærni

Unnið er með samskipti í Grundaskóla á fjölbreyttan hátt. Til dæmis er boðið upp á ýmis námskeið sem stoðþjónustan vinnur í samvinnu við árgangateymin í bland við aðra vinnu sem snýr að því að efla nemendur í samskiptum. 

Í vetur hafa allir nemendur í 8.bekk farið á samskiptanámskeið. Stúlkurnar fara á námskeiðið ,,Samskipti stúlkna, leiðir til lausna“. Berta námsráðgjafi og María þroskaþjálfi halda utan um námskeiðið. Samhliða eru drengirnir á sambærilegu námskeiði sem umsjónarkennarar stýra.


Markmiðið er að efla félagsfærni nemenda með samskiptavinnu og gefa þeim tækifæri til að ræða saman um ýmis félagsleg skilaboð, mikilvægi félagstengsla, sjálfsvirðingar og félagslega samkennd. Nemendur fá þjálfun í að hugsa á gagnrýninn hátt um samskipti sín og hvernig þeir tengjast hver öðrum. Þeim er gefið tækifæri til að tala um reynslu sína um leið og þeir læra að takast á við árekstra og samkeppni jafningjanna. 


Mannslíkaminn 

Eitt viðfangsefnana í verkefnamiðuðu námi í 8. bekk er mannslíkaminn og hafa nemendur verið að sökkva sér djúpt í þá vinnu núna í lok skólaárs.

Í tengslum við námsefni mannslíkamans hafa nemendur unnið ótal fjölbreytt verkefni á borð við tilraunir, skýrslugerðir, teikningar, ritanir og margt fleira en það sem stóð helst upp úr hjá bæði nemendum og kennurum var verklegi þátturinn – krufning. 

Eftir lestur og vinnu um hjartað var farið í að útvega lambahjörtu til krufningar svo að nemendur gætu dýpkað þekkingu sýna og fengið tilfinningu fyrir því sem þeir voru búnir að vera að læra um hjartað. Krufningin gekk vonum framar og var áhuginn mikill! Allir fengu tækifæri til þess að skera í og þukkla hjarta og skoða það vel að innan. Sumir gengu alla leið og voru hanskalausir og óhræddir við aðgerðina á meðan aðrir létu sér nægja að vera í hæfilegri fjarlægð með grímu, hanska og rétt koma við hjörtun. 

Krufningin var skemmtileg leið til þess að loka vinnunni um mannslíkamann og eitthvað sem nemendur eiga eftir að muna eftir að skólagöngu þeirra lýkur.

8. BP

Aftasta röð frá vinstri:

Birgir Viktor Kristinsson, Oliver Leví Sverrisson, Maren Unnur Magnúsdóttir, Elsa Dís Hjaltadóttir, Þórdís Agla Sigurvinsdóttir, Björn Leó Aronsson, Bergur Ernir Karlsson, Theodór Smári Þorsteinsson.



Miðjuröð frá vinstri:

Rokas Bistrickas, Hekla Dís Hilmarsdóttir, Stefanía Líf Viðarsdóttir, Kristín Sjöfn Ómarsdóttir, Helgi Guðsteinn Reynisson, Brynleifur Þór Þorsteinsson, Leó Þór Árnason.


Fremsta röð frá vinstri:

Katrín Ósk Guðmundsdóttir, Ásdís Hekla Kristjánsdóttir, Erna Guðrún Jónsdóttir, Erik Vilhelm Hlinason, Birkir Hrafn Theodórsson, Ármann Marvin Sigurðsson, Albert Hrafn Lúðvíksson, Maron Kárason.


Á myndina vantar: Árn‎ý Lea Grímsdóttir, Elín Sara Magnúsdóttir, Emilía Snjólfsdóttir, Ingibergur Hjálmarsson.

8. KÓG

Aftasta röð frá vinstri:

Róbert Kári Örnólfsson, Jökull Stefnisson, Anton Logi Guðmundsson, Sverrir Þór Leifsson, Sigurður Franz Hinriksson, Eymar Ágúst Eymarsson, Ingibjörg Einarsdóttir, Lena Björk Bjarkadóttir

 

Miðjuröð frá vinstri:

Rúnar Már Jónasson, Emil Karl Jóhannesson, Jóhanna Guðrún Gunnarsdóttir, Erika Ósk Emilsdóttir, Tinna Rós Eyfjörð Hólmarsdóttir, Alma Hlín Ingimarsdóttir, Vala Rún Hrannarsdóttir, Hanna Berglind Ásþórsdóttir

 

Fremsta röð frá vinstri:

Heimir Leó Unnarsson, Heiðar Breki Héðinsson, Birkir Elías Helgason, Helga Dóra Einarsdóttir, Elín Sara Skarphéðinsdóttir, Sigurbjörg Heiða Ívarsdóttir.

