433 1400
skrifstofa@grundaskoli.is
Stapaskóla er rík áhersla lögð á að nemendum líði vel, að þeir geti valið sér vinnuumhverfi við hæfi og að starfsfólk þjónusti þá á fjölbreyttan og skapandi hátt. Nemendur hafa þess kost að velja sér vinnuaðstæður sem þeim hentar, skólahúsgögn eru fjölbreytt þar sem þægindi og fjölbreytileiki er hafður að leiðarljósi. Allt umhverfi er sveigjanlegt og hreyfanlegt til að þjónusta nemendur á sem bestan hátt.
Í hverri tvennd eru tveir árgangar þar sem fjölbreytt rými eru til afnota og í miðju tvenndar er hringur sem býður uppá margs konar notkun og kennslufyrirkomulag. Mikið er lagt uppúr samþættingu námsgreina og heilstæðum verkefnum þar sem kennarar úr mismunandi teymum vinna saman. Skólastarfið á að vera skemmtilegt og því er gleðin í hávegum höfð bæði hjá nemendum og starfsfólki. Í Stapaskóla er mikið lagt upp úr fjölbreyttri kennslu þar sem tæknin er nýtt til fullnustu. Nemendur hafa því kost á að velja sér vinnuaðstæður við hæfi og vinnutæki sem hentar hverju og einum.
Í Stapaskóla er lögð áhersla á metnaðarfullt skólastarf og að traust og virðing ríki meðal fólks. Góð samvinna starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila skólans er mikilvæg. Starfsmenn skólans ígrunda störf sín og leita sífellt leiða til frekari umbóta og stefna að því sameiginlega markmiði að bæta vellíðan og árangur nemenda á öllum sviðum. Lögð er áhersla að við skólann starfi fjölbreyttar starfsstéttir til að mæta nemendum á sem bestan hátt.
Einkunnarorð skólans eru; Gleði – Vinátta – Samvinna – Virðing. Einkunnaorðin voru valin af starfsfólki, nemendum og foreldrum.
Gleði
Í Stapaskóla er mikil áhersla á gleðina, bæði hjá nemendum og starfsfólki. Það er gaman í skólanum og það er gaman í vinnunni. Í jákvæðu umhverfi er auðveldara að læra, leika og starfa. Með gleði að leiðarljósi eykst kímnigáfa, hlátur og vellíðan.Vinátta
Við leggjum áherslu á að sýna hvort öðru vináttu, nemendum, foreldrum og starfsfólki. Við sýnum vináttu með góðum, jákvæðum samskiptum og sýnum hvort öðru samkennd. Með því að sýna hvort öðru áhuga og erum vinaleg styrkist vináttan.
SamvinnaStapaskóli er teymiskennsluskóli. Þar vinnur allt starfsfólk saman í teymum að sameiginlegum markmiðum. Nemendur vinna einnig saman í hópum, þvert á hópa og jafnvel þvert á skólastig. Lögð er áhersla á hjálpsemi þar sem styrkleikar hvers og eins fá að njóta sín í fjölbreyttum hópi nemenda og starfsfólks.
VirðingVirðing er að viðurkenna og taka tillit til allra í hópnum, nemenda og starfsmanna. Við sýnum virðingu með því að skilja og virða fjölbreytileika nemenda- og starfsmannahópsins. Við komum fram við aðra á sama hátt og við viljum að aðrir komi fram við okkur.
SkólasáttmáliÍ skólanum er lögð áhersla á öflugt skólasamfélag sem byggir á góðu samstarfi skólans, heimilanna og nærsamfélagsins alls. Velferð nemenda og góð námsframvinda byggir ekki síst á því að foreldrar styðji við skólagöngu barna sinna og séu virkir þátttakendur í námi þeirra og starfi. Áhersla er lögð á reglulegar upplýsingar um líðan og námsframvindu frá skóla til heimilis og einnig nána samvinnu um úrlausn vandamála sem upp kunna að koma.