Nemendaráð skólaárið 2011-2012
Formaður:
Guðrún Karitas Sigurðardóttir 10. EV
Varaformaður:
Sara Ýr Jónsdóttir 10. EV
Meðstjórnendur:
10.bekkur
Guðný Björk Proppé 10. GSH
Daníel Þór Heimisson 10. GSH
Ester Lind Theodórsdóttir 10. MÁ
Ástrós Ólafsdóttir 10. MÁ
Elínborg Llorens Þórðardóttir 10. EV
Aldís Ylfa Heimisdóttir 10. EV
9.bekkur
Almar Knörr Hjaltason 9. LK
Veronica Líf Þórðardóttir 9. LK
Hafdís Dóra Gunnarsdóttir 9. ÍA
Silla Rún Hjartardóttir 9. ÍA
8.bekkur
Linda María Rögnvaldsdóttir 8. VLJ
Thelma Björk Jónsdóttir 8. VLJ
Alexander Örn Kárason 8. MKÓ
Hreiðar Guðmundsson 8. MKÓ
Birna Sjöfn Pétursdóttir 8. FE
Ingibjörg Elín Jónsdóttir 8. FE
Umsjón með félagslífi nemenda:
Margrét Ákadóttir
Lög nemendafélags Grundaskóla.
1. Almenn atriði
Nafn félagsins er Nemendafélag Grundaskóla (NFG) og starfar samkvæmt lögum um grunnskóla nr. 66/1995.
Markmið félagsins:
a) sjá um og skipuleggja félagslíf nemenda í Grundaskóla.
b) gæta hagsmuna nemenda skólans með því m.a. að fjalla um áætlanir um skólastarf sbr. grunnskólalög.
Allir nemendur Grundaskóla teljast félagar í NFG. Heimilt er að selja nemendaskírteini sem veita sérstök réttindi og afslætti varðandi starfsemi félagsins.
NFG skiptist í þrjár deildir.
1. - 7. bekk
8. – 10. bekk
Hollvinir (útskrifaðir nemendur)
Aðsetur félagsins er í Grundaskóla á Akranesi.
Lög þessi skulu endurskoðuð árlega af umsjónarmanni félagslífs og stjórn NFG og staðfest af skólastjóra.
2. Aðalstjórn NFG
Í aðalstjórn eiga sæti fulltrúar bekkja í 8. – 10. bekk unglingadeildar Grundaskóla.
Aðalstjórn skiptir með sér verkum, örðum en þeim sem kosin eru beinni kosningu, á fyrsta fundi nýrrar stjórnar. (varaform., ritari o.fl.)
Aðalstjórn hefur ákvörðunar- og framkvæmdavald í öllum almennum málum NFG. Aðalstjórn ber ábyrgð á öllum fjármálum NFG og skulu reikningar félagsins lagðir fram til endurskoðunar er skólaári lýkur eða eigi síðar en 1. júlí.
Skólastjóri eða fulltrúi hans endurskoða reikninga NFG.
Aðalstjórn NFG er bundin af lögum og reglum sem gilda um skólastarf og skólanámskrá skólans. Einnig formlegum samþykktum nemendafunda sem boðaðir eru skv. lögum þessum.
Grundaskóli ræður umsjónamann félagslífs, aðalstjórn NFG til aðstoðar og ráðgjafar.
Formaður NFG eða staðgengill hans á rétt á setu á almennum kennarafundum. Hann skal þó víkja af fundi sé rætt um einstaka nemendur eða önnun trúnaðarmál.
3. Starfsemi
Aðalstjórn NFG fundar a.m.k. vikulega.
Formaður stjórnar fundi en getur valið staðgengil sinn ef svo ber undir.
Aðalstjórn skal boða til almennra nemendafunda á skólaárinu til að auka almenna þátttöku nemenda í félagsstarfinu. Nemendafundir þessir geta verið í formi bekkjarfunda, almennra málfunda, kvöldvaka eða annarra skemmtana.
Á nemendafundum gilda almenn fundarsköp eftir því sem við verður komið. Komi til atkvæðagreiðslu ræður einfaldur meirihluti greiddra atkvæða. Á nemendafundum hafa nemendur Grundaskóla einir atkvæðisrétt og hefur hver nemandi eitt atkvæði. Nemendafundur skal boðaður með minnsta kosti sólarhrings fyrirvara og umræðuefni kynnt á auglýsingatöflu skólans.
Aðalstjórn skal reglulega senda út fréttir af starfsemi félagsins til félaga t.d. með fréttabréfi, tölvupósti, fréttum á heimasíðu eða í gegnum kjörna fulltrúa NFG í hverjum bekk.
Aðalstjórn getur falið öðrum nemendum utan stjórnar ákv. verkefni s.s. að vera diskarar, formenn klúbba eða umsjónarmenn einstakra verkefna á vegum félagsins.
Aðalstjórn getur einnig falið bekkjarráðum ákv. stór verkefni í samráði við umsjónarmann félagslífs t.d. umsjón brauðsölu, rekstur sjoppu, gangbrautagæslu, útgáfu skólablaðs o.fl.