 

Á myndina vantar: Elmar Gísli Ólafsson, Ísak Máni Bogason, Naómí Líf Sölvadóttir, Sigríður Sól Newton

8. LJ

Aftasta röð frá vinstri:

Auður Líndal, Matthías Máni Bjarnason, Styrmir Gíslason, Dagur Óli Ragnarsson, Hallur Sigurjónsson, Kajus Jatautas, Orri Þór Jónsson, Örlygur Hrafn Stefánsson.


Miðjuröð frá vinstri:

Elía Valdís Elíasdóttir, Aníta Rut Andradóttir, Ísey Fannarsdóttir, Iwo Szymon Gorajewski, Jökull Sindrason, Heiðrún Ása Þráinsdóttir, Dóra Valdís Arilíusdóttir, Heiðdís Tinna Daðadóttir, Laufey Jóhannsdóttir.


Fremsta röð frá vinstri:

Julia Von Káradóttir, Nadía Steinunn Elíasdóttir, Þóra Guðmundsdóttir, Patrekur Emil M‎‎‎‎‎‎‎ýrdal, Pétur Geir Gíslason, Andri Snorrason, Lilja Fanney Ársælsdóttir, Bríet Inga Pétursdóttir.


Á myndina vantar: Gabríela Mist Valgeirsdóttir, Karítas Líf Bjarnadóttir, Silvía Olsen Frímannsdóttir

9. bekkur (árgangur 2009)

Krakkar með krökkum​ í 9.bekk

Krakkarnir í 9.bekk tóku í vetur þátt í verkefninu Krakkar með krökkum. Verkefnið byggir á hugmyndafræði um leiðtogaþjálfun, jafningjafræðslu og reynslunám. Hugmyndin var að skapa tækifæri fyrir nemendur í 9. bekk til að vera jákvæðir leiðtogar. Tækifæri sem myndi efla þau og styrkja. Vonin fyrir verkefnið var að þau myndu í framhaldinu verða góðar fyrirmyndir sem hafi jákvæð áhrif á skólabrag.


Ekki má gleyma þeim bekkjum sem fá fræðsluna en bekkirnir sem fengu hana voru 3.-6.bekkur. Nemendur í 9. bekk vinna með bekkjaranda, samskipti, einelti og leiðtogafærni. Þá fá yngri nemendur tækifæri til að kynnast eldri nemendum og hafa þá sem fyrirmyndir.


Árganginum í 9.bekk var skipt í fjóra hópa og var hverjum hóp úthlutað einum árgangi í yngri bekkjum.​ Berglind Þráinsdóttir og Aldís Rós hittu hvern hóp og undirbjuggu þau fyrir alla tímana. Þau lærðu allskonar leiki og fengu kennslu og verkefnum úthlutað.​ Allir gátu tekið þátt á sínum forsendum og fengu verkefni við hæfi. Allir geta eitthvað, enginn getur allt.​

9.bekkur var gríðarlega ánægður með verkefnið og stóðu sig vel að virkja yngri nemendur. Margir mynduðu góð tengsl við yngri nemendur sem þau hafa haldið áfram þróa á skólaárinu með það fyrir augum að vera jákvæðar fyrirmyndir. Frábært verkefni!

9. HKS

Aftasta röð frá vinstri:

Jóhann Máni Ástþórsson, Christian Sturri Watt, Hreinn Bergmann Sigurðsson, Theodór Orri Arilíusson, Alexander Almarsson, Jónas Laxdal Aðalgeirsson, Jóel Birgir Ásþórsson, Enok Logi Ásgeirsson, Heikir Darri Hermannsson, Atli Freyr Bjarnason.


Miðjuröð frá vinstri:

Helena Ósk Somlata Einarsdóttir, Elín Anna Viktorsdóttir, Aþena Líf Vilhjálmsdóttir, Marta Sóley Helgadóttir, Rakel Irma Aðalsteinsdóttir, Tinna Björg Jónsdóttir, Anna Lísa Axelsdóttir, Judite Guðbjörg Da Silva, Írena Rut Mareksd. Binkowska.


Neðsta röð vinstri:

Hekla Karen Steinarsdóttir og Guðrún Eiríksdóttir


Á myndina vantar: Ívar Wesley Baldursson, Lovísa Liljudóttir Daðadóttir, Nojus Vilimas og Vladyslav Kharlanov. 

