Grundaskóli í skólahreysti
Katrín Ósk Sigurdórsdóttir • 11. maí 2026

Grundaskóli tók þátt í skólahreysti miðvikudaginn 6 maí í íþróttahúsinu Varmá í Mosfellsbæ.
Lið Grundaskóla var skipað 7 hressum krökkum úr 9.bekk.
Ólöf Oddný Jenssen, Stefanía Rakel Engilbertsdóttir, Hekla María Davíðsdóttir, Linda María Márusdóttir, Breki Þór Ellertsson, Styrmir Líndal Gíslason og Viktor Hugi Sigurgeirsson.
Krakkarnir stóðu sig mjög vel og gerðu sitt allra besta.
Klapplið Grundaskóla var frábært en það voru rúmlega 90 nemendur að hvetja, einnig var lið Brekkó að keppa líka og það var frábært að sjá samstöðu nemenda Grundó og Brekkó þar sem allir sameinuðust í því að hvetja bæði lið skagakrakkana áfram.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
11. maí 2026
10. bekkur fór í vel heppnaða og skemmtilega lokaferð í Skagafjörðinn í síðustu viku. Veðrið lék við okkur, þótt það hafi verið kalt og léku nemendur á alls oddi í þrautabraut, fljótasiglingu og litabolta. Þess á milli fengu nemendur frjálsan tíma sem var meðal annars vel nýttur í sund- og sjoppuferðir, körfubolta og almenna afslöppun. Stemningin í hópnum var frábær og nemendur stóðu sig með miklum sóma alla ferðina. Það var gaman að sjá hversu vel þau nutu samverunnar og sköpuðu skemmtilegar minningar saman á þessum síðustu vikum grunnskólagöngunnar. Við fengum frábærar móttökur á Bakkaflöt og í félagsheimilinu Miðgarði – þökkum kærlega fyrir okkur!! Frábær endapunktur á vetrinum.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
11. maí 2026
Dagana 4.-7. maí voru kennarar frá Þýskalandi í heimsókn. Ferð þeirra var í gegnum Erasmus. Þeir voru mjög hrifnir af skólanum og höfðu orð þá því hversu þrifalegt væri í skólanum, hversu vel mannaður skólinn væri og að allur aðbúnaður væri góður. Alltaf gaman og fróðlegt að taka á móti gestum.

Eftir Snorri Kristleifsson
•
8. maí 2026
Söngleikurinn Smellur er kominn á YouTube rás Grundaskóla. Söngleikurinn var fluttur af 10. bekk (árgangi 2010) á sal Grundaskóla í nóvember. Smellur var gríðarlega vel sóttur en uppselt var á nær allar 10 sýningar. Höfundar: Einar Viðarsson, Flosi Einarsson og Gunnar Sturla Hervarsson Leikstjórn: Einar Viðarsson Tónlistarstjórn: Flosi Einarsson Söngstjórn: Elfa Margrét Ingvadóttir og Margrét Saga Gunnarsdóttir Danshöfundur: Sandra Ómarsdóttir Búningahönnun: Eygló Gunnarsdóttir Hér má nálgast leikskrána

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
7. maí 2026
Við í 1. bekk fengum góða heimsókn þegar vinir okkar í 1. bekk í Brekkubæjarskóla komu til okkar. Við byrjuðum á að dansa saman inn á sal sem var virkilega skemmtilegt. Eftir það áttum við skemmtilega stund þar sem við lékum saman. Við erum strax farin að hlakka til að endurtaka leikinn í 2. bekk.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
6. maí 2026
Í gær fengu nemendur í 3.–6. bekk skemmtilega og lærdómsríka heimsókn frá Evu Rún og Blæ á vegum „List fyrir alla“. Krakkarnir fengu innsýn í heim sögugerðar þar sem ímyndunaraflið fékk að njóta sín. Á fyrirlestrinum hófu nemendur vinnuna á því að skapa eigin sögupersónu sem Blær teiknaði jafnóðum upp, sem vakti mikla lukku. Í kjölfarið unnu þau áfram með persónuna og bjuggu til sögu þar sem hún lifnaði við. Heimsóknin lærdómsrík og gaf nemendum tækifæri til að tjá hugmyndir sínar á nýjan hátt. Það verður spennandi að fylgjast með áframhaldandi vinnu þeirra í sögugerð.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
5. maí 2026
Í liðinni viku var öllum framboðum til bæjarstjórnar Akraness boðið að koma og skoða skólalóð Grundaskóla og hlýða á sögulegt erindi um uppbyggingu og þróun lóðarinnar allt frá stofnun skólans 1981. Í stuttu máli þá er staðreyndin sú að lóðin hefur aldrei verið kláruð þrátt fyrir fögur áform. Skólastjórn, skólaráð skólans og stjórn foreldrafélagsins stóð sameiginlega að þessum fundi til að árétta mikilvægi þess að skólalóðin yrði loks kláruð á komandi kjörtímabili. Grundaskóli er einn fjölmennasti grunnskóli landsins og það er löngu tímabært að klára framkvæmdir æsku bæjarfélagsins til heilla.

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
24. apríl 2026
Síðustu vikur höfum við verið að rækta allskonar plöntur, börnin hafa skreytt dósir og valið sér blóm eða matjurtir til að rækta. Við sáningu höfum við skoðað saman hversu ólík fræin eru, sum eru lítil og önnur stór, sum eru dökk og önnur ljós en öll verða þau nú samt af ólíkum og fallegum plöntum. Við höfum átt fræðandi og góðar umræður um fjölbreytileika og mikilvægi þess að sýna hvort öðru virðingu. Í síðustu viku tókum við til lóðinni okkar, margar hendur vinna létt verk svo það tók okkur ekki langann tíma að tína saman rusl og gera fínt hjá okkur. Sólin lét svo sjá sig á mánudaginn og þá var kjörið tækifæri til að skoða nýja útidótið okkar og njóta þess að leika úti í góða veðrinu. Sumarkveðja frá okkur í Grundaseli

Eftir Heiða Viðarsdóttir
•
22. apríl 2026
Nú líður að skólalokum og á dögunum ákvað nemendaráð Grundaskóla að fagna frábærri frammistöðu í vetur með hópeflisferð í höfuðborgina. Full ástæða er til að hrósa nemendaráðfulltrúum og umsjónarmanni fyrir öflugt félagsstarf innan og utan skólatíma. Öflugur hópur leiðtoga sem eiga framtíðina fyrir sér. Nú er kosningar framundan og nýtt nemendaráð tekur við kyndlinum og hefur undirbúning fyrir næsta skólaár.

Eftir Katrín Ósk Sigurdórsdóttir
•
20. apríl 2026
Í síðustu viku var vorskólinn hjá okkur í 1. bekk þar sem við tókum á móti verðandi fyrstu bekkingum. Börnin fóru á þrjár mismunandi stöðvar þar sem unnið var með ýmiss viðfangsefni eins og stærðfræði og læsi. Einnig var stöð í Grundaseli þar sem börnin fengu að kynnast starfi frístundarinnar. Allir mættu með nesti sem þau borðuðu af bestu lyst. Lokadaginn fórum við í íþróttahöllina þar sem var Húllumhæ dagur með 1. bekk í Brekkubæjarskóla og elstu deildum leikskólanna. Þetta voru virkilega skemmtilegir dagar. Bkv. Teymið í 1. bekk