Aðalstjórn NFG hefur í samstarfi við umsjónarmann félagslífs umsjón með öllu félagsstarfi í unglingadeild Grundaskóla.
Aðalstjórn NFG hefur samstarf um skipulag félagsstarfs á Akranesi við fulltrúa Arnardals og Nemendafélags Brekkubæjarskóla (NFB).
4. Kosningar
Í lok hvers skólaárs skal kosið í nemendaráð Grundaskóla.
Kjörgengir eru nemendur 7. – 9. bekk yfirstandandi skólaárs.
Í hverjum bekk skulu tveir nemendur kosnir í stjórn. Sá sem flest atkvæði fær er aðalmaður bekkjarins en hinn varamaður. Almenn skulu sjá um að upplýsa varamenn sína og bekkjarsystkini um starfsemi NFG og bera boð eða óskir milli sé þess þörf.
Kjósa skal formann og gjaldkera NFG beinni kosningu. Frambjóðendur koma úr röðum 9. bekkinga (verðandi 10. bekkinga).
Fulltrúar 10. bekkinga í sitjandi aðalstjórn skipa kjörnefnd og skal hún boða til kosninga a.m.k. viku fyrir skólalok.
Kjörnefnd tekur á móti framboðum og gætir þess að farið sé að lögum félagsins í tengslum við framboðið.
Kjörnefnd skal sjá um framkvæmd kosningafundar er haldin skal fyrir kosningar. Á honum skulu allir frambjóðendur kynntir. Auglýsingar og áróður í tengslum við kosningar skulu fara eftir reglum sem skólastjóri eða fulltrúi hans setja.
Kjörnefnd telur atkvæði og skulu úrslit birt eigi síðar en næsta virka skóladag eftir kjördag.
Kjörnefnd hefur ákvörðunar- og framkvæmdavald, í samstarfi við umsjónarmann félagslífs í öllum málum í tengslum við kosningar.
5. Gildi laganna
Lög þessi öðlast nú þegar gildi og jafnframt falla öll önnur lög um félagsstarf í Grundaskóla úr gildi.
Endurskoðað og samþykkt í ágúst 2006.
Almennt um nemendaráð
Hver bekkjardeild kýs í upphafi 2 fulltrúa til starfa í nemendaráði og bekkjarráði. Sá sem fær flest atkvæði, verður fulltrúi bekkjardeildarinnar í nemendaráði skólans.
Skipaður skal umsjónarkennari nemendaráðs, þ.e. kennari sem aðstoðar nemendaráð við störf sín, skipuleggur og leiðbeinir nemendum í þeirra starfi.
Jafnframt skal skipaður umsjónarkennari með árgangsráði 10. bekkjar, einkum fjáröflun og meðferð peninga. Sömuleiðis skal kjósa formann, gjaldkera og ritara árgangsráðs 10. bekkjar. Í árgangsráði sitja 5-6 fulltrúar ásamt umsjónarmanni.
Verkefni nemendaráðs
Nemendaráð skal hafa umsjón með félagsstarfi 8.- 10. bekkjar, s.s. klúbbastarfsemi, blaðaútgáfu, íþróttamótum (undir stjórn íþróttakennara), dansleikjum o.s.frv. Haft skal samstarf við fulltrúa Brekkubæjarskóla og Arnardals varðandi félagsstarfið. (Sjá nánar lög NFG)
Kvöldskemmtunum í miðri viku skal ljúka eigi síðar en kl. 22.00, en dansleikjum á föstudögum ljúki í síðasta lagi kl. 23.30. Heimilt er að hafa árshátíðarball, jólaball og lokaball lengur, en þá er heimilt að vera til kl. 00.00.
Nemendaráð sér um sælgætissölu á skemmtikvöldum og dansleikjum.
10. bekkjarráð rekur með heimild nemendaráðs verslun, sem selur mjólk og brauð í frímínútum.
Nemendaráð sér um rekstur “diskóteks” í löngu frímínútum, á opnum húsum og dansleikjum. Þá sér nemendaráð um tónlistina á bekkjarkvöldum yngri nemenda og fær einn hljómdisk frá skólanum fyrir þá vinnu.
Nemendaráð getur sett í gang ákveðin félög innan skólans undir stjórn nemendaráðs, s.s. útgáfufélag, íþróttafélag, leikfélag o.s.frv. Þessi félög og klúbbar hafi eigin reglur, formenn, ritara og gjaldkera en heyri undir nemendaráð.
Samráðsfundur skólastjóra, nemendaráðs,
kennararáðs og foreldraráðs
Tvisvar á áriskal skólastjóri halda fund með kennararáði, nemendaráði og foreldraráði, þar sem veittar eru upplýsingar um skólastarfið og fjallað um málefni þessara ráða (grunnskólalög nr. 66/1995, 14. gr.).