9. LG

Efsta röð frá hægri:

Hilmar Oddur Arnórsson, Fjalar Þórir Óttarsson, Volodymyr Moskychov, Daníel Guðjónsson, Isak Theodór Eidem, Þorsteinn Dagur Newton, Davíð Leó Hafþórsson.


Miðjuröð frá hægri:

Ari Úlrik Hannibalsson, Svava Guðfinna Ingvarsdóttir, Jóhanna Vilborg Guðmundsdóttir, Daníel Mar Andrason.


Neðsta röð frá hægri:

Maksymilian Marek Zak, Gunnar Bogi Hilmarsson, Viktor Gaciarski, Aldís Ingibjörg Ísólfsdóttir, Linda Kristey Gunnarsdóttir, Hrafnhildur Helga Arnardóttir, Viktoría Vala Hrafnsdóttir, Ari Styrmir Almarsson.


Á myndinda vantar: Viktoríu Halldórsdóttur, Lenu Sesseliu Wiesztal, Leylu Jessicu Chaabia.

9. URÁ

Efsta röð frá vinstri:

Natan Dagur Berdsen, Viktoría Thelma Ólafsdóttir, Jacob Margaretuson, Arnór Breki Guðjónsson, Nói Andersen Valdimarsson, Gunnar Heimir, Ragnarsson.


Miðjuröð frá vinstri:

Margrét Magnúsdóttir, Ester Guðrún Sigurðardóttir, Karina Mazurovic, Róbert Leó Steinþórsson.


Neðsta röð frá vinstri:

Victor Máni Ólafsson, Samúel Örn Ólafsson, Aldís Karen Stefánsdóttir, Katrín Lára Sveinbjörnsdóttir, Karen Líf Viðarsdóttir, Telma Kristín Ólafsdóttir, Eva Þóra Sigurjónsdóttir Robert Elli Vífilsson, Sindri Leó Róbertsson, Jón Auðunn Jónsson.

 

Á myndina vantar: Alexander Fijal, Þorgerður Sörudóttir, Embla Kristín Guðmundsdóttir

10. bekkur (árgangur 2008)

Stefnan sett

10. bekkur í Grundaskóla vann í vetur að skemmtilegu verkefni sem heiti Stefnan sett. Verkefnið gekk út á að byggja nemendur upp í það að fara í sviðsett atvinnuviðtal. Áður en nemendur mættu í viðtalið fór fram undirbúningsvinna sem unnin var í gegnum hinar ýmsu námsgreinar eins og ensku, upplýsingatækni, dönsku, náms- og starfsfræðslu, íslensku og stærðfræði. 


Áherslan í verkefninu var á þætti eins og styrkleika, sjálfsþekkingu og áhugasvið, auk þess sem nemendur lærðu um hinar ýmsu námsleiðir, um vinnumarkaðinn, launaseðilinn og skatta. Nemendur gerðu ferilskrá, tóku styrkleikakönnun ásamt fleiru. Verkefnið teygði anga sína víða en foreldrar settu sitt mark á verkefnið með kynningum úr atvinnulífinu sem og stuðningi heima við gerð ferilskrár, kynningarbréfs og undirbúning atvinnuviðtala. Viðtölin voru framkvæmd af kennurum árgangsins, auk Bertu náms- og starfsráðgjafa, Berglindi deildarstjóra, Sigurði Arnari skólastjóra og Margréti aðstoðarskólastjóra.


Óhætt er að segja að þetta verkefni hafi tekist frábærlega og voru bæði nemendur og kennarar sáttir með ferlið og útkomuna. Verkefnið hefur auk þess vakið verðskuldaða athygli í skólasamfélaginu og allt upp til ráðherra menntamála, enda var verkefnið kynnt fyrir starfsmönnum menntamálaráðuneytis.


Kveðja frá 10. bekk

Haustið 2014 mættum við í Grundaskóla, sex ára með allt of stórar skólatöskur, peppuð í næstu tíu árin. Þegar við byrjuðum í fyrsta bekk í þá var okkur skipt í þrjá bekki eftir leikskóla hópunum okkar og kennararnir okkar þá voru, Sigurbjörg Ragna Ragnarsdóttir sem við kölluðum Sibbu, Margrét Rós Jósefsdóttir og Elísabet Jóhannesdóttir sem við kölluðum Elsu. Við höfum greinilega verið rosalega skemmtileg því þær voru með okkur frá 1. til 4 bekk. Síðan í 2 bekk bættist Karen í kennarateymið og var líka með bekkinn hennar Elsu. Á yngsta stiginu lærðum við ýmislegt og gerðum allskonar skemmtilegt eins og til dæmis stóru bókina, fórum á Bjarteyjarsand og gerðum allskyns bekkjarverkefni. Árganginum var líka skipt upp í vinahópa sem hittust reglulega heima hjá hvor öðru eftir skóla.

