Skólablað Grundaskóla á rafrænu formi
Púlsinn 2023
Fréttaannáll
Bekkjamyndir
Myndbönd
Upplýsingar um eftirlitsmyndavélar og rafræna vöktun
6. ágúst 2022
Til upplýsingar þá er nú unnið að því að setja upp eftirlitsmyndavélar við skólann okkar í öryggisskyni. Slíkt öryggiskerfi hefur reynst vel við margar skólastofnanir til að tryggja öryggi og eftirlit. Gert er ráð fyrir að myndavélarnar verði teknar í notkun nú í haust og er samskonar kerfi sett upp í báðum grunnskólunum á Akranesi.
Um er að ræða rafræna vöktun í skilningi persónuverndarlaga og vélarnar settar upp í þágu öryggis og eignavörslu (starfsmanna, nemenda og annarra sem um mannvirkin fara) sbr. reglur Persónuverndar nr. 837/2006.
Vöktunin fer fram með stafrænum myndavélabúnaði og upptökur (myndskeið) verða vistaðar á lokuðum netþjóni sem er hýstur í vottuðum hýsingarsal og eingöngu aðgengilegur kerfisstjóra Akranesskaupstaðar. Upptökurnar eru varðveittar í allt að 10 daga en þá eytt varanlega.
Alls verða settar upp 17 myndavélar við Grundaskóla og er staðsetning þeirra auðkennd sérstaklega með upplýsingaskiltum um rafræna vöktun. Persónuupplýsingar sem verða til við þessa rafrænu vöktun í Grundaskóla munu aðeins verða notaðar í þágu öryggis og eignavörslu þeirra sem um mannvirkin fara. Aðeins er heimilt að afhenda lögreglu upplýsingar (upptökur) um slys eða meintan refsiverðan verknað í þágu rannsóknar opinbers máls. Staðsetning og fyrirkomulag eftirlitskerfis verður kynnt öllu skólasamfélaginu á haustfundum nú í upphafi skólaárs þannig að gagnsemi þess verði sem mest til að tryggja öryggi.
Tími mikillar uppbyggingar á skólamannvirkjum Grundaskóla – lofum veislu í verklok
10. ágúst 2022
Það hefur vart farið framhjá nokkrum að gríðarlega endurbætur hafa staðið yfir á skólamannvirkjum Grundaskóla. Síðustu tvö ára hafa farið fram miklar endurbætur og lagfæringar á húsnæði og öllum húsbúnaði. Markvisst hefur verið gengið til verks eftir að í ljós koma miklar rakaskemmdir fyrir um tveimur árum. Ákveðnum áfanga verður náð í haust þegar gamla stjórnunarálman hefur verið breytt í kennsluálmu. Sá áfangi markar þó ekki lok framkvæmda heldur í raun upphaf stórframkvæmda.
Á næstu mánuðum verður C- bygging skólans boðin út á evrópska efnahagssvæðinu og vonast er til að framkvæmdir hefjist af krafti í byrjun árs 2023. Framkvæmdir á Jaðarsbökkum eru komnar vel af stað en þar mun ný og betri mannvirki fyrir skólaíþróttir rísa. Endurbætur á Garðaseli hefjast með vorinu sem og lagfæringar á skólalóðinni. Eins og sjá má af meðfylgjandi mynd eru byggingarkranar komnir á loft og þeim mun bara fjölga á næstu mánuðum.
Byggingaframkvæmdir reyna vissulega á nemendur og starfsmenn og skólastarfið almennt. Við þurfum og munum öll einblína á lokamarkmið en ekki tímabundin vandamál. Verkefni okkar er að reka öflugt skólastarf og brúa næstu tvö ár með skapandi lausnum eða þar til að fullbúinn, nýr og glæsilegur Grundaskóli lítur dagsins ljós. Þegar sú stund rennur upp lofum við stórhátíð á bæ þar sem skólasamfélagið mun fagna glæsilegri uppskeru.


Húsvörður kominn til starfa í Grundaskóla
11. ágúst 2022
Það er mikið fagnaðarefni að á ný er starfandi húsvörður eða húsumsjónarmaður í Grundaskóla. Um tíu ára eru liðin síðan Lúðvík Helgason fv. húsvörður til langs tíma var færður yfir í áhaldahús bæjarfélagsins. Nú hafa bæjaryfirvöld ákveðið að ráða á ný húsverði í grunnskólanna og hefur Lárus Guðjónsson tekið við starfinu í Grundaskóla en mun einnig sinna leikskólunum Garðasel og Akrasel.
Við bjóðum Lárus velkominn til starfa í Grundaskóla og við vitum að hann á eftir að reynast okkur vel í öllum þeim viðhaldsframkvæmdum sem standa yfir í skólanum okkar.

Útvarp Grundaskóli – góðan dag
19. ágúst 2022
Við sækjum fram á mörgum stöðum og eitt af því sem við viljum efla í vetur er útvarp Grundaskóli. Útvarpstækni sem gefur nemendum okkar tækifæri til að búa til hlaðvarp og senda út eða eiga sjálf. Með slíkum hætti má efla nemendur í talmáli, rökræðu sem og að gera eitthvað skemmtilegt og nýtt í náminu.
Til að fylgja verkefninu eftir hefur nýr útvarpsstjóri tekið til starfa en það er gamall nemandi skólans, Margrét Saga Gunnarsdóttir Clothier. Hún ætlar að vinna með einstaklingum og hópum að skemmtilegum valsvæðum í vetur og aldrei er að vita nema að foreldrum verði boðið að taka þátt í gegnum s.k. frístundaval.

Líf og fjör í veðurblíðunni
24. ágúst 2022
Hluti af áttunda bekk Grundaskóla fór í vettvangsferð um bæinn sinn að skoða listaverk og kíktu í heimsókn á skrifstofu Skessuhorns.
7. bekkur fór í Skógræktina í blíðskapar veðri. Árgangurinn spreytti sig á allskyns leikjum og keppnum.
Síðan má með sanni segja að nýju nemendur okkar í 1. bekk (þessir í gulu vestunum) hafi blandast hópnum vel í frímínútum og eru þau kærkomin viðbót í nemendaflóru okkar.



Listaverk um allan miðbæ
21. september 2022
Á síðustu vikum hafa hinir ýmsu listamenn unnið að stórglæsilegum listaverkum við bæði stofnanir og fyrirtæki á Akranesi. Nýstofnuð miðbæjarsamtök Akraness eru hvatamenn að þessu skemmtilega framtaki.
Nemendur Grundaskóla telja skólann vera miðsvæðis og tóku sjálf til við listsköpun við stofnunina. Hér má sjá öflug ungmenni vinna að listaverkum á skólann okkar.

Dansveisla á Jaðarsbökkum
21. september 2022
Við í Grundaskóla tókum þátt í hreyfiviku ÍSÍ af miklum krafti. Við ákváðum að vera með dansþema þessa vikuna og hafa nemendur haft mjög gaman af þessu uppbroti. Lokadagur hreyfivikunnar var síðastliðinn föstudag og af því tilefni var boðið uppá sannkallaða dansveislu í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum. Nemendur og starfsfólk skólans komu og dönsuðu saman í frábærri stemmningu.
Dansaðir voru allskonar dansar og voru allir virkilega duglegir að hreyfa sig og hafa gaman. Þetta þurfum við að gera oftar.
Nokkrir fréttapunktar úr skólastarfinu
12. október 2022
Grundaskóli er heilsueflandi skóli og við leggjum áherslu á að allt starfsumhverfi skólans sé sem best. Eins og allir ættu að kannast við eru mikil þrengsli í skólanum vegna framkvæmda en vonandi lagast staða mála fljótlega þegar E-álma skólans kemst í notkun á ný. Markvisst er unnið að því að bæta stöðuna bæði innan skólans og utan.
Stórtíðinda er að vænta á þessum vettvangi varðandi útboð á C-álmu skólans, yfirtöku á Garðaseli o.fl. Þá er von á nýjum kennslugámum á skólasvæðið sem mun bæta aðstöðu okkar verulega. Við munum kynna stöðu mála varðandi endurbætur og framkvæmdir betur á næstu dögum.
Nú í haust höfum við lagt áherslu á að allir nemendur fái góða næringu í skólanum. Starfsfólk í mötuneyti skólans hefur unnið markvisst að uppbyggingu á nýjum matarskráningarvef sem nefnist Timian. Á þessum nýja vef er möguleiki á að skoða betur hvað er í matinn og hvernig orkugildi skiptist milli fæðutegunda. Við kynnum matarskráningarkerfið betur á næstu dögum en hér er mikið framfaraspor á ferð fyrir alla sem nýta þjónustu mötuneytisins.
Í haust höfum við styrkt grænmetisbar skólans en grænmeti er nær alltaf er í boði fyrir nemendur og starfsmenn. Unnið er að því að bæta tækjabúnað og koma upp betra kæliborði fyrir sjálfsafgreiðslu. Þegar því er lokið er möguleiki á að auka fjölbreytni og bæta öll gæði. Í haust voru áform uppi um að taka aftur upp ávaxtastundina en nú hefur verið horfið frá því. Í staðinn höfum við tekið upp á því að hafa ávaxtabita í boði í mötuneytinu fyrir þá sem vilja. Samhliða þessu er hugmyndin að kynna hvern ávöxt sérstaklega fyrir nemendum og gildi hans fyrir fólk á öllum aldri.
Á næstu dögum hefst átak skólans gegn matarsóun og viljum við gjarnan að engum matvælum sé hent. Það er sjálfsagt að fá sér ábót ef maður en svangur en við viljum alls ekki að matnum sé hent eða að einhverskonar óhóf viðgangist.
Nú nálgast vetur og allra veðra er von. Við hvetjum allt okkar fólk til að nota vistvænar samgöngur. Það er algjör óþarfi að keyra börn í skólann alla daga. Á næstu dögum hefst gangbrautagæsla við allar stærri gönguleiðir að Grundaskóla. Við hvetjum alla til að nota endurskinsmerki og fara varlega í umferðinni.
Um áramót hefst aukin flokkun á rusli á öllum heimilum á Akranesi. Við í Grundaskóla ætlum ekki að láta okkar eftir liggja í þessum málum og munum herða okkur í fræðslu og sorpflokkun í skólanum. Vonandi getur samfélagið okkar sameinast um að gera enn betur og stíga stórt framfaraspor í allri umhverfishugsun.
Nemendur Grundaskóla koma víða að dagskrá á Vökudögum á Akranesi. Má í því sambandi benda á myndlistarsýningar og kórsöng. Einnig stendur nú yfir mikill undirbúningur fyrir Vetrarnætur á Byggðasafninu í Görðum. Þá er undirbúningur fyrir jólahátíðina að hefjast og æfingar fyrir leiksýningar komnar á dagskrá. Menningarstarf í skólanum stendur sannanlega í miklum blóma.
Á síðasta ári stóð skólinn fyrir nokkrum frístundanámskeiðum og voru þau vel sótt af nemendum og foreldrum en eitt af megin markmiðum þessara fræðslutilboða er að gefa nemendum og foreldrum tækifæri til að vinna að einhverju uppbyggilegu og skemmtilegu saman. Á næstu dögum munum við taka upp þráðinn og bjóða upp á spennandi frístundanámskeið. Meira um það síðar.
Það verður seint of sagt hversu mikilvægur svefninn er fyrir ungt fólk og mikilvægt að allir komi vel hvíldir í skólann og fái nægan nætursvefn. Það er margsannað að góð líðan er lykill að góðum námsárangri. Við höfum veitt því athygli að mánudagar eru oft erfiðari en aðrir dagar og einnig dagar eftir frídaga í miðri viku. Það er gott ráð að reyna að halda í allar venjur og haldi í rútínuna varðandi hvíldartíma barna.
Nú er haustfundum með foreldrum að ljúka og ef eitthvað er enn óljóst varðandi skipulag skólastarfsins hvetjum við alla til þess að hafa samband við kennara og skólastjórnendur til að fá frekari upplýsingar.
Rannsóknir hafa sýnt fram á að góð samskipti milli foreldra er ein besta forvörnin. Við hvetjum foreldra til skoða og sameinast um það hvernig þið viljið hafa umgjörðina um ykkar börn. Samtaka erum við sterkari í uppeldinu. Við vekjum athygli á að Heimili og skóli eru með góðar leiðbeiningar um gerð bekkjarsáttmála.
Að lokum viljum við hvetja alla sem vilja starfa í foreldrafélagi skólans að láta vita af sér og taka þátt í starfinu. Öflugt og uppbyggilegt foreldrastarf í öllum árgöngum skólans styrkir skólastarfið og þjónustu við börnin.
Vinnum saman og gerum betur og betur.
Grundaskóli er OKKAR
Nemendur í 9. og 10. bekk fá fartölvur til afnota í náminu
13. október 2022
Á næstu dögum munu öll börn í 9. og 10. bekk Grundaskóla eiga kost á að fá fartölvur til afnota í náminu og eru tölvurnar eingöngu hugsaðar sem námstæki.
Tölvurnar eru einkatölvur í þeirri merkingu að þær færast ekki á milli nemenda á lánstímanum og verða alla jafnan geymdar í skólanum en möguleiki er á að taka þær heim ef sinna þarf námsverkefnum. Tölvurnar eru í eigu skólans og nemendur fá þær afhentar að uppfylltum ákveðnum ábyrgðarskilmálum og með formlegu samþykki foreldra eða forráðamanna.
Grunnskólarnir á Akranesi eru samstíga í þessari innleiðingu þó örlítill áherslumunur kunni að vera á milli skóla s.s. varðandi útfærslu. Það eru kennarar í umræddum árgöngum sem stýra innleiðingu og vinnu með þessi námstæki.
Þessar nýju tölvur munu bæta tækjakost okkar verulega og auka möguleika nemenda til þess að nota stafræna tækni í náminu. Ekki er skilyrði að nýta þessar tölvur heldur geta nemendur áfram notað almennar vélar skólans eða sínar einkavélar. Mikilvægt er að foreldrar taki ákvörðun með sínu barni hvort það ætli að nýta sér þetta tilboð og undirgangast þá ábyrgðarskilmála sem eru settir varðandi umgengni og notkun.
Akraneskaupstaður hefur útbúið notkunarskilmála varðandi námstækin en samþykki þeirra er forsenda þess að nemendur geti fengið sitt sértæki afhent. Lánsreglur og skilmálar verða til kynningar fyrir nemendur og forráðamenn á næstu dögum.
Í nánustu framtíð er stefnt á að allir nemendur í 8.-10.bekk eigi kost að fá fartölvu að láni. Bæði nemendur og kennarar hlakka til að takast á við ný og spennandi verkefni í fjölbreyttu, framsæknu og skapandi skólastarfi.
Krakkar með krökkum
27. október 2022
Í kvöld kom Vanda Sigurgeirsdóttir og kynnti verkefnið "Krakkar með krökkum" sem er leiðtogaþjálfun og forvarnarverkefni sem er að hefjast í Grundaskóla. Fjöldi fólks mætti á kynninguna og var nánast fullt út úr húsi. Nú er að hefjast skemmtilegt verkefni sem allt skólasamfélagið tekur þátt í og gaman verður að fylgjast með í framtíðinni. 9. bekkur fer fyrir verkefninu og fá nemendur sérstaka fræðslu og undirbúning á næstu dögum og vikum.
Við þökkum öllum þeim sem mættu á kynninguna. Þeir sem hins vegar misstu af þessum kynningarfundi geta fylgst með fréttum og umfjöllun hér á Weduc og í tilkynningum frá skólanum.
Í sameiningu ætlum við að efla börnin okkar og skólasamfélag.

