Þriðjudaginn 21. febrúar fór fram verðlaunaafhending eftir velheppnaðan nýsköpunar- og hönnunardag.
Verðlaun voru veitt í fjórum flokkum og dómnefndina skipuðu Bryndís Siemsen, Margrét Þorvaldsdóttir og Elís Þ. Sigurðsson.
Nemendur gátu valið um 4 verkefni, boltarennibraut, dýr, vélmenni og byggingu. Öll þurftu verkefnin að uppfylla ákveðin skilyrði sem tengdust stærðfræði, sem dæmi þá þurfti byggingin að vera af ákveðinni hæð, boltarennibrautin í ákveðinni hæð frá gólfi, dýrið og vélmennið þurftu að halda jafnvægi og geta borið smjörlíkisstykki og hafa einhver einkenni líffveru.
Meðfylgjandi eru myndir af vinningshöfunum og verkefnunum.
Í flokknum boltarennibraut vann hópur stúlkna úr 9. bekk, frá vinstri Elísa Björk Jóhannsdóttir, Emilía Björg Þórðardóttir, Veronica Líf Þórðardóttir, Bryndís Rún Þórólfsdóttir, Margrét Brandsdóttir og Stefanía Berg Steinarsdóttir.
Í flokknum byggingar vann hópur drengja úr 9. bekk, frá vinstri Hafþór Pétursson, Arnór Jónsson, Benedikt Rúnar Hermannsson, Hrafn Darri Guðbjörnsson, Kristófer Daði Garðarsson og Adolf Freyr Halldórsson.
Í flokknum vélmenni unnu tveir drengir úr 8. bekk, frá vinstri Sindri Þór Harðarson og Jón Helgi Sævarsson.
Í flokknum dýr unnu stúlkur úr 10. bekk, frá vinstri Björnfríður S. Björnsdóttir, Jóhanna Ösp Stefánsdóttir, Hrafnhildur Steinunn Sigurþórsdóttir og Fanney Rún Ágústsdóttir.
Hér má sjá nokkrar myndir að auki frá sigurvegurunum.