Gangbrautagæsla við Grundaskóla

Gangbrautagæsla við Grundaskóla í allan vetur
Við viljum minna á mikilvægi umferðaröryggis í grennd við skólann og biðjum vegfarendur að virða gangbrautir og aðrar umferðarreglur til að tryggja öryggi barna.
Gangbrautaverðir, nemendur á unglingastigi, munu sinna gangbrautagæslu fyrir kl. 8 á helstu gönguleiðum að skólanum í allan vetur. Nemendur Grundaskóla sinna hér mikilvægri þjónustu við yngri nemendur skólans og mæta alla morgna í öllum veðrum í sjálfboðavinnu.
Þetta hafa nemendur á unglingastigi gert í áraraðir og það eru örugglega margir í foreldrahópnum sem minnast þessara starfa frá yngri árum.
Við hvetjum foreldra og forráðamenn til sýna þessum gangbrautavörðum virðingu og stuðning með að aka varlega en jafnframt að sýna þakklæti sitt með því að blikka ljósum, kasta kveðju með handahreyfingu eða léttu flauti.
Jákvæð skilaboð og hvatning skiptir okkur öll máli.










