ForsíðaNemendurÞjónustaUm skólann
Samvinna - Traust - Virðing
Prenta vefsíðu
27. janúar 2012 08:57

Söngleikur í Grundaskóla

Í ár verður frumsýndur söngleikurinn Nornaveiðar. Söngleikurinn er sá fimmti í fullri lengd úr smiðju þeirra Einars Viðarssonar, Flosa Einarssonar og Gunnars Sturlu Hervarssonar.
Áheyrnaprufur voru haldnar og nú í síðustu viku hófu 28 nemendur úr Grundaskóla æfingar á söngleiknum. Alls koma um 60 nemendur að verkinu.
Þessa dagana standa yfir upptökur á geisladiski með tónlist úr verkinu og kemur diskurinn út rétt fyrir frumsýningu sem verður 25. febrúar.

Við munum fylgjast með ferlinu hér á heimasíðu skólans. 

 

 

 
Grundaskóli | Espigrund 1 | 300 Akranes | Sími 433 1400 | grundaskoli@akranes.is