Á föstudaginn fengum við góða heimsókn í 1. og 2. bekk. Snorri Guðmundsson dýraeftirlitsmaður bæjarins kom í heimsókn. Hann hafði með sér hundana sína tvo, þá Mugg og Barón og talaði við börnin um umgengni.
Snorri fór yfir nokkrar reglur sem gott er að hafa í huga þegar við hittum hunda.
Reglurnar eru eftirfarandi:
1. Þegar við hittum lausan hund eigum við að standa kyrr og horfa á tærnar á okkur - ALLS EKKI hlaupa
2. Við eigum aldrei að horfa beint í augun á hundum
3. Við eigum alltaf að spyrja um leyfi ef okkur langar til að klappa hundum
4. Við megum aldrei taka leikföng eða bein af hundum
5. Við megum ekki vera með læti í kringum hunda
6. Við megum ALLS EKKi trufla hund sem er að borða
Þegar Snorri var búinn að fara vel yfir þessar reglur fengu þau börn sem vildu að koma til hans og klappa hundunum. Í þessari viku ætlar hann að koma aftur og heimsækja 3. og 4. bekk.
Við þökkum Snorra kærlega fyrir komuna, þetta var mjög gagnlegt.