Jarðskjálftar og skilningur

Margir nemendur og kennarar hafa velt sér upp úr og rætt þær jarðhræringar sem hafa verið síðustu daga. Hvað þýðir skjálfti upp á 4,2? Hvað er stór jarðskjálfti og hvað eru smávægilegar jarðhræringar? Er ástæða til að vera hrædd/ur?

Við höfum fundið út að skjálftar á Íslandi eru pínulitlir í stóra samhenginu. Til að ungir og aldnir skilji umræðuna betur höfum við fært samanburðinn yfir í annað samhengi sem allir skilja.

Hér kemur samlíking sem virkar í umræðum með krökkum:

  • Þau eiga að lesa heima 5 x í viku. Segjum að það sé eins og skjálfti sem er ~6 að stærð.
  • Skjálfti sem er 7 að stærð er 32 x kraftmeiri. Það er eins og að þurfa að lesa 160 x í viku.
  • Skjálfti sem er 8 að stærð er 1024 x kraftmeiri. Þá þarftu að lesa 5.120 x í viku.
  • Skjálfti sem er 9 að stærð er 32000 x kraftmeiri. Þá þarftu að lesa 163.840 x í viku.
  • Stærsti skjálfti sem hefur mælst í heiminum er 9.5 að stærð.