Leikirnir dimmalimm og litaleikurinn á regnboga stiganum voru vinsælir en enginn leikur var eins vinsælt og Ein króna. Á yngsta stiginu byrjaði líka gervigrasdramað sem átti eftir að eiga sér stað fram á unglingastig.


Í 5-7 bekk fengum við svo nýja kennara og þá tóku Eyrún Þorleifsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir og Karítas Ólafsdóttir við af Sibbu, Margréti og Elsu. Á miðstiginu lærðum við endalaust um víkinga við gerðum til dæmis víkingabókina, fórum á Eiríksstaði eftir að hara lært um Eirík rauða og vini hans, lærðum um Snorra Sturluson og fórum í Reykholt, gerðum óskaveröldina, fórum í heimsókn á Alþingi og margt fleira. Við vorum ekkert öðruvísi en aðrir krakkar á miðstigi svo það var nóg af drama, við rifumst reglulega um gervigrasið, ein króna var enn vinsælasti leikurinn í frímínútum og fyrstu kærustupörin mynduðust.


Í lok 7 bekkjar skall covid á með heimaskóla, grímum og nóg af spritti. Covid gerði það að verkum að við komumst ekki í Reykjaskóla það árið, sem við vorum mjög svekkt með því okkur var búið að hlakka mikið til og vorum búin að gera okkur mjög miklar vonir. Það kom samt í ljós seinna að við græddum samt aðeins af covid út af því að við fengum að fara í tvær ferðir í staðinn fyrir eina.

Í 7. bekk fengum við tækifæri á að taka þátt í Erasmus verkefni sem margur nemendur nýttu sér til að prófa eitthvað nýtt, en enn og aftur kom covid í veg fyrir það og þurftum að fresta útlanda ferðunum til unglingastigs.


Þegar við mættum á unglingastigið í 8. bekk voru margir stressaðir, sumir spenntir sem var kannski algjör óþarfi því önnur bylgja af Covid var komin af stað og þá var ákveðið að við yrðum áfram á miðstiginu. Við fengum þess vegna fjögur ár á miðstiginu en ekki þrjú. Þegar við byrjuðum í 8 bekk var bekkjunum breytt og við fengum nýja kennara, Aron Ýmir átti að kenna einum bekknum en hann hætti við og þá fengum við Aldísi Ylfu í staðin, svo fengum við líka okkar allra besta Ödda okkar og okkar bestu Rósu en Karítas hélt áfram að vera með okkur í 8. bekk. Í 8 bekk fórum við loksins í Reykjaskóla eftir langa bið, og þá urðu allir hamingjusamir.

Við unnum alls kyns þemaverkefni saman í 8.bekk en stærst þeirra var verkefni um mannréttindi, í því verkefni lásum bókina vertu ósýnilegur og gerðum nokkur verkefni út frá henni og lokaverkefni þess var það að kennararnir bjuggu til flóttamannabúðir fyrir okkur svo að við gætum upplifað það hvernig það var fyrir sýrlendinga. Í framhaldinu gerðum við þemaverkefnið um bókina Undur sem er verkefni um umburðarlyndi og fjölbreytileika og við gerðum líka alls kyns verkefni út frá þeirri bók.


Í níunda bekk fengum við nýja kennara. Við héldum í Ödda okkar en við fengum okkar allra bestu Írisi og Hjördísi til okkar. Flutningar settu svip sinn á þegar við vorum í 9.bekk vegna húsnæðisvanda og vorum við öll aðskilin fyrstu mánuðina, Hjördísar bekkur var niðri á miðstigi, Ödda bekkur var úti í eyju og Írisar bekkur var niðri í gömlu tónlistar stofunni. Við sameinuðumst í stjórnunarálmunni í desember og vorum þar fram í febrúar þegar við að lokum fórum í unglingadeildina og kláruðum skólaárið þar.


