Tími til að lesa

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hleypir í dag 1. apríl, af stokkunum lestrarverkefni fyrir þjóðina, þar sem börn og fullorðnir eru hvött til að nýta til lesturs þann tíma sem gefst við núverandi aðstæður.

Lestrarverkefnið kallast Tími til að lesa og er rithöfundurinn og leikarinn Gunnar Helgason sérstakur talsmaður verkefnisins. Er heiti verkefnisins sagt vera dregið af aðstæðunum sem nú eru uppi, þar sem margir hafi meiri tíma en áður til að lesa og þörfin fyrir hugarleikfimi hefur sjaldan verið meiri.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að árangurinn sé mældur í tíma, þar sem Íslendingar séu hvattir til að skrá allan sinn lestur á vefsíðunni www.timitiladlesa.is. „Þar geta þátttakendur líka fylgst með sameiginlegum lestri þjóðarinnar frá degi til dags. Á næstu fjórum vikum munu þar safnast upp ýmsar upplýsingar um lestur, hugmyndir að lesefni fyrir ólíka aldurshópa, hvatningarmyndbönd frá rithöfundum og öðrum sem segja okkur hvað og hvar þeim finnst gaman að lesa.

Verkefnið mun standa til 30. apríl og að því loknu munum við freista þess að fá afraksturinn skráðan í Heimsmetabók Guinness. Slíkt hefur ekki verið gert áður og því yrði hér um að ræða fyrsta heimsmet sinnar tegundar. Metið gæti orðið viðmið annarra þjóða, eða okkar sjálfra til að bæta með tíð og tíma.

Við hvetjum alla til að taka þátt og lesa saman