Fréttir
Sjóferð um Sundin hjá 6.bekk
	<description>Á miðvikudag fóru nemendur 6.bekkja í skemmtilega og lærdómsríka  sjóferð um Sundin við Reykjavík.  Sjóferðin var í boði Faxaflóahafna en Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn annaðist framkvæmd ferðarinnar  líkt og undanfarin ár. 
Markmiðið með þessari ferð var að gefa nemendum kost á að kynnast umhverfi Reykjavíkurhafnar og lífríki sjávar úti á Sundunum.  Markmið í Íslandssögu, náttúrufræðum og lífsleikni falla vel að þessu verkefni.  
Ferðin tókst í alla staði vel enda getur veður vart verið betra en það var þennan dag, logn og sól. 
Á myndasíðunni okkar má sjá nokkrar myndir úr þessari ferð.
Nemendur 6.bekkja vilja þakka Faxaflóahöfnum sf og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum fyrir vel skipulagða ferð og skemmtilegan dag.</description>
Söngleikjaverkefni Grundaskóla á Akranesi hlaut Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2012.
	<description>Þau Einar Viðarsson, Eygló Gunnarsdóttir, Flosi Einarsson og Gunnar Sturla Hervarsson hlutu foreldraverðlaun Heimilis og Skóla sem veitt voru síðastliðin miðvikudg. Kennararnir eru vel af verkefninu komin en þeir hafa verið í umsjón með söngleikjaverkefnum Grundaskóla í gegnum tíðina.
Söngleikirnir í Grundaskóla hafa verið ófáir en allir einstaklega vel heppnaðir í alla staði. Það er svo margt sem tvinnast inn í söngleikina því þetta er í raun lærdómur út í gegn. Allir nemendur sem tekið hafa þátt í söngleikjum í Grundaskóla munu alltaf muna eftir þeim tíma og minnast þess með jákvæðu hugarfari.
Við óskum Grundaskóla og þeim Einari, Eygló, Flosa og Gunnari Sturlu til hamingju með verðlaunin.
Hér fyrir neðan má sjá mynd frá afhendingu verðlaunanna og svo er krækja á fréttina um verðlaunaafhendinguna á heimasíðu Heimilis og skóla. 
Mynd tekin af heimasíðu Heimilis og skóla
 - Linkur á fréttina um þetta á heimasíðu Heimilis og skóla</description>
Hjólað Hvalfjörðinn í dag
	<description>Í dag ætla nemendur, kennarar og aðrir tengdir Grundaskóla að hjóla Hvalfjörðinn.
Þetta hefur verið gert síðustu ár og hefur alltaf tekist vel til.
Við vonum að öllum gangi vel og óskum þeim góðrar ferðar.</description>
Frí í dag
	<description>Í dag er frídagur í Grundaskóla sökum þess að í dag er uppstigningardagur.
Skóli hefsta aftur á morgun, föstudag, samkvæmt stundaskrá.</description>
Töframaður í heimsókn
	<description>Í morgun kom góður gestur til okkar í Grundaskóla. Það var fyrrum nemandi skólans, Kristinn Gauti Gunnarsson. 
Kristinn Gauti hefur getið sér gott orð fyrir töfrabrögð og hefur heillað ófáa upp úr skónum.
Í morgun kom Kristinn Gauti og sýndi nemendum á yngsta stigi töfrabrögð og má sjá myndir frá því hér að neðan.
Einnig er hægt að sjá myndband frá nokkrum töfrabrögðum með því að smella á myndina hér fyrir neðst.</description>
Myndir frá föstudagskvöldinu
	<description>Eins og áður hefur komið fram þá fékk Grundaskóli viðurkenningu fyrir að vera titluð stofnun ársins.
Einnig röðuðu Skagamenn sér á pall þar en Garðasel, Brekkubæjarskóli og Vallarsel fengu einnig viðurkenningu.
Við vorum með ljósmyndara á staðnum og má sjá fjórar myndir frá honum hér fyrir neðan.</description>
6. bekkur á ferð og flugi
	<description>Núna voru nemendur í 6. bekk að leggja af stað til Reykjavíkur þar sem þau ætla að fara á sjóinn í boði Faxaflóahafna.
Þau eru aldeilis heppin með veður og verður eflaust skemmtilegt fyrir þau að fara sjóferð út á Faxaflóa.
Við munum setja inn myndir frá ferðinni seinna í dag.</description>
Samvinnupróf 9.bekkja
	<description>Í vetur hefur árgangurinn (ásamt allri unglingadeildinni) verið í þrónarstarfi um fjölbreytta kennsluhætti og er námsmat  hluti af kennsluháttum. 
Í gær var próf með nokkuð óhefðbundum hætti hjá 9.bekk. Krakkarnir tóku samvinnupróf í tveggja til þriggja manna hópum. Verkefnin voru fjölbreytt: bókleg, verkleg og tölvuverkefni í íslensku, stærðfræði, dönsku, ensku, samfélags- og náttúrufræði.  Allir byrjuðu á fyrsta borði líkt og í tölvuleik. Þegar krakkarnir höfðu lokið verkefnunum þar máttu þeir færa sig á næsta borð. Borðin eru sex og hafa krakkarnir tvo daga til að ljúka verkefnunum.