Við unnum tvö stór þemaverkefni í 9. bekk þau Skrímslið kemur og Allt í hers höndum. Við lásum bókina Skrímslið kemur og lærðum mikið um tilfinningar og ritgerðarskrif. Allt í hers höndum var mjög skemmtilegt og fræðandi verkefni þar sem við lærðum um seinni heimsstyrjöldina og hvernig þeir tímar voru. Við lásum bókina Strákurinn í röndóttu náttfötunum og við gerðum alls kyns verkefni upp úr þeirri bók og horfðum síðar á myndina. Í tíunda bekk héldum við enn í okkar besta kennarateymi og fengum að byrja árið á unglingastiginu í fyrsta skipti, það gerðist alls kyns skemmtilegt á okkar útskriftarári, stærsti partur þess var auðvitað besti söngleikurinn okkar Úlfur úlfur. Við viljum þakka Einari Viðarssyni fyrir tækifærið sem við fengum í verkefninu Úlfur úlfur. Oft erfitt en það var svo mikið þess virði, sem við munum taka með okkur út í lífið. Úlfur úlfur mun alltaf eiga stóran part í hjarta okkur.

Í maí fórum við svo í langþráða lokaferðina. Hún var eins geggjuð og við bjuggumst við og kannski aðeins betri en það. Við byrjuðum að lokum að græja árgangs bókina okkar sem var mjög spennandi en líka sorglegt vegna þess að þá fórum við að átta okkur á því að við værum að útskrifast úr grunnskóla. Elsku bestu bekkjarfélagar okkar takk kærlega fyrir öll þessi dásamlegu ár saman í Grundaskóla, það hefur verið þvílíkur heiður að vera með ykkur hérna í árgangi og fyrir það erum við ævinlega þakklát. Við eigum ótrúlega skemmtilegar og fyndnar minningar saman og margar koma upp í hugann núna. Við viljum hrósa ykkur öllum fyrir hversu frábær og dásamleg þið eruð orðin, við viljum líka hrósa strákunum okkar fyrir það að geta loksins farið á gervigrasið án þess að rífast, og já og miklu minna er um stelpudrama í dag en það var. Það eru miklar framfarir fyrir okkar árgang. Okkur þykir svo ótrúlega vænt um ykkur öll.


Næst viljum við þakka kennurunum okkar þeim Írisi, Hjördísi, Ödda og Rósu, elsku kennara teymið okkar, takk kærlega fyrir öll þessi æðislegu og frábæru ár sem þið hafið verið hérna með okkur. Við erum ótrúlega þakklát fyrir að hafa fengið ykkur sem kennara og fyrir allt sem þið hafið gert fyrir okkur. Við vitum að þetta hefur ekki alltaf verið auðvelt en þið hafið endalaust sýnt okkur þolinmæði og hvatt okkur áfram í því sem við höfum tekið okkur fyrir hendur. Við viljum líka biðjast fyrirgefningar á því að þið þyrftuð að vaka aðeins of lengi í lokaferðinni vegna þess að það var mikill galsi í hópnum. Okkur þykir öllum ótrúlega vænt um ykkur.


Að lokum sendum við sérstakar þakkir til Grundaskóla, skólastjórnenda og starfsfólks Grundaskóla fyrir 10 æðisleg ár. Munið að þið eruð öll dásamleg á ykkar eigin hátt, njótið lífsins og gangi ykkur vel í framtíðinni. Við vonum að við sjáum ykkur fljótt aftur. Takk fyrir okkur og eins og Siggi skólastjóri segir alltaf ,,Grundaskóli er okkar“


(Ræða flutt við útskrift af þeim Aldísi Ösp, Benedikt Víkingi og Tinnu)

10. HDG


10. ÍA

Aftasta röð frá vinstri:

Jóhann Máni Ástþórsson, Christian Sturri Watt, Hreinn Bergmann Sigurðsson, Theodór Orri Arilíusson, Alexander Almarsson, Jónas Laxdal Aðalgeirsson, Jóel Birgir Ásþórsson, Enok Logi Ásgeirsson, Heikir Darri Hermannsson, Atli Freyr Bjarnason.


Miðjuröð frá vinstri:

Helena Ósk Somlata Einarsdóttir, Elín Anna Viktorsdóttir, Aþena Líf Vilhjálmsdóttir, Marta Sóley Helgadóttir, Rakel Irma Aðalsteinsdóttir, Tinna Björg Jónsdóttir, Anna Lísa Axelsdóttir, Judite Guðbjörg Da Silva, Írena Rut Mareksd. Binkowska.


Neðsta röð vinstri:

Hekla Karen Steinarsdóttir og Guðrún Eiríksdóttir


Á myndina vantar: Ívar Wesley Baldursson, Lovísa Liljudóttir Daðadóttir, Nojus Vilimas og Vladyslav Kharlanov. 

10. ÖA