Stærðfræði og listir á Vökudögum
27. október 2022
Í dag, fimmtudaginn 27. október kl. 18, opnar stærðfræði og listasýning nemenda og starfsmanna Grundaskóla í húsnæði Tónlistaskólans á Akranesi. Sýningin er hluti af listadagskrá Vökudaga í bæjarfélaginu.
Á sýningunni verða sýnd verk nemenda sem tengja saman stærðfræði og listir. Nemendurnir hafa verið að æfa sig í að teikna alls konar mynstur með hringfara. Mynstrin hafa líka tengst öðrum verkefnum eins og víkingaþema. Í tengslum við þetta teiknuðu nemendur svokallaðan þrenningarhnút. Einnig hafa þeir blandað inn í mynstrin Zentangle teikniaðferð, sem gengur út á að læra mynstureiningar og raða saman í stærri mynstur, prófa þráðaverkefni, speglun og pappírsbrot, svo eitthvað sé nefnt.
Við hvetjum alla bæjarbúa til að líta við og skoða fjölmörg glæsileg verk.

Vetrarnætur
31. október 2022
Það er almenn vitneskja um að reimt sé á Byggðasafninu. . . Dyr þess verða opnaðar fyrir þá sem þora Mánudaginn 31. október kl: 19:30- 21:30
Móra og skottur fá að leika lausum hala þetta eina kvöld og eiga það til að græta/væta stórmenni . . .
Um sjötíu nemendur Grundaskóla vinna nú að verkefninu undir vaskri verkstjórn Auðar Líndal.
Við vekjum athygli á því að gestir eru á eigin ábyrgð og leggjum til að börn og þeir allra viðkvæmustu hafi varann á og mæti í fylgd með fullorðnum/hugrökku

Barnaþing
3. nóvember 2022
Í gær var haldið Barna- og ungmennaþing í Þorpinu sem er liður í innleiðingu Barnvæns sveitarfélags á Akranesi. Barnvænt sveitarfélag vinnur eftir barnasáttmálanum.
5. bekkur átti 8 fulltrúa sem stóðu sig vel

„Breytum krónum í gull“
10. nóvember 2022
Upplýsingar
Undanfarna daga og vikur hafa nemendur og starfsfólk Grundaskóla verið að undirbúa svokallaðan Malavímarkað sem fram fer í Grundaskóla, fimmtudaginn 24. nóvember og hefst klukkan 11:30 og lýkur um klukkan 13:00. Ekki eru allir sem þekkja til þessa verkefnis og því vil ég senda öllu skólasamfélaginu eftirfarandi upplýsingar.
Hvað gerist þá
Til sölu verður fjölbreytilegur varningur sem búinn er til af nemendum Grundaskóla en allur ágóði rennur til styrktar skólastarfi og hjálparstarfi fyrir ungar konur og börn í Malaví, einu af fátækustu ríkjum heims. Þennan dag geta gestir rölt á milli sölubása, skoðað skólann, rætt við nemendur og starfsfólk og slakað á inni á sal skólans þar sem hægt er að kaupa skúffukökur og rjúkandi drykki. Jafnframt bjóða nemendur skólans upp á tónlistaratriði.
Allir bæjarbúar eru hjartanlega velkomnir í Grundaskóla og við ætlum að blása gleði og bjartsýni um allt samfélagið okkar. Hér mun fólk vonandi finna hreinan tón, orku og bjartsýni og einlægan vilja til að gera heiminn okkar betri.
Forsagan
Góðgerðardagur Grundaskóla hefur ekki verið haldinn s.l. tvö ár en var haldinn árlega til fjölda ára eða allt frá árinu 2007. Malavísöfnunin hófst þegar nemendur skólans ákváðu að leggja niður þá ára gömlu hefð að gefa hverjum öðrum jólagjafir en setja í stað þess ákveðna upphæð í söfnun þar sem markmiðið var að láta gott af sér leiða og gefa þeim sem þurfa meira á því að halda.
Síðar hófst sala muna til að gefa öllu samfélaginu kost á að vera með og leggja málefninu lið. Leyfa gestum og gangandi að koma inn í skólann okkar og finna þann sköpunarkraft sem í okkur býr.
Í gegnum árin hafa safnast heilmiklar fjárhæðir sem Rauði krossinn á Íslandi hefur haft milligöngu með að koma í réttar hendur. RKÍ stendur að umfangsmiklu hjálparstarfi í þessu fátæka landi og snýr stuðningur Grundaskóla fyrst og fremst að hjálpa fólki til sjálfshjálpar, styðja ungar mæður og börn til náms. Framlag Grundaskóla skiptir nú mörgum milljónum króna en verkefnið er stórt og vandi og neyð fólks mikil.
Breytum krónum í gull
Yfirskrift söfnunar í Grundaskóla ber yfirskriftina „breytum krónum í gull.“ Það vísar til þess að við gefum krónur sem breyta ekki öllu í lífi okkar hér heima en breytist í gull hjá þeim sem á ekkert. Einnig vísar yfirskriftin til þess að þeir munir sem eru unnir af nemendum og starfsmönnum hafa endurnýtingu að leiðarljósi. Við vinnum með hluti sem eru einskis metnir og breytum í fallega muni sem gleðja. Við vinnum með hugvit og umhverfishugsun þannig að kostnaður sé sem minnstur í framleiðslu og afraksturinn sé sem mestur fyrir söfnunina.
Af hverju Malaví
Það er vissulega fjöldi fólks um allan heim sem þarfnast aðstoðar. Við höfum hins vegar einbeitt okkur að hjálparstarfi í Malaví. Ástæðan er einkum þríþætt. Í fyrsta lagi að með öruggu samstarfi við RKÍ tryggjum við að fjármunir sem við söfnum komast til þeirra sem þurfa á því að halda. Í öðru lagi þá er Malaví, samkvæmt skýrslum Samvinnuþjóðanna og hjalparstofnana, eitt af fátækustu ríkjum heims og glímir við hvað erfiðastan vanda allra ríkja. Þriðja ástæðan er vilji Grundaskóla að styðja fólk til sjálfshjálpar og styðja börn og ungmenni til náms. Þróunar- og hjálparstarf í þorpunum Chiradzulu og Mwanza fellur vel að þeim markmiðum.
Stolt af verkefninu
Við í Grundaskóla erum afar stolt af þessu verkefni og hvetjum sem flesta til að mæta í Grundaskóla til að eiga notalega stund og styrkja gott málefni í leiðinni. Til þessa hafa m.a. skólagjöld verið greidd, skólabúningar og skólavörur keyptar auk þess sem mikill fjöldi barna hefur fengið félagslegan stuðning frá sjálfboðaliðum Rauða krossins. Mörg barnanna eru munaðarlaus vegna alnæmisfaraldurs og hafa fjármunir einnig nýst til umönnunar þeirra.
Við höfum staðfestar heimildir fyrir því að söfnunarfé hefur skilað miklu á vettvangi og fyrra söfnunarfé hefur sannanlega breyst úr krónum á Akranesi í gull í Malaví.
Sigurður Arnar Sigurðsson
Skólastjóri
Umferðaröryggi fyrir alla vegfarendur - gangabrautaverðir
15. nóvember 2022
Við í Grundaskóla leggjum mikla áherslu á að tryggja sem best umferðaröryggi í nágrenni skólans. Til fjölda ára hafa eldri nemendur staðið vaktina á gangbrautum að skólanum og lagt þannig sitt af mörkum til að tryggja öruggar gönguleiðir yngri nemenda. Unglingar sem vakna og mæta til starfa 20 mín fyrr en ella og standa úti í öllum veðrum um vetur. Á þennan hátt vinna nemendur mikilvægt sjálfboðaliðastarf fyrir skólasamfélagið okkar.
Fyrirtæki og einstaklingar haf styrkt nemendur í gegnum tíðina í þessu verkefni með því að kaupa umferðarvesti, lagt framlag í ferðasjóð ungmenna o.s.frv. Í dag styrkir Landsbankinn gangbrautavörsluna.

