Líffærakennsla og krufning í 9. bekk

9.bekkur hefur undanfarnar vikur verið að læra um líkamann, blóðrásarkerfið, líffærin og ferð matarins í gegnum meltingarkerfið.
Í lok lotunnar fengu þau svo að taka þátt í spennandi verklegri æfingu þar sem þau skoðuðu innyfli úr svíni, skoðuðu leiðina sem maturinn fer í gegnum líkamann og fengu að skoða lambahjörtu og skera í þau sjálf.
Dagurinn var bæði fróðlegur og áhugaverður og gaf nemendum tækifæri til að skoða líffærin í nærmynd, koma við þau og spyrja spurninga um allt sem vakti forvitni þeirra. Hópurinn stóð sig mjög vel og var gaman að sjá þau spreyta sig í þessu hlutverki.
Að auki kom 6.bekkur og tók þátt í hluta úr degi með okkur sem gerði upplifunina enn fjölbreyttari og skemmtilegri.
Við viljum þakka Ingibjörgu náttúrufræðikennara kærlega fyrir dýrmæta hjálp og stuðning við verkefnið.