Nú er fyrra degi lokið og var mjög góð stemning og vinnugleði í hópnum.  
Við tókum að sjálfsögðu myndir í prófinu og settum á myndasíðuna okkar.</description>
Árshátíð Grundaskóla - Myndband
	<description>Nú er loksins búið að ganga frá myndefni á DVD sem sýnir öll atriði sem flutt voru á árshátíð Grundaskóla. Diskinn er hægt að nálgast á bókasafni Grundaskóla. Ef smellt er á tengilinn hér fyrir neðan er hægt að skoða nokkur myndbrot frá árshátíðinni.
http://www.youtube.com/watch?v=YqUhapakd-k&feature=youtu.be</description>
Heilsuþema í unglingadeild
	<description>Á þessu skólaári sem senn lýkur hefur staðið yfir þróunarstarf í unglingadeild skólans. Markmiðið hefur verið að auka fjölbreytni í námsaðferðum og stórauka þemabundna vinnu. Nokkur stór þemaverkefni hafa verið unnin á árinu og nýlega lauk því síðasta sem fjallaði um heilsu. Yfirskriftin var Heilsa: andleg, félagsleg og líkamleg. Boðið var upp á fyrirlestra frá Sigurði Ragnari Eyjólfssyni landsliðsþjálfara í knattspyrnu en hann fjallaði um nauðsyn þess að setja sér markmið í lífinu og skipuleggja leiðir til að ná þeim. Guðrún Adolfsdóttir matvælafræðingur, fjallaði síðan um mataræði og mikilvægi þess að borða rétt.  Í kjölfarið fóru nemendur síðan á stutt námskeið en þau voru eftirtalin: Námsstílar og fjölgreindir - Tónlist er ómissandi - Lykill að vellíðan / Geðræktarkassinn - Hláturjóga og viðhorf - Vímuefni, ákvörðun mín - Hreyfing og hópefli.  Markmiðið var að nemendur skoðuðu hvað þeir væru persónulega að gera fyrir sína heilsu, andlega, félagslega og líkamlega.  
Ef smellt er á tengilinn hér fyrir neðan má skoða nokkrar svipmyndir frá námskeiðum sem tengdust viðfangsefninu.
http://www.youtube.com/user/Grundaskoli?feature=mhee</description>
Skagamenn eiga fyrirmyndar skóla
	<description>Niðurstöður úr könnun á stofnun og fyrirtæki ársins voru kynntar á Hilton hóteli síðdegis í dag. Það er SFR, stéttarfélag í almannaþjónustu sem stendur fyrir þessari könnun ásamt VR, ríkinu og Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar. Um er að ræða eina stærstu vinnumarkaðskönnun hér á landi. Skagamenn komu sáu og sigruðu því fjórar stofnanir bækjarfélagsins fóru á verðlaunapall sem fyrirmyndar stofnanir. Garðasel var kjörin stofnun ársins 2012 í flokki minni stofnana og Grundaskóli í flokki stærri stofnana. Brekkubæjarskóli og Vallarsel voru einnig heiðraðar fyrir frábært starf en báðar stofnanirnar lentu í þriðja sæti í sínum flokki.
Full ástæða er til að óska öllum Skagamönnum til hamingju með frábæran árangur og mikla viðurkenningu á öflugu starfi.</description>
Afmælishátið í 2. bekk
	<description>Börnin í 2. bekk héldu afmælishátíð og dótadag þann 27. apríl sl. Þau borðuðu góðar veitingar sem komu að heiman og léku sér með dótið sitt.Mjög góður og skemmtilegur dagur.
Kveðja, 2. bekkur</description>
Hjólað í vinnuna
	<description>Starfsmenn Grundaskóla taka þátt í landsátakinu "Hjólað í vinnuna". Það eru um það bil 70 starfsmenn af 80 manna starfsliði sem annað hvort koma hjólandi eða gangandi til vinnu þessa dagana.
Umferðardeildin</description>
Reykjarvíkurferð 4. bekkja
	<description>Þann 8. maí fóru nemendur 4. bekkja í ferðalag til Reykjavíkur. En krakkarnir hafa verið að læra um lýðveldi Íslands undanfarna mánuði. Þetta er hefðbundin ferð í tengslum við þetta námsefni. 
Að venju var vel tekið á móti okkur í Alþingishúsinu, krakkarnir fóru um allt húsið og fengu að sjá þingpallana, fallega listmuni, myndir af ráðherrum, þingmönnum og fleiri merkismönnum. 
Krökkunum kom á óvart hvað þingsalurinn var lítill í raun og veru en í sjónvarpinu virðist hann mun stærri. Við fórum líka í skoðunarferð um kvosina í Reykjavík, skoðuðum byggingar að utanverðu sem tengjast þessu námsefni s.s. stjórnarráðið, MR, Iðnó, Ráðhúsið og fleira.
Við fengum mjög gott veður í þessu ferðalagi og því enduðum á að borða nestið okkar í Hljómskálagarðinum.
Eftir það var haldið að Bessastöðum  þar sem umsjónarmaður staðarins tók á móti krökkunum og sagði þeim frá krikjunni og umhverfi staðarