Laus störf kennara

Laus störf kennara við Grundaskóla á Akranesi

  • Umsjónarkennari. 100% stöður á yngsta og miðstigi til afleysinga
  • Valgreinakennsla í 1.-10. bekk 50-70%
 
Helstu verkefni og ábyrgð
Grundaskóli er heildstæður grunnskóli með um 680 nemendur og 110 starfsmenn. Í Grundaskóla er metnaðarfullt skólastarf, gott starfsumhverfi og góð samvinna starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila skólans. Í Grundaskóla eru gerðar kröfur til nemenda og starfsfólks um dugnað, reglusemi, góða umgengni, góða ástundun og gagnkvæma virðingu. dugnað, reglusemi, góða umgengni, góða ástundun og gagnkvæma virðingu.
 
Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfi til að nota starfsheitið kennari
Færni í samskiptum, lipurð, sveigjanleiki og jákvæðni
Reynsla og áhugi á að starfa með börnum
Hæfni og áhugi á að starfa og tileinka sér teymisvinnu
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og stundvísi
Hreint sakavottorð
Góð kunnátta í íslensku
 

Umsóknir má finna á alfred.is en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri Akraneskaupstaðar að Dalbraut 4. Umsóknarfrestur er til og með 20. maí n.k. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags grunnskólakennara (FG) eða viðkomandi stéttarfélags fagaðila og Samninganefndar sveitarfélaga (SNS).

Nánari upplýsingar veita Sigurður Arnar Sigurðsson skólastjóri í tölvupósti á netfangið sigurdur.arnar.sigurdsson@grundaskoli.is og Flosi Einarsson, aðstoðarskólastjóri flosi.einarsson@grundaskoli.is. Upplýsingaa má einnig afla með því að hringja á skrifstofu skólans í síma 433-1400.