Upplestarkeppni grunnskólanna á Akranesi 2024

12 nemendur í 7. bekk sem valdir hafa verið úr Brekkubæjarskóla og Grundaskóla, lesa sögur og ljóð.

Einnig verða tónlistaratriði flutt.

Dómnefnd mun velja bestu upplesara beggja skóla.

Efnt var til samkeppni um myndskreytingu boðskortsins og eru myndirnar sem prýða boðskortið eftir Dagnýju Láru Ottesen og Emilíu Auði Pétursdóttur.