Helstu viðburðir
Kvöldskemmtanir á vegum skólans skulu að jafnaði ekki vera lengur en til kl. 20.00 í yngri bekkjardeildum (sjá hvíldartímareglur) og í unglingadeildum skal kvölddagskrá að jafnaði lokið kl. 22.00 nema dansleikir sem mega vera til kl. 23.00. Undantekning frá þessu eru stærri dansleikir, þ.e. jólaball, hæfileikakeppnin, árshátíð og lokaball en þeim skal ljúka á miðnætti.
“Unglingadagur” -“Furðudagur” - “Húllumhædagur”
Nemendur í 8.- 10. bekk keppa í óhefðbundnum greinum s.s. húllahoppi, pönnukökubakstri, listsköpun, sjómanni o.s.frv. Í tengslum við þennan dag eru ofthaldnir fyrirlestrar s.s. um reykingar, vímuefni o.þ.h. Nemendur mynda umræðuhópa þar sem brýn umræðuefni eru rædd og reynt að komast að einhverri niðurstöðu. Mælst er til virkrar þátttöku kennara og nemenda. (Hugsanlega í samstarfi við Brekkubæjarskóla.)
Dansleikir
Haldnir eru dansleikir á u.þ.b. þriggja vikna fresti á föstudögum yfir veturinn, til skiptis í Arnardal, Brekkubæjarskóla og Grundaskóla. Nemendaráð og umsjónarmenn félagslífs í grunnskólunum, ásamt starfsmönnum Arnardals, vinna á hverju hausti áætlun um dansleikjahald fyrir veturinn í heild.
Hæfileikakeppnin
Ár hvert standa grunnskólarnir á Akranesi fyrir s.k. hæfileikakeppni. Þar er t.d. valin hátónsbarki grunnskólanna, tónlistratriði ársins o.s.frv. Nemendaráð Grundaskóla og Brekkubæjarskóla standa í sameiningu að undirbúningi og framkvæmd þessa viðburðar.
“Jólaball”
Skemmtun og dansleikur grunnskólanna haldinn skömmu fyrir jól. Á þessari skemmtun koma skemmtiatriði frá báðum grunnskólunum og sameiginlegt atriði frá kennurum grunnskólanna.
“Árshátíðarball”
Skemmtun og dansleikur haldinn í tengslum við árshátíð skólanna.
“Lokaball”
Dansleikur, þar sem 10.b. nemendur eru kvaddir.
Samsöngur
Samsöngur er haldinn 2-4 sinnum á önn á sal skólans með þátttöku allra nemenda á unglingastigi. Nemendaráðs tekur þátt í skipulagningu og framkvæmd þessara samkoma. Á þessum samverustundum eru auk söng- og tónlistaratriða veittar viðurkenningar og rædd sameiginleg hagsmunamál nemenda.7. bekk er að jafnaði boðið að vera með unglingadeildinni á samsöng.
Frístundaval
Nemendafélagið stendur fyrir og skipuleggur í samstarfi við skólastjórnendur s.k. frístundaval. Frístundavalinu er ætlað að efla samvinnu nemenda og foreldra og á milli nemenda í mismunandi árgöngum. (sjá nánar í umfjöllun um valsvæði á unglingastigi.)
Kostnaður vegna félagsstarfa
Félagsstörf unnin utan skólatíma eru greidd sérstaklega
Varðandi félagsstörf er rétt að kynna sér fyrirfram hvort til er fjármagn til greiðslu fyrir þá vinnu, hvort skólinn getur greitt hana. Við það er miðað að öll störf kennara með nemendum utan kennslu séu greidd að fullu og í ferðum verði greiddur allur kostnaður kennara s.s. aðgöngumiðar, lyftukort í skíðaferðum, fæði o.s.frv. Kennarar gæti þess að krefjast ókeypis miða fyrir sig t.d. í leikhúsi.
Fæðiskostnaður
Kennararáð Grundaskóla ákvað á sínum tíma eftirfarandi reglur varðandi greiðslur fæðispeninga vegna ferða:
Kennarar, sem ætla með bekk eða árgang í ferðalag, tilkynni það til aðstoðarskólastjóra eða skólastjóra og fái leyfi og gangi frá "samningum" um greiðslur og "mönnun" í ferðinni. Athugið að tilkynna um ferðina fyrirfram.
Megin reglan er sú að skólinn greiðir útlagðan kostnað vegna kennara, þ.e. borgi skv. reikningi fyrir fæði kennara í slíkum ferðum. Ekki eru greiddir fæðispeningar. Skv. kjarasamningum á atvinnurekandi rétt á að velja á milli þess að greiða skv. reikningi eða að greiða fæðispeninga vegna ferða. Kennari verður þá að fá beiðni hjá skólastjóra áður en lagt er af og skilar þá reikningum við heimkomuna. Undantekning á þessu er, ef allir útbúa sitt eigið nesti, þá greiðast fæðispeningar til kennara fyrir þeirra nesti.
Lengri ferðir, þ.e. næturgisting.
Þá greiðast fæðispeningar óháð því hvernig matarmálum er háttað.