Hvað ætlar skólinn að gera?
15. nóvember 2022
Pistill Sigurðar Arnars Sigurðssonar skólastjóra sem birtist á Vísi.
Mikil umræða hefur skapast um íslenskar skólastofnanir á síðustu misserum. Umræðan hefur oftar en ekki tengst neikvæðum hlutum s.s. að árangur skólastarfs sé slakur, að skólafólk sinni ekki eineltismálum sem skyldi eða jafnvel að skólafólk beiti ekki réttum kennsluaðferðum t.d varðandi lestrarkennslu.
Þessi umræða einkennist umfram annað af fullyrðingum sem standast illa skoðun og byggja oftar en ekki á mati einstaklinga sem telja sig hafa fundið upp einu réttu lausnina og hafi svar við öllum hlutum. Allir ættu hins vegar að vita að nám og uppeldi er flóknara en svo að til sé eitt rétt svar eða ein rétt leið sem hentar öllum.
Fjölmiðlar vilja gjarnan fjalla um skólafólk en hafa minni áhuga á að tala við það. Ef upp koma fullyrðingar um eitthvað sem betur má fara í skólum, taka fjölmiðlar og samskiptamiðlar við sér. Umræðan er oft á tíðum með slíkum eindæmum að skólafólk á ekki eitt aukatekið orð. Harkan og óbilgirnin sem þarna á sér stað er eitthvað sem við sem samfélag þurfum að hugsa alvarlega um.
Ég ætla ekki að halda því hér fram að allt sé fullkomið í skólum eða samfélaginu almennt. Margt gengur ekki eins vel og við viljum hafa það. Það að halda því hins vegar fram að skólafólk leggi sig ekki fram eða láti sig ekki varða hagsmuni nemenda sinna og samfélags er kolrangt. Í skólum starfar vel menntað starfsfólk sem leggur nótt við dag við að sinna því sem mestu skiptir í lífinu. Það er að gæta barnanna okkar og efla þau á allan hátt.
Í öllum skólum er unnið að frábærum skólaverkefnum. Ég hef starfað að skólamálum í þrjátíu ár og þekki vel til. Í hvert skipti sem ég kem inn í skóla sé ég eitthvað nýtt og frábært sem ég reyni að læra af og nýta. Ekki verður annað séð en að almenningur sé á sama máli því samkvæmt könnunum og gæðamati fær skólastarfið á Íslandi góða umsögn. Hér á vel við orðatiltækið, glöggt er gests auga. Erlendis vekur t.d. athygli hvernig íslenskt skólakerfi hélt úti kennslu og starfsskipulagi í heimsfaraldri meðan aðrar þjóðir þurftu að loka sínum skólum svo vikum og mánuðum skipti.
En hvað veldur þessari neikvæðu umræðu í fjölmiðlum? Hér er erfitt að svara en svo virðist sem skólastofnanir séu gerðar ábyrgar fyrir öllu sem misferst í samfélaginu. Dæmi um það eru nýlegar fréttir í fjölmiðlum. Til dæmis fréttir þar sem fjallað er um erfiðar forræðisdeilur og vaxandi rasíska orðræðu. Annað dæmi eru eineltismál sem tengjast inn í marga skóla, íþróttafélög og fjölda heimila. Þriðja dæmið er stuldur ungmenna í stórmarkaði að kvöldi og lögregla er kölluð til. Fjórða dæmið eru hópslagsmál ungmenna á leiksvæði um helgi. Fimmta dæmið er vaxandi áhyggjur af tölvu og símafíkn barna og ungmenna. Áfram mætti lengi telja en það sem þessar fréttir eiga sameiginlegt er að í umræðu í tengslum við þær er alltafspurt: Hvað ætlar skólinn að gera?
Skólastofnanir sinna mikilvægu hlutverki í samfélaginu, það er óumdeilanlegt. En að gera skóla og skólafólk ábyrgt fyrir öllu sem misferst er einkennilegt svo ekki sé sterkaratil orða tekið. Lykill að góðum árangri er ekki að finna sökudólg fyrir því sem misferst. Árangur okkar ræðst af góðu samstarfi heimilis og skóla. Við sem samfélag stöndum frammi fyrir óteljandi hættum og áskorunum. Það hefur sjaldan eða aldrei verið flóknara að ala upp barn. Stafræn tækni hefur tekið völdin og við höfum öll það verk að vinna að láta tæknina þjóna okkur en ekki stjórna. Allt samfélagið þarf að leggjast á eitt til að vinna saman á uppbyggilegan hátt og gera betur.
Skólar og starfsmenn þeirra ætla ekki að elta niðurrifstal, sleggjudóma og á köflum hreinan dónaskap á samfélagsmiðlum. Á slíku er ekkert gott að byggja. Ég fullyrði að skólafólk vill vinna með nemendum sínum, foreldrum og skólasamfélaginu í að skapa betra samfélag. Áskoranir nútímans eru ekki einkamál skóla heldur okkar allra. Til að skólar verði enn betri menntastofnanir og veiti betri þjónustu þarf aðhald en fyrst og fremst samvinnu, velvild og stuðning.
Stöndum saman, aukum samstarf og eflum skólastarf á öllum skólastigum með jákvæðni að leiðarljósi.
Höfundur er skólastjóri Grundaskóla og formaður skólastjórnendafélags Vesturlands.
Unga fólkið okkar er frábært!
16. nóvember 2022
Í gær var bæjarstjórnarfundur unga fólksins haldinn í 21. sinn og áttum við í Grundaskóla glæsilega fulltrúa. Sex fulltrúar, núverandi og fyrrverandi nemendum skólans héldu ræðu. Skemmst er frá því að segja að allir stóðu sig mjög vel og voru sér og sínum til sóma. Málefnin sem fjallað var um eru þau efni sem komu fram á barnaþingi Akraneskaupstaðar sem haldið var 3. og 4. nóvember síðastliðinn. Þar komu saman nemendur úr 5. -10. bekk til að ræða málin.
Við í Grundaskóla erum ótrúlega stolt af okkar fólki sem stóð sig frábærlega.

Hvernig getum við hjálpast að?
21. nóvember 2022
Fundur foreldraráðs og skólastjórnar Grundaskóla
Fimmtudaginn 17. nóvember síðastliðinn, fundaði skólastjórn með foreldraráði skólans þar sem rætt var um hvernig við gætum styrkt enn betur samstarf foreldra og skólans.
Fundurinn var að beiðni foreldraráðs. Á fundinum voru ýmis mál rædd eins og agamál, hegðun, orðbragð, einelti, útivistartími barna, notkun snjallsíma og ræddar voru hugmyndir um hvernig við getum virkjað foreldrasamfélagið og tekið höndum saman um að styrkja það sem vel er gert og bæta úr því sem betur má fara.
Til dæmis var rætt um að kynna þyrfti betur verkferla um grun um einelti þannig að enginn vafi væri hvert ætti að leita ef slík staða kemur upp í hópnum. Enn fremur var talað um að í skólanum væri útbúið veggspjald sem upplýsti nemendur um hvert þeir gætu leitað ef þeim líður illa.
Niðurstaða fundarins var sú að kalla saman alla foreldrafulltrúa skólans til að ræða þessi mál strax í byrjun janúar.
Skólastjórn fagnar þessu frumkvæði foreldraráðs og erum við meira en tilbúin í aukið samstarf við foreldra og aðstandendur í skólanum okkar.
Samverustund 1. bekkja og leikskóla
23. nóvember 2022
Það var gleðistund í skólanum í dag þegar nemendur í 1.bekk Brekkubæjarskóla og Grundaskóla komu saman ásamt nemendum frá eldri deildum leikskólana sem munu hefja grunnskólagöngu sína næsta haust.

Fullt út úr dyrum á Malavímarkaði
24. nóvember 2022
Í dag er góðgerðardagur í Grundaskóla til styrktar hjálparstarfi í Malaví. Undanfarna daga og vikur hafa nemendur og starfsfólk skólans undirbúið markaðinn en þar var til sölu fjölbreytilegur varningur. Fullt var út úr dyrum og margir með seðla á lofti til að tryggja sér fljóta og örugga afgreiðslu. Meðal annars var hægt að kaupa handverk úr leir og textíl, skreyttar krukkur, kökudeig, kókoskúlur, bækur og dót, pulsur og djús og kökur og kaffi. Eins og svo oft áður segja myndir meira en orð.
Alls söfnuðust 1160 þúsund krónur á góðgerðardegi okkar fimmtudaginn 24. nóvember. Frábær dagur og niðurstaða í alla staði og stórt hrós á skólasamfélag Grundaskóla. Umræddir fjármunir hafa nú þegar verið færðir inn á hjálparreikning Rauða kross Íslands sem mun tryggja að peningarnir nýtist sem best fyrir þá sem minnst mega sín.
Takk enn og aftur fyrir stuðninginn og þátttökuna í góðgerðardeginum okkar.

Leiklistarstarf í miklum blóma
28. nóvember 2022
Leiklistarstarf í Grundaskóla blómstarar sem aldrei fyrr. Framundan eru a.m.k. þrjár frumsýningar á þessu skólaári. Nemendur og starfsmenn sinna undirbúningi dag og nætur, virka daga sem um helgar. Meðfylgjandi eru myndir frá s.l. sunnudegi þar sem unnið er að uppsetningu á leikritinu Galdrakarlinn í OZ en það er leiklistarval unglingadeildar sem stendur að þeirri uppfærslu undir leikstjórn Einars Viðarssonar.
Leiksýningin er að þessu sinni miðuð við nemendur Grundaskóla og alls verða fimm sýningar á fimmtudag og föstudag í næstu viku. Venjan er að bjóða samstarfsfólki af leikskólunum og við reynum að gera það í ár eftir því sem húsrúm leyfir.

Góðir gestir í heimsókn – sannar fyrirmyndir á ferð
8. desember 2022
Í dag komu tveir „gamlir“ nemendur Grundaskóla í heimsókn og ræddu við nemendur og kennara. Hér voru á ferð Ísak Bergmann Jóhannesson og Hákon Haraldsson en þeir eru báðir atvinnuknattspyrnumenn hjá FC Köbenhavn í Danmörku. Þeir félagar héldu skemmtilegan fyrirlestur á sal og ræddu við nemendur um líf sitt sem atvinnumenn í knattspyrnu, mikilvægi þess að standa sig sem einstaklingar og gera ávallt sitt besta. Árangur kemur ekki nema að vera góður vinur, koma vel fram við aðra, stunda nám og starf af metnaði og vera heiðarlegur. Einnig er mikilvægt að borða holla fæðu, sofa vel og hugsa jákvætt.
Þeir félagar ræddu við nemendur í ólíkum bekkjum um allt á milli himins og jarðar og fóru síðan út á fótboltavöll og stýrðu leikjum í frímínútum. Einnig færðu þeir skólanum sínum að gjöf áritaðar landsliðstreyjur með þökk fyrir samfylgd og góðan tíma.
Hér eru sannar fyrirmyndir á ferð sem vildu miðla af reynslu sinni til þeirra sem yngri eru og styðja öflugt skólastarf í Grundaskóla. Nemendur og starfsmenn þakka þeim félögum fyrir óvænta en afar ánægjulega heimsókn.

Nýr útipallur vígður við Grundaskóla
9. desember 2022
Í vikunni lauk Lúðvík Helgason, smiður og fyrrum húsvörður í Grundaskóla, við að byggja nýjan og glæsilegan útipall við skólann. Pallurinn er sunnan megin við skólann og mun í framtíðinni hýsa útikennslu og vinnuaðstöðu fyrir nemendur skólans. Einnig er möguleiki á að ganga út úr mötuneytinu og borða úti á góðviðris dögum. Pallurinn er allur hin mesta listasmíð og hluti af þeirri markvissu uppbyggingu sem unnið er að í Grundaskóla um þessar mundir.
Hér má sjá þegar Sigurður Arnar skólastjóri þakkaði Lúðvík fyrir frábæra vinnu og tók formlega við verkinu fyrir hönd Grundaskóla.

Skólakórinn okkar
12. desember 2022
Skólakórinn okkar söng við aðventustund í Akraneskirkju sunnudaginn 11. desember sl. Þau stóðu sig virkilega vel, sungu svo fallega og hegðunin til fyrirmyndar.
Gaman að segja frá því að lagið Heilög Lúsía úr norska jóladagatalinu Jól í Snædal hefur fylgt kórnum frá upphafi og krakkarnir sem lærðu lagið fyrst eru komin yfir tvítugt í dag. Margir sem hafa tekið þátt í kórstarfinu gegnum árin, það er dýrmætt.
Jólakveðjur frá Skólakór Grundaskóla

Skautasvell á ný í Krúsina
12. desember 2022
Eldri kynslóðir minnast þess að hafa skautað á svæði sem Grundaskóli stendur á og var oft nefnt "Krúsin". Færri vita að á skipulagi skólalóðar Grundaskóla er gert ráð fyrir nýju skautasvelli og nú er framundan mikill frostakafli. Við látum slíkt tækifæri ekki framhjá okkur fara og í morgun hófst undirbúningur við að koma upp skautasvelli í "nýju Krúsinni". Við höfum ekki mörg leiktæki og skólalóðin er eins og önnur skólamannvirki í miklu uppbyggingarferli.
Skautasvellið er gjöf í tilefni af 80 ára afmæli Akraneskaupstaðar til bæjarbúa og er tileinkuð börnum á Akranesi.
Við frumsýnum leikverk enn á ný
14. desember 2022
Einn af styrkleikum Grundaskóla er öflugt leiklistarstarf. Fyrir rúmri viku frumsýndi leiklistarval unglingadeildar Galdrakarlinn í Oz. Í dag frumsýnir 7. bekkur leikverkið Ástarsaga Guðríðar og Lúðvíks sem er frumsamið leikverk í tilefni jólanna og jóladagskrár í Grundaskóla. Umsjónarmenn og leikstjórn er í höndum þeirra Angelu Árnadóttur, Lilju Margrétar Ridel og Margrétar Sögu Gunnarsdóttur. Alls verða níu sýningar á næstu dögum og ávallt fullt út úr húsi.

Forsetahjónin heimsækja Akranes
15. desember 2022
Í tilefni 80 ára afmælis Akraneskaupstaðar á þessu ári mun Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og frú Eliza Reid eiginkona hans koma í opinbera heimsókn á Akranes fimmtudaginn 15. desember.
Forsetahjónin munu meðal annars heimsækja leik og grunnskóla bæjarfélagsins en Brekkubæjarskóli og Grundaskóli munu standa að sameiginlegri móttöku í Brekkubæjarskóla þar sem fulltrúar grunnskólanema á Akranesi munu kynna metnaðarfullt skólastarf á Skipaskaga.
Fulltrúar Grundaskóla við þessa athöfn verða meðlimir í skólakór skólans ásamt fulltrúum er koma úr 9. bekk. Heimsókninni lýkur svo með hátíðardagskrá í tengslum við 80 ára afmæli bæjarfélagsins á Breið.

Framkvæmdir til að auka umferðaröryggi
16. desember 2022
Akraneskaupstaður stendur nú að framkvæmdum í skólahverfi Grundaskóla til að bæta umferðaröryggi og greiða fyrir umferðarflæði. Þessar framkvæmdir felast m.a. í að bæta lýsingu við gangbrautir á Garðagrund og að gera auka akrein á gatnamótum við Víkurbraut. Þar hefur viljað myndast ákveðinn umferðartappi á háannatíma.
Við fögnum þessum framkvæmdum og höfum fulla trú á að þær muni verða vel heppnaðar.
Grundaskóli hvetur nemendur og starfsmenn enn og aftur til að nota virkan og umhverfisvænan ferðamáta og ganga til og frá skóla. Hér á Akranesi eru ekki þær vegalengdir að ekki megi ganga og nýta tímann til heilsueflingar.

Ný og fullkomin sýningarljós tekin í notkun í Grundaskóla
19. desember 2022
Í vikunni lauk uppsetningu og frágangi á nýjum og fullkomnum ljósabúnaði í sal Grundaskóla. Nýju ljósin munu auka möguleika og auðvelda uppsetningu á listviðburðum í skólanum. Þetta á ekki síst við uppsetningu á leikverkum og tónlistarviðburðum. Nýju ljósin eru sýningarljós af fullkomnustu gerð líkt og finnast í atvinnuleikhúsum.
Þetta er stór fjárfesting en margir velunnarar Grundaskóla standa að baki þessari framkvæmd. Við þökkum öllum er komu að þessu verkefni fyrir veglegan stuðning og góða vinnu.
Nýju sýningarljósin voru vígð á frumsýningu á verkinu Galdrakarlinn í Oz í uppsetningu leiklistarvals Grundaskóla. Margar spennandi leik- og listasýningar eru framundan í Grundaskóla og þar mun þessi búnaður koma sannanlega að góðum notum.
Grundaskóli er OKKAR - Við sækjum fram á öllum sviðum

Fréttapunktar úr skólastarfi Grundaskóla janúar 2023
9. janúar 2023
Gleðilegt ár gott fólk og takk fyrir gott samstarf á liðnu ári.
Árið 2023 verður án vafa viðburðarrríkt í skólastarfi Grundaskóla eins og mörg fyrri ár. Árið 2022 var okkur gott þó ýmislegt tengt húsnæðismálum hafi valdið vandræðum. Grundaskóli stækkar jafnt og þétt bæði hvað varðar nemendafjölda og húsrými. Við búum vel á mörgum sviðum og í skólanum er rekið öflugt skólastarf. Grundaskóli er eftirsóttur vinnustaður og við höfum á að skipa úrvals starfsfólki í öllum stöðum. Í þessum fréttapistli vill skólastjórn upplýsa skólasamfélagið um nokkra þætti sem eru framundan í starfinu á nýju ári.
Nýbygging boðin út
Akraneskaupstaður og hönnuðir hafa nú lokið undirbúningi útboðsgagna fyrir nýjan Grundaskóla og uppbyggingu á C-álmu skólans. Óskað hefur verið eftir verktökum í verkið og skal framkvæmdum vera lokið í nóvember 2024. Þetta er stór áfangi sem bera að fagna því nú hefst formlega uppbygging á nýjum Grundaskóla sem mun halda utanum skólastarf okkar til framtíðar. Ný og glæsileg bygging hönnuð með nútíman og framtíðarhugsun í huga.
Við munum kynna fyrirhugaðar framkvæmdir betur á næstu vikum en nánar má lesa um útboðið á eftirfarandi slóð;
E-bygging tekin í fulla notkun
Nú í byrjun árs klára verktakar endurgerð á s.k. E-byggingu skólans eða gömlu stjórnunarálmunni. Þá eru komnar þrjár kennslustofur ásamt vinnusvæðum fyrir minni og stærri hópa. Skrifstofa skólans mun flytja úr bráðabirgða aðstöðu á bókasafni í framtíðaraðstöðu við aðalinngang skólans. Allt eru þetta velheppnaðar endurbætur sem munu nýtast skólastarfinu til framtíðar. Á fyrstu mánuðum ársins verða kennslustofur nýttar til bekkjarkennslu en þegar líður á vorið færast valgreinar á þetta kennslusvæði og verða þar til framtíðar ásamt fundaraðstöðu fyrir stoðþjónustu, starfsmenn og gesti skólans.
10. bekkur heim – uppsetning á söngleik
Í upphafi árs 2023 kemur 10. bekkur heim í Grundaskóla á ný eftir rúmlega tveggja ára fjarveru. Akraneskaupstaður hefur leigt húsnæði af Fjölbrautaskóla Vesturlands við Vallholt en nú er árgangurinn á heimleið. Þegar mest gekk á starfaði Grundaskóli í sjö byggingum dreift um allan bæ en verður sameinaður á Grundunum í byrjun árs 2023.
Fyrstu vikur ársins verða vissulega áskorun fyrir okkur en í byrjun mars verður húsnæði skólans komið í betra horf og nýjar kennslustofur tiltækar. Á þessu ári munu margir árgangar flytja til um stað og starfsemin verða endurskipulögð miðað við framtíðarskipan.
Ástæða þess að 10. bekkur heldur heim á þessum tímapunkti er vinna við lokaverkefni hópsins en það er uppsetning á söngleiknum Nornaveiðar sem við stefnum á að frumsýna á sal skólans í byrjun febrúar n.k. Söngleikurinn er risa skólaverkefni sem við ætlum að leysa með glæsibrag með öflugum nemenda og starfsmannahópi. Einnig munu fjölmargir foreldrar og velunnarar skólans koma að þessari uppsetningu.
Unglingadeild endurreist
Samhliða fyrrgreindum tilfærslum innan skólans verður unglingadeild endurreist í B-álmu við Víkurbraut. Margir hafa saknað þess að skólinn hafi ekki haft 8. - 10. bekk á einum stað og félagsstarf unglinga hefur átt í vök að verjast vegna húsnæðismála. Nú eru breytingar framundan og unglingadeild skólans sameinast á ný í sínum húsakynnum.
Grundaskóli tekur yfir húsnæði Garðasels – frístund flytur
Nú er uppbyggingu á nýjum leikskóla að ljúka og Garðasel flytur alla starfsemi sína þangað í janúar. Á sama tímapunkti tekur Grundaskóli við fyrri aðstöðu leikskólans og sameinar starfsemina. Frístund skólans mun flytja af yngsta stiginu og yfir á það sem hér eftir verður kallað Grundasel. Þessar breytingar eru stór breyting í skólastarfinu því segja má að Grundaskóli hafi í raun verið tvísetinn allt til þessa dags.
Auk frístundastarfs þá munu listgreinar s.s. textíll, myndlist og matreiðsla færa kennsluaðstöðu sína yfir á Grundasel og verða þar til að endurbyggingu C-álmu er lokið 2024. Til framtíðar mun Grundasel vera miðstöð listastarfs og valgreinakennslu.
Átta nýjar lausar kennslustofur
Í byrjun árs hefjast framkvæmdir á suður hluta skólalóðar á móts við Akraneshöllina en þar verða reistar átta lausar kennslustofur fyrir Grundaskóla. Þessar kennslustofur verða allar komnar á sinn stað og tilbúnar til notkunar í byrjun mars. Vonast var til að framkvæmdum yrði lokið fyrr en vegna tafa erlendis verða þær ekki allar tilbúnar fyrr. Þessi kennsluaðstaða er ætluð fyrir 6. og 7. bekk næstu árin eða þar til að öllum byggingarframkvæmdum er að fullu lokið við skólann.
Breytingar fyrirhugaðar á stjórnskipulagi og stoðþjónustu
Samhliða hönnun á nýjum Grundaskóla hefur verið unnið að breytingum á stjórnskipulagi skólans sem tekur mið af þeim stærðarbreytingum sem hafa orðið á liðnum árum og nýjum kröfum samfélagsins. Skólastjórn og starfsmenn Grundaskóla eru óhræddir við að gera breytingar og markmiðið er ávallt að veita sem besta þjónustu í framsækinni menntastofnun. Grundaskóli er orðinn einn fjölmennasti skóli landsins en stjórnunarumfang skólans hefur ekki breyst samhliða þessari fjölgun. Hið sama má segja um ýmsa þætti stoðþjónustunnar en áhersla hefur verið lögð á þjónustuliði en sparað í stjórnun.
Á næstu mánuðum munum við kynna breytingar um fjölgun stjórnenda og breytingar á skipulagi, verkaskiptingu og áherslum í stoðþjónustu sem taka mið af stærð skólans og bættri þjónustu. Aukin áhersla er lögð á uppeldisráðgjöf við foreldra og forráðamenn í anda snemmtækrar og markvissrar íhlutunar.
Efling foreldrastarfs
Skólaráð og stjórn foreldrafélags skólans hefur fundað upp á síðkastið um hvernig megi efla starf foreldrafulltrúa í öllum árgöngum og í Grundaskóla almennt. Fljótlega á nýju ári verður boðað til samráðfundar með bekkjarfulltrúum þar sem línur verða lagðar og ákvarðanir teknar til framtíðar. Vilji stendur til að stórefla foreldrastarf í skólanum og eru allir sem áhuga hafa á að koma að slíku starfi hvattir til að hafa samband við foreldrafélagið, umsjónarkennara eða skrifstofu skólans.
Fræðslufundir með sálfræðingi
Nú í janúar hefst fræðsla fyrir foreldra og forráðamenn sem við nefnum „vefkaffi“ með sálfræðingi. Um er að ræða rafræna kynningafundi á Microsoft Teams þar sem foreldrum og forráðamönnum barna í Grundaskóla gefst tækifæri til að fá fræðslu og leiðbeiningar um uppeldi barna og ungmenna. Ákveðið þema verður tekið fyrir á hverjum fundi t.d. kvíði barna, hvernig sjálfsmynd og sjálfstraust þróast, hvernig á að vinna með tilfinningavanda, samskiptavanda o.s.frv.
Samstarfsaðili okkar, Erlendur Egilsson, er fimm barna faðir og reyndur sálfræðingur. Hann hefur m.a. starfað sem sálfræðingur í grunnskólum, unnið á Barna og unglingageðdeild Hringsins (BUGL) ásamt sjálfstæðum sálfræðistörfum.
Nýtt samskiptakerfi með haustinu
Það eru ýmis úrlausnarefnin sem við vinnum að og sumar breytingar vekja litla ánægju hjá okkur. Eitt af þessum verkefnum eru breytingar á samskiptakerfi en Grundaskóli innleiddi Weduc samskiptakerfið fyrir um þremur árum. Reynslan af Weduc er góð og foreldrar nemenda almennt sáttir með kerfið. Hins vegar liggur fyrir að ekki er lengur vilji hjá þjónustuaðila í Bretlandi að uppfæra og þjónusta kerfið fyrir íslenskar aðstæður. Við í Grundaskóla eigum því engra annarra kosta völ en að færa okkur yfir í önnur hefðbundin samskiptakerfi sem eru notuð á Íslandi. Nánari upplýsingar munu berast með vorinu og breytingar taka gildi í haust við upphaf nýs skólaárs.
Nýtt kennslumannvirki á Jaðarsbökkum
Uppbygging á nýju íþróttahúsi á Jaðarsbökkum gengur vel og er á áætlun. Hér er um afar mikilvæga framkvæmd að ræða fyrir Grundaskóla enda hefur skólinn fyrir löngu sprengt af sér núverandi aðstöðu í íþróttamannvirkjum. Þetta á ekki síst við búningsklefana. Ákveðin vandræði eru einnig með samnýtingu á Jaðarsbakkalaug með almenningi sem kann að kalla á breyttar áherslur með haustinu. Skólastjórn mun taka upp umræðu um þessi mál með bæjaryfirvöldum á næstunni og í sameiningu taka ákvörðun um næstu skref. Við munum kynna þessi mál frekar á næstu vikum og mánuðum.
Nemendum og starfsmönnum fjölgar
Fyrir nokkrum dögum bárust fréttir um að Akurnesingar væru orðnir 8000 í fyrsta skipti í sögunni. Þetta eru ánægjulegar fréttir enda er samfélagið okkar í sókn. Ljóst er að Grundaskóli stækkar en fjölgun nemenda frá hausti slagar í meðal bekkjarstærð. Margar húseignir eru í byggingu í okkar skólahverfi og ljóst að Grundaskóli mun fara yfir 700 nemendur innan skamms.
Samhliða fjölgun nemenda mun starfsmönnum fjölga einnig. Í haust er líklegt að tveir árgangar skólans fari í fjórar bekkjardeildir. Þrátt fyrir tímabundin húsnæðisvandræði þá er Grundaskóli sem betur fer eftirsóttur vinnustaður og það er mikið ánægjuefni fyrir skólasamfélagið. Reikna má með að starfsmannafjöldi verði bráðlega kominn yfir 130 ef allt er talið. Það gerir Grundaskóla að fjömennasta vinnustað bæjarfélagsins en rúmlega 10% bæjarbúa (nemendur og starfsmenn) vinna í skólanum.
Sókn er besta vörnin
Eins og sjá má af fyrrgreindum punktum þá er margt spennandi í gangi í skólanum okkar og markvisst er unnið að því að bæta hluti sem betur mega fara. Við trúum að sókn sé besta vörnin og lykill að góðu skólastarfi sé gott samstarf heimila og skóla. Uppbyggileg samvinna þar sem allir aðilar leggjast á eitt um að skapa börnum okkar framúrskarandi aðstæður til að blómstra á ólíkan hátt.
Grundaskóli er stór og öflug menntastofnun og framundan eru sannanlega spennandi tímar. Eftir miklar húsnæðishrakningar sést loks til sólar, nýr og glæsilegur Grundaskóli er kominn í markvissa uppbyggingu. Við horfum bjartsýn fram veginn.
Í von um áframhaldandi gott samstarf
Kær kveðja,
Skólastjórn Grundaskóla
Flökkusýning Listasafns Íslands
18. janúar 2023
Það er gaman að geta boðið upp á listsýningu hannaða fyrir börn og ungmenni heim í hérað, en myndlistarsýningin Heima verður uppi í bókasafni Grundaskóla til að vinna með frá 3. janúar til og með miðvikudagsins 5. febrúar 2023.
List fyrir alla hefur styrkt verkefnið og greiðir fyrir flutninginn, en Listasafn Reykjavíkur lánar sýninguna og gefur þá fræðslu sem sýningunni fylgir.
Á sýningunni er ykkur boðið heim í stofu gleði og öryggis – þar sem listaverkin hanga á veggjunum; nemendum og kennurum er boðið að ganga inn og njóta myndlistar í hlýlegu og heimilislegu umhverfi, í sínum eigin skóla.
Markmið þessa fræðslupakka og flökkusýningarinnar er að veita kennurum innblástur og stuðning við kennslu.
Hægt er að tengja listaverkin við nám í sjónlistum en einnig nota sem námsvettvang í þverfaglegu námi og tengja inn í þau verkefni sem verið er að vinna hverju sinni. Auðvelt er að tengja þemað inn í mörg af hæfniviðmiðum Aðalnámskrár og einnig má tengja efni þessarar sýningar við réttindi barna sem fram koma í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Fávitar og fjölbreytileikinn
25. janúar 2023
Stjórn Hinsegin Vesturlands gaf okkur í Grundaskóla bókina Fávitar og fjölbreytileikinn eftir Sólborgu Guðbrandsdóttur.
Bókin fjallar um hinseginleikann frá ótal hliðum með viðtölum, fróðleik, spurningum og svörum.
Formenn nemendafélags Grundaskóla tóku við bókinni og ætla að sjá til þess að bókin verði sýnileg í skólanum okkar.
Við erum mjög þakklát fyrir þessa gjöf sem á eftir að stuðla að jákvæðu og opnu viðhorfi til fjölbreytileikans.

Garðasel verður Grundasel
26. janúar 2023
Þetta er bara að bresta á....
Í dag hófust flutningar frístundar Grundaskóla yfir í húsnæði (gamla) Garðasels. Við vinnum nú af krafti í margvíslegum endurbótum s.s. að mála húsnæðið, endurnýja húsmuni o.fl. Nemendur og starfsmenn geta vart beðið eftir formlegum flutningum og vígslu á nýrri aðstöðu. Þessar breytingar verða algjör bylting fyrir frístundastarfið í Grundaskóla.
Eins og mörg ykkar vita, eru fyrirhugaðar tímabundnar breytingar og tilfærslur í Grundaskóla. 6. og 7. bekkur er að flytja í nýjar lausar kennslustofur á lóð skólans. Við höfum markvisst unnið með lausnir á húsnæðismálum sem nú loks sér fyrir endann á. Allar þessar tilfærslur hafa ekki reynst okkur auðveldar enda höfum við glímt við mestu húsnæðisvandræði í skólasögu bæjarfélagsins. Nemendur og starfsmenn hafa sýnt ótrúlega þrautseigju og dugnað s.l. tvö ár og leyst mörg ólík vandamál tengt húsnæðismálum.
Í lok janúar verður opnað útboð á allsherjarendurbótum á C-álmu skólans eða gamla skólanum eins og einhverjir kalla bygginguna. Við höfum unnið að því að flytja alla starfsemi úr álmunni s.l. tvö ár og nú lýkur því verki.
Því miður hafa orðið margvíslegar seinkanir á framkvæmdum og ein af þeim er að lausar kennslustofur sem áttu að vera klárar í janúar verða ekki komnar fyrr en í byrjun mars. Við munum leysa þetta millibil m.a. með nýtingu á húsnæði Akraneskaupstaðar á Garðavöllum. Allar þessar breytingar reyna á skólasamfélagið en eftir hrikalega erfiðleika tengt húsnæðismálum og heimsfaraldri sjáum við loks til sólar. Seinkun framkvæmda um mánuð mun ekki slá okkur út af laginu.
Nú er viðspyrnan að hefjast fyrir alvöru. Á næstu vikum og mánuðum er margt spennandi að gerast í skólanum okkar. Skólaskip Grundaskóla mun sigla seglum þöndum út úr brimskaflinum og við lofum góðu partý þegar allt er klárt.

Heimildamynd um söngleikjagerð í Grundaskóla
30. janúar 2023
Þessa dagana vinna bæði kennarar og nemendur að gerð heimildamyndar um söngleiki Grundaskóla. Fjöldi fólks kemur að gerð myndarinnar bæði núverandi og fyrrverandi nemendur og starfsmenn. Búið er að setja upp sérstakt myndver í skólanum til að taka myndefni og viðtöl. Þessi heimildamynd er vonandi bara upphaf af gróskumikilli kvikmyndagerð í skólanum en skólastjórn hefur lagt áherslu á þennan þátt í starfinu. Það er Margrét Saga Gunnarsdóttir sem verkstýrir þessu skemmtilega verkefni.
Það er virkileg gaman að sjá gamla nemendur Grundaskóla mæta á svæðið og taka þátt í starfinu með okkur. Til dæmis hafa leikarar úr Frelsi (2003), Vítahring (2008) og Úlfur, úlfur (2015) komið inn í verkefnið.
Heimildamyndin er unnin samhliða uppsetningu á söngleiknum Nornaveiðar sem verður frumsýndur eftir um viku. Frábært framtak og mikilvæg skrásetning á merkilegu söng og listastarfi sem er unnið í skólanum. Stefna er á að sýna þessa heimildamynd fyrir skólalok í vor.

Hvaðan kemur vatnið?
9. mars 2023
Þessa dagana erum við í 6. bekk að læra um vatn.
- Hvaðan kemur vatnið sem við fáum úr krananum og getum drukkið?
- Eru allir svona heppnir eins og við hvað neysluvatn varðar?
- Sýrustig vatns og annarra drykkja, hringrás vatns og ýmislegt fleira sem tilheyrir þessum lífsnauðsynlega drykk.
Við sóttum okkur vatn í tjörnina í Skógræktinni og erum að rannsaka það. Hvað gerist dag frá degi? Við fórum í gönguferð í vikunni og hittum Gissur Ágústsson hjá Orkuveitunni upp við Berjadalsá. Gissur tók einstaklega vel á móti okkur og var fullur af fróðleik sem hann miðlaði til okkar.

Stóri hóllinn tekinn
9. mars 2023
Margir bæjarbúar hafa rekið upp stór augu þegar þeir sáu stórvirkar vinnuvélar vinna við að moka stóra hólnum upp og flytja í burtu.
Hóllinn sem hefur verið eitt af einkennismerkjum á skólalóð Grundaskóla og fjölmargir hafa leikið sér sjálfir á eða með börnum sínum í gegnum árin. Hóllinn víkur nú fyrir nýrri viðbyggingu við skólann. Við getum þó létt á áhyggjum margra aðila með að upplýsa að stóri hóllinn kemur aftur en fer á nýjan stað.
Börn sem fullorðnir eiga því að geta mætt með snjóþotur og sleða á skólalóð Grundaskóla í framtíðinni og skemmt sér saman með fjölbreyttri útiveru.

Við byggjum nýjan Grundaskóla að utan og innan
9. mars 2023
Það er engin uppgjöf á Skaganum þessa dagana heldur boðað til stórsóknar í skólastarfi Grundaskóla. Í skólanum er nú varla þverfótað fyrir iðnaðarmönnum, hönnuðum og skólafólki. Allir vinna samhentir í að endurbyggja skólann. Þessi endurbygging snýr ekki eingöngu að byggja einn glæsilegasta grunnskóla landsins heldur einnig að endurskipulagningu starfsins. Það má því orða þetta sem svo að unnið sé að uppbyggingu til framtíðar bæði í húsnæði og innra skipulagi.
Nemendur og starfsmenn hafa þingað síðustu vikurnar varðandi fortíð, nútíð og framtíð og í gær hittust foreldrafulltrúar ólíkra árganga og fóru yfir margvísleg mál í skólastarfinu. Góður fundur og flott umræða sem verður framhaldið á næstunni.
Allir þeir sem hafa góðar hugmyndir, áhuga og vilja til að taka þátt í þessari vinnu eru velkomnir og geta sent skilaboð á stjórn foreldrafélags Grundaskóla eða skólastjórnendur.
Líf og fjör í frímínútum unglingadeildar
10. mars 2023
Í byrjun febrúar sl. kom unglingadeild Grundaskóla aftur saman í B-álmunni eftir langa fjarveru í hinum ýmsu byggingum um allan bæ. Endurkoman hefur skapað á ný samverustundir unglinga í skólanum og frímínúturnar iða nú af lífi og miklu fjöri. Þrátt fyrir botnlausar húsnæðishrakningar gengur skólastarfið nánast snurðulaust alla daga.
Meðfylgjandi myndir voru teknar á unglingasvæðinu í vikunni þar sem ungmennin okkar spila og spjalla saman í frímínútunum sínum.
Kennslustofum fjölgar - endurbygging C-álmu komin á fulla ferð
13. mars 2023
Nú vinna iðnaðarmenn kappsamlega að því að koma nýjum kennslustofum í notkun við Grundaskóla. Aðstaða fyrir list- og verkgreinar er að komast í gagnið á Grundaseli og nú á bara eftir að klára aðstöðu fyrir heimilisfræðina. Kennarar í tónlist, myndlist og texstíl hafa lokið flutningum og síðust handtökin eru nú lögð að aðstöðu fyrir heimilisfræðina. Frístundin er einnig að klára flutninga og hefur hafið sína starfsemi á svæðinu.
Vinna við nýjar kennslustofur í s.k. gámum er enn í vinnslu en reiknað er með að fyrstu kennslustofurnar komist í notkun n.k. miðvikudag. Ítrekaðar tafir á þessari framkvæmd er mjög bagalegar fyrir okkur og veldur vandræðum. Unnið er að lausn varðandi þau mál í samstarfi við bæjaryfirvöld.
Iðnaðarmenn eru enn að vinna að lokafrágangi framkvæmda í gömlu stjórnunarálmunni og vonumst við til að þau verkefni fari að klárast hið fyrsta.
Fjöldi iðnaðarmanna vinnur nú auk þessa alls að því að rífa niður innréttingar í C-álmunni og lokað hefur verið fyrir umferð nemenda og skólafólks um bygginguna. Það þýðir að aðeins eru þrír inngangar í notkun inn í skólann um þessar mundir. Þetta er aðalinngangur við skrifstofu skólans, í B-álmu frá Víkurbraut og inn á yngsta stigið við matsalinn. Skóhillum hefur verið fjölgað á þessum stöðum en ljóst er að mikill umgangur verður á þessum svæðum meðan á lokun annarra innganga stendur yfir.
Framkvæmdir við uppbyggingu við nýtt íþróttahús á Jaðarsbökkum gengur mjög vel og er verkefnið á áætlun.
Til að tryggja öryggismál hafa girðingar verið settar upp á skólalóðinni. Stórvirkar vinnuvélar eru að störfum og bráðlega verður byggingarkrani settur upp við skólann. Fljótlega mun leiksvæðið aukast aftur eða um leið og tækjum hefur annars vegar verið komið endanlega fyrir tengt byggingarframkvæmdum á C-álmunni og hins vegar verið fjarlægð tengt uppbyggingu á gámaeiningum.
Við munum flytja frekari fréttir um stöðu framkvæmda um leið og nákvæmari upplýsingar liggja fyrir. Hér leggjast hreinlega allir á eitt að láta þetta ganga vel fyrir sig og leysa óteljandi verkefni á stórum vinnustað. Ef eitthvað er óljóst er foreldrum sem öðrum velkomið að hafa samband við skólastjórnendur sem reyna þá að veita frekari upplýsingar og svör um stöðu mála.

Kennslustofum fjölgar - endurbygging C-álmu komin á fulla ferð
13. mars 2023
Nú vinna iðnaðarmenn kappsamlega að því að koma nýjum kennslustofum í notkun við Grundaskóla. Aðstaða fyrir list- og verkgreinar er að komast í gagnið á Grundaseli og nú á bara eftir að klára aðstöðu fyrir heimilisfræðina. Kennarar í tónlist, myndlist og texstíl hafa lokið flutningum og síðust handtökin eru nú lögð að aðstöðu fyrir heimilisfræðina. Frístundin er einnig að klára flutninga og hefur hafið sína starfsemi á svæðinu.
Vinna við nýjar kennslustofur í s.k. gámum er enn í vinnslu en reiknað er með að fyrstu kennslustofurnar komist í notkun n.k. miðvikudag. Ítrekaðar tafir á þessari framkvæmd er mjög bagalegar fyrir okkur og veldur vandræðum. Unnið er að lausn varðandi þau mál í samstarfi við bæjaryfirvöld.
Iðnaðarmenn eru enn að vinna að lokafrágangi framkvæmda í gömlu stjórnunarálmunni og vonumst við til að þau verkefni fari að klárast hið fyrsta.
Fjöldi iðnaðarmanna vinnur nú auk þessa alls að því að rífa niður innréttingar í C-álmunni og lokað hefur verið fyrir umferð nemenda og skólafólks um bygginguna. Það þýðir að aðeins eru þrír inngangar í notkun inn í skólann um þessar mundir. Þetta er aðalinngangur við skrifstofu skólans, í B-álmu frá Víkurbraut og inn á yngsta stigið við matsalinn. Skóhillum hefur verið fjölgað á þessum stöðum en ljóst er að mikill umgangur verður á þessum svæðum meðan á lokun annarra innganga stendur yfir.
Framkvæmdir við uppbyggingu við nýtt íþróttahús á Jaðarsbökkum gengur mjög vel og er verkefnið á áætlun.
Til að tryggja öryggismál hafa girðingar verið settar upp á skólalóðinni. Stórvirkar vinnuvélar eru að störfum og bráðlega verður byggingarkrani settur upp við skólann. Fljótlega mun leiksvæðið aukast aftur eða um leið og tækjum hefur annars vegar verið komið endanlega fyrir tengt byggingarframkvæmdum á C-álmunni og hins vegar verið fjarlægð tengt uppbyggingu á gámaeiningum.
Við munum flytja frekari fréttir um stöðu framkvæmda um leið og nákvæmari upplýsingar liggja fyrir. Hér leggjast hreinlega allir á eitt að láta þetta ganga vel fyrir sig og leysa óteljandi verkefni á stórum vinnustað. Ef eitthvað er óljóst er foreldrum sem öðrum velkomið að hafa samband við skólastjórnendur sem reyna þá að veita frekari upplýsingar og svör um stöðu mála.
Alþjóðlegur dagur myndlistar
20. mars 2023
Í mars var alþjóðlegur dagur myndlistar og í ár var viðfangsefnið að teikna augu.
Sjá má afrakstur á gangi skólans við salinn, virkilega flott og fjölbreytt augu.

Upplestrarkeppni 7. bekkjar
21. mars 2023
Nemendur í 7. bekk hafa æft sig í upplestri í vetur og í síðustu viku var haldin keppni innan skólans. Árný Lea Grímsdóttir, Heiðdís Tinna Daðadóttir, Hekla Dís Hilmarsdóttir, Lilja Fanney Ársælsdóttir, Styrmir Gíslason og Þóra Guðmundsdóttir unnu keppnina. Við óskum þeim til hamingju.
Þau munu keppa í upplestrarkeppni grunnskólanna á Akranesi fimmtudaginn 23. mars kl. 19:30 í Tónbergi. Julia Von Káradóttir mun lesa á sínu móðurmáli, pólsku.
Vonandi sjáum við sem flesta foreldra og forráðamenn.

„Einn getur verið einmana saman.“
21. mars 2023
Það þarf enga síma í skólann – best að skilja þá eftir heima
Eins og flestum foreldrum/nemendum er eflaust kunnugt um þá eru snjallsímar afþakkaðir í Grundaskóla og í reglum okkar sem er einskonar sáttmáli er kveðið á um að slík tæki eigi ekki að vera í notkun nema með leyfi starfsfólks. Stefna skólans er skýr og nýtur bæði skilnings og stuðnings í skólasamfélaginu. Nemendur þurfa einfaldlega ekki á slíkum tækjum að halda í skólastarfinu og rannsóknir sýna að símtækin geta oft truflað námið. Tækin geta m.ö.o. verið meira til ógagns en gagns fyrir nemendur.
Skipulögð markaðssetning
Tilgangur margra samfélagsmiðla er markaðssetning og að ná til notenda þannig að þeir „ánetjist„ hratt og örugglega. Litir, myndform, hljóð, endurtekningar og tákn eru notuð til að ná athygli okkar. Margvíslegir leikir eru auk þess hannaðir til að ná athygli þó gagnsemin eða lærdómurinn sé afar takmarkaður.
Til marks um útbreiðsluna má sjá fólk í öllum aðstæðum með síma í hönd og athyglin er öll á tækinu. Notkunin er jafnvel svo mikil að heilbrigðisyfirvöld eru farin að merkja ákveðin líkamleg vandamál og stoðkerfisveikleika tengt líkamsbeitingu ungs fólks. Þá má einnig benda á að tengd síma- og tæknifyrirtæki eru metin þau verðmætustu á fjármálamarkaði. Notendur tækjanna eru jafnvel bókfærðir sem eign í bókhaldi fyrirtækjanna ekki ósvipað og fiskur í sjónum tengt kvótaeign sjávarútvegsfyrirtækja.
Markaðssetning síma- og tæknifyrirtækja beinist ekki síst að ungu fólki en engar opinberar reglur eru í gildi í tengslum við aldursmörk notenda líkt og gerist með til dæmis útivistartíma þó rannsóknir sýni skýrt að notkun tækjanna geti haft alvarleg áhrif á framheila ungmenna í miðju þroskaferli. Kannski er nú sá tími kominn að foreldrar og forráðamenn verða að vakna af værum blundi og setja börnum sínum eitthvað sem við getum kallað rafrænan útivistartíma.
Lykill að velgengni er að við stjórnum tækninni en hún ekki okkur
Notkun snjallsíma og annarra snjalltækja er alls ekki áhættulaus og umhverfið ekki eins öruggt og margir halda. Í gangi er m.a. skipulögð upplýsingasöfnun og að fólki er haldið auglýsingaefni sem tæknin telur að höfði til viðkomandi. Svokallaður algóritmi stýrir efni til okkar og skráir rafræn fótspor. Fjöldi fólks er í beinni útsendingu og til er orðin heil starfsstétt eða títtnefndir áhrifavaldar sem hafa tekjur af því að bjóða vörur og þjónustu. Ekki verður séð að í þeirri sölumennsku sé öryggi eða velferð ungmenna í forgrunni heldur ráða önnur sjónarmið sannanlega ferð.
Við í Grundaskóla reynum að nýta tæknina í náminu en um leið að huga vel að öryggismálum og uppbyggilegri notkun. Tæknin er mikilvæg og getur gagnast vel. Það er t.d. mikilvægt að skólinn þrói starfs- og kennsluhætti sína og tækni í samræmi við nútímakröfur. Margvíslegar tæknislausnir er framtíðin og við sjáum óþrjótandi möguleika til að nýta hana til jákvæðra hluta en lykill að velgengni er að við stjórnum tækninni en hún ekki okkur.
Sáttmála um umgengni
Framboð af duldu auglýsingaefni, klámefni, ofbeldisefni og óhróðri er takmarkalaus á netinu. Ein af vörnum okkar til að tryggja heilbrigði barna og ungmenna er að stýra notkuninni með því að gera einhverskonar sáttmála. Að fólk á öllum aldri eigi samtal um hvað er heilbrigð notkun. Nýta tækin til gagns og í ákveðnum tilgangi og ræða um leið þær hættur sem eru til staðar s.s. varðandi siðferði, fíkn o.fl.
Botnlaus áreitni
Ákveðinn freistnivandi er klárlega til staðar ekki síst fyrir börn og ungmenni. Áreitnin er hreinlega botnlaus því samkvæmt upplýsingum frá ungmennunum okkar eru þau flest að fá á bilinu 100-1000 skilaboð á sólarhring í gegnum símana og tengd tækniforrit og svonefnd öpp. Flest af þessum skilaboðum eru með öllu tilgangslaus en krefjast samt athygli og jafnvel viðbragða í formi margvíslegra tákna. Forritin eru hönnuð til að kalla fram einhvers konar vellíðan eða eftirvæntingu hjá notendum og teikna upp ákveðna glansmynd af raunveruleikanum sem getur leitt til fíknar eins og fjölmörg dæmi sýna og sanna.
Félagsleg staða og sannir vinir
Stundum kemur upp umræða um að símar og snjalltæki séu nauðsynleg til að halda félagslegri stöðu. Rætt er um að nútímatæknin vinni gegn einmanaleik o.s.frv. Um þetta mætti hafa mörg orð og ekki er allt sem sýnist. Dæmi um það er sagan af ungmenninu sem átti þúsundir „vina“ á hinum ýmsu forritum og öppum. Foreldrar viðkomandi töldu barnið sitt vel statt en kom svo algjörlega á óvart þegar barnið þjáðist af miklum einmanaleika. Þar sannaðist að „einn getur verið einmana saman“ ef samskiptin uppfylla ekki þarfir okkar. Þúsundir „vina“ í samskiptaforriti eru ekki samanburðarhæfir við sanna vini í raunheimum sem bæði deila og þiggja, styðja og hvetja þegar reynir á.
Við hinir fullorðnu ættum einnig að spyrja okkur tengt þessari umræðu, hvernig þessi ímynd getur staðist því á sama tíma og börnin okkar eru stöðugt að bregðast við í símtækjunum og eru nánast á vaktinni allan sólarhringinn, sýna rannsóknir að aldrei fyrr hafa jafnmörg ungmenni metið andlega heilsu sína slaka. Hundruð barna og ungmenna glíma við kvíða, minni einbeitingu, slakari sjálfsmynd og verri félagsfærni.
Næði og friður til að nema - velferð í forgrunni
Nú er svo komið að fjöldi skólafólks hefur varað við þessari þróun sem er að eiga sér stað og kallað eftir samræmdum viðbrögðum heimila og skóla tengt notkun síma og snjallforrita. Við í Grundaskóla bregðumst við og ætlum að gefa símum og snjallforritum á markaði frí á skólatíma.
Við viljum leggja áherslu á að vinna með samskipti og samstarf í raunheimum, efla hæfni barna í að leysa flókin verkefni og beita gagnrýnni hugsun. Við viljum velja á eigin forsendum, náms og kennsluaðferðir sem gagnast best hverju sinni. Heilbrigði og velferð barna og ungmenna er í forgangi í skólanum en ekki markaðsöfl í keppni um neytendur á tæknimarkaði. Börnin okkar þurfa hreinlega næði og frið til að læra.
Það er mikilvægt að skólinn og heimilin sameinist um reglur og heilbrigða notkun í samráði við börn og ungmenni tengt notkun og umgengni að þessum tækjum. Það er aldrei mikilvægara en einmitt nú að ná samstarfi og samtakamætti í uppeldi barna. Við hvetjum foreldra og heimilin til að standa saman og fylgja fordæmi okkar. Að standa saman með því að nýta tæknina en að setja skýran ramma um þessi tæki og nýja tækni.
Höfum símana heima
Hvernig sem allt snýr þá er það skólans að útvega nauðsynleg námstæki og námsgögn. Það er a.m.k. á hreinu að ekki er þörf á að kaupa dýra síma fyrir skólanámið en ef þeir eru þegar til þá er engin þörf á símum í skólanum og best að geyma þá heima.
Með kveðju,
Sigurður Arnar Sigurðsson
Skólastjóri
Lokakvöld Upplestrarkeppninnar 2023
24. mars 2023
Í gærkvöldi fór fram hátíðlegt lokakvöld í Upplestrarkeppni grunnskólanna á Akranesi þegar keppendurnir komu saman í Tónbergi.
Markmið upplestrarkeppni í 7. bekk grunnskóla á Akranesi er að vekja athygli og áhuga nemenda á vönduðum upplestri og framburði, lokakvöldið heppnaðist einstaklega vel og stóðu þátttakendur sig frábærlega.
Julia Von Káradóttir las á sínu móðurmáli sem er Pólska og nokkrir nemendur úr Tónlistarskólanum spiluðu tónlist fyrir áhorfendur.
Sérstök dómnefnd sem var skipuð þeim, Halldóru Jónsdóttur, Jakobi Þór Einarssyni og Þóru Björgu Sigurðardóttur valdi tvo einstaklinga sem sigurvegara, einn úr hvorum skóla.
Sigurvegari í Upplestrarkeppni Brekkubæjarskóla 2023 var Aðalheiður Ísold Pálmadóttir.
Sigurvegari í Upplestrarkeppni Grundaskóla 2023 var Árný Lea Grímsdóttir.

Samsöngur á sal fyrir páskafrí
30. mars 2023
Í dag var gulur dagur í Grundaskóla og fjörugur samsöngur inni í sal.
Mikil gleði og flottur söngur.
Gleðilega páska

Ný heimildamynd „Út fyrir rammann“
27. apríl 2023
Ný heimilidamynd út fyrir ramman var frumsýnd í Bíóhöllinni í gær. Myndin er afrakstur vinnu nemenda skólans undir öflugri leiðsögn Margrétar Sögu Clothier. Myndin fjallar um 20 ára sögu söngleikja í Grundaskóla.
Frábær mynd og mikið afrek hjá nemendum og starfsmönnum

Skákmót í 5. - 7. bekk
27. apríl 2023
Skákmót í 5.-7.bekk fór fram þriðjudaginn 25. apríl, í 9.sinn. Þá kepptu til úrslita bekkjarmeistarar í 5. – 7. bekk í stúlkna- og drengjaflokki. Keppnin var spennandi og allir stóðu sig mjög vel. Keppendur sýndu mikla háttvísi og einbeitingu í leik sínum.
Í stúlknaflokki var Stefanía Líf Viðarsdóttir 7.HJ hlutskörpust og Sigurður Franz Hinriksson 7.BP sigraði í drengjaflokki.
Allir keppendur fengu viðurkenningarskjal og skákbók að gjöf auk þess sem sigurvegararnir fengu farandbikar til eins árs.
Keppendurnir voru eftirtaldir:
7.bekkur: Sigurður Franz, Jökull Sindrason, Björn Leó, Stefanía Líf, Elín Sara S. og Árný Lea.
6.bekkur: Einar Orri, Jörundur Óli, Jóhann Lár, Stefanía Rakel, Maren Rún og Dagbjört Ósk.
5.bekkur: Gunnar Kári, Sigurður Már, Davíð, Jóhannes Kári, Sunna Karen, Sigríður Margrét, Sara Sesselja og Guðrún Salka.

Gjöf frá Kiwanis
27. apríl 2023
1. bekkur fékk góða heimsókn frá fulltrúum Kiwanisklúbbsins á Akranesi.
Tilgangur heimsóknarinnar var að gefa öllum 1. bekkingum nýja hjólahjálma.
Með þeim í för var Hildur Karen og fræddi hún nemendurna um mikilvægi þess að nota hjólahjálma og einnig hversu mikilvægt það er að hann sé rétt stilltur.
Við þökkum Kiwanisklúbbnum kærlega fyrir þessa góðu gjöf!

Ráðning aðstoðarskólastjóra
27. apríl 2023
Starf aðstoðarskólastjóra Grundaskóla var auglýst laust til umsóknar þann 21. mars og rann umsóknarfrestur út þann 5. apríl sl. Alls bárust átta umsóknir um starfið í gegnum umsóknarkerfið Alfreð.is.
Samhliða afgreiðslu á þessari ráðningu hefur verið ákveðið að ráðast í skipulagsbreytingar á stjórnskipulagi skólans og hafa tvo aðstoðarskólastjóra líkt og þekkist í mörgum stærri grunnskólum landsins. Nemendafjöldi er nú ríflega 700 og er skólinn einn af stærstu grunnskólum á Íslandi. Hugmyndir eru uppi um að mynda sterkt stjórnendateymi í ört stækkandi skóla og til framtíðar geti staðgengilshlutverkið mögulega færst á milli aðstoðarskólastjóra eftir árum. Kristrún Dögg er ráðin sbr. auglýsingu en Margrét kemur inn á sama tíma með vísan í tímabundnar skipulagsbreytingar.
Með vísan í niðurstöður ráðningarteymis úr úrvinnslu umsókna miðað við lög og reglur, ráðningasamtala og mats umsagnaraðila er niðurstaða ráðningarferlis eftirfarandi:
Kristrún Dögg Marteinsdóttir og Margrét Ákadóttir verði ráðnar í störf aðstoðarskólastjóra í Grundaskóla frá og með 1. ágúst 2023.
Kristrún Dögg hefur lokið B.ed. gráðu frá Kennaraháskóla Íslands, diplómu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands og MA prófi í stjórnun og forystu frá Háskólanum á Bifröst. Hún hefur starfað í Grundaskóla frá 2003 sem grunnskólakennari, verkefnastjóri og s.l. sjö ár sem deildarstjóri á yngsta stigi við góðan orðstír.
Margrét færist úr starfi deildarstjóra í starf aðstoðarskólastjóra í samræmi við hugmyndir um tímabundnar skipulagsbreytingar. Margrét hefur lokið B.ed. gráðu frá Kennaraháskóla Íslands og lýkur MA gráðu í stjórnun og forystu frá Háskólanum á Bifröst nú í vor. Hún hefur starfað í Grundaskóla frá árinu 2000 sem grunnskólakennari, teymisstjóri og s.l. sjö ár sem deildarstjóri á mið og unglingastigi við góðan orðstír.
Við óskum Kristrúnu Dögg og Möggu Áka til hamingju með ráðninguna.

Skólakórinn á Landsmóti og fleira skemmtilegt
4. maí 2023
Nú á vormánuðum hefur verið nóg um að vera hjá kórnum okkar. Bæði eldri og yngir hópar hafa farið í leikskólaheimsóknir og yngri hópurinn fór í söng/ísferð í Frystihúsið. Um síðustu helgi tók svo eldri hópurinn þátt í Landsmóti barna- og unglingakóra sem fór fram í Smáraskóla í Kópavogi. Þar hittust 250 söngglaðir krakkar frá öllu landinu og æfðu saman tónleikadagskrá. Hápunkturinn var svo tónleikarnir sjálfir á sunnudeginum, en þar mátti sjá bæði Guðna Th. forseta Íslands sem og Siggu Beinteins í áhorfendahópnum. Mikil upplifun og skemmtileg reynsla fyrir kórfélaga að taka þátt í mótinu.

Stærðfræðikeppni Grunnskólanna
9. maí 2023
Hópur nemenda úr 8. bekk Grundaskóla tók þátt Stærðfræðikeppni grunnskólanna sem haldin var í Fjölbrautarskóla Vesturlands 28. apríl sl.
Þeir Ísak Theodór Eidem og Sindri Leó Róbertsson lentu í efstu 10. sætunum og Daníel Guðjónsson varð sigurvegari keppninnar í 8. bekk !
Við óskum þeim innilega til hamingju með þennan frábæra árangur

Mikið um að vera í 2.bekk
11. maí 2023
Í vikunni tóku 2.bekkur þátt í plokkdeginum og æfðu dans með góðum gestum úr 6. og 8. bekk


Óvæntur gestur í 6.bekk
11. maí 2023
6.bekkur fékk óvæntan gest í heimsókn sem vakti mikla kátínu meðal nemenda í Grundaskóla, enda ekki oft sem svona krútt kemur í heimsókn.

„Þetta er besti dagur í heimi“
12. maí 2023
Við í 2. bekk fórum í sveitaferð í Miðdal í Kjós og skemmtum okkur konunglega!
Þar sáum við öll helstu íslensku húsdýrin og fengum að umgangast þau og klappa að vild og þeir sem vildu fengu að halda á lömbum og kettlingum. Við lékum okkur líka úti og róluðum okkur á belg yfir heyinu í hlöðunni - þvílíkt stuð. Einnig tókum við með okkur pylsur og svala en þar að auki bauð sveitabærinn upp á ískalda mjólk.
Frábær dagur og við þökkum Miðdal kærlega fyrir að taka svona vel á móti okkur!

Leiksýningin „Lítið hús“ eða „Teremok“
12. maí 2023
Í gær sýndu nemendur og starfsmenn Grundaskóla, sem komu sem flóttamenn frá Úkraínu, leikverkið Lítið hús.
Leiksýningin er ævintýri um nokkur dýr sem þurfa húsaskjól og eru boðin velkomin á nýtt heimili. Verkið hefur sterka tengingu við stöðu flóttamanna sem þurfa að treysta á ókunnuga um hjálp. Þessi leiksýning er afar ánægjuleg og stóðu allir leikendur sig með miklum sóma. Það er full ástæða til að hrósa fyrir glæsilegan leik en þó ekki síður fyrir að öll börnin og hinir fullorðnu fluttu texta sinn á íslensku.
Húrra fyrir OKKAR fólki frá Úkraínu

Frístundaval - myndlist
23. maí 2023
Í vikunni var enn eitt frístundaval Grundaskóla haldið fyrir nemendur og foreldra. Í þetta skiptið var unnið að listaverkum fyrir væntanlega sýningu í vitanum á Breiðinni. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var bæði metnaður og gleði við völd á námskeiðinu. Það var Angela Árnadóttir, kennari og myndlistarmaður sem hélt utan um hópinn.
Myndlistarsýningin verður auglýst síðar með formlegum hætti.

Hlaðvarpsgerð í 6. bekk
25. maí 2023
Nokkrir nemendur í 6.bekk vinna núna hörðum höndum að sjö nýjum hlaðvarpsþáttum sem verða birtir inná Spotify rás skólans á næstu dögum.
Nemendur sjá um skipulagningu og uppsetningu á þáttunum, finna tónlist/hljóðbrot fyrir þættina og sjá um myndatöku fyrir Spotify. Nemendur læra einnig á upptökuforritið Audacity og eru þau öll að standa sig frábærlega vel!
Hvetjum ykkur til að fylgjast vel með spotify rásinni okkar

Stóra bókin í 2. bekk
30. maí 2023
Nokkrir nemendur í 6.bekk vinna núna hörðum höndum að sjö nýjum hlaðvarpsþáttum sem verða birtir inná Spotify rás skólans á næstu dögum.
Nemendur sjá um skipulagningu og uppsetningu á þáttunum, finna tónlist/hljóðbrot fyrir þættina og sjá um myndatöku fyrir Spotify. Nemendur læra einnig á upptökuforritið Audacity og eru þau öll að standa sig frábærlega vel!
Hvetjum ykkur til að fylgjast vel með spotify rásinni okkar

6. bekkur í Viðey
30. maí 2023
6. bekkur fór í skemmtilega heimsókn í Viðey um daginn. Þau skoðuðu meðal annars skólann í þorpinu og friðarsúluna ásamt því að grilla pyslur og njóta í náttúrunni.

Útskrift Grundaskóla 2023
6. júní 2023
Þann 5. júní útskrifuðust 10. bekkingar úr Grundaskóla. Athöfnin var hátíðleg og tóku nemendur þátt í henni með söng og hljóðfæraleik.
Við þökkum þeim og foreldrum þeirra fyrir samfylgdina í gegnum árin.

Vordagar í 1. bekk 2023
7. júní 2023
Það var líf og fjör á vordögum hjá okkur í 1. bekk þar sem 60 nemendur breyttust í hinar ýmsu útgáfur af sjóræningjum.
Við byrjuðum á því að fara á Langasand þar sem við fundum flöskuskeyti sem reyndist vera frá sjóræningjanum Kobba kló og þá var ekki aftur snúið. Börnin voru mjög spennt yfir þessu öllu saman og bjuggu til sjóræningjabúninga, kort, sjónauka, krók og allt sem sannur sjóræningi þarf að eiga. Það var farið í salinn að dansa og í íþróttahúsið í leiki. Síðasta daginn var svo haldið upp í skógrækt, settar niður kartöflur, farið í ratleiki, útileiki og fleira.
Góður endir á skemmtilegu skólaári.
Njótið sumarsins.
4. og 5. bekkur í fjöruferð á vordögum 2023
9. júní 2023
Á vordögum var í boði hjá 4. og 5. bekk að fara í fjöruferð.
Við hér á Akranesi erum svo lánsöm að hafa þá náttúruperlu sem Langisandur er og frábært að geta nýtt hana á þessum dögum. Nemendur fengu það verkefni að finna ákveðna hluti sem finnast í fjörum og byggja sandkastala eða listaverk á ströndinni.
Síðan var frjáls tími sem nemendur notuðu m.a. til þess að stinga sér til sunds og/eða finna ýmsar lífverur í fjörunni. Þrátt fyrir að það hefði ekki verið sumarveður þessa daga þá fengum við ágætis veður og skemmtum okkur vel.

Skyndihjálpardúkkur
9. júní 2023
Við útskrift 10. bekkjar þann 5. júní fékk Grundaskóli gjöf frá Slysavarnardeild Líf á Akranesi.
Gjöfin var tuttugu skyndihjálpardúkkur til að þjálfa nemendur í hjartahnoði. Rannsóknir sýna að með slíkri þekkingu er hægt að bjarga mannslífum.
Grundaskóli þakkar fyrir þessa höfðinglegu gjöf og stefnir á að nýta skyndihjálpardúkkurnar með skipulögðum hætti.

Breytingar í haust
14. júní 2023
Kæru foreldrar og forráðamenn
Um leið og við viljum þakka ykkur fyrir samstarfið á skólaárinu sem er að líða, viljum við upplýsa ykkur um að samskiptaforritið Weduc, sem við höfum notað við góðar undirtektir s.l 3 ár er að hverfa á braut og munum við notast við Mentor á nýju skólaári.
Aðgangsorð og notkunarleiðbeiningar verða sendar út í ágúst þegar undirbúningur næsta skólaárs hefst.
Við viljum biðja ykkur að láta skrifstofu skólans vita ef þið eruð með ný símanúmer, netföng eða heimilisföng, svo réttar upplýsingar séu til staðar við innleiðingu í Mentor.
Við viljum benda ykkur á að hafa samband við skrifstofu skólans ef nánari upplýsinga er óskað.
skrifstofa@grundaskoli.is eða í síma 433 1400.
Skrifstofa skólans mun vera lokuð vegna sumarleyfa frá 16. júní til 8. ágúst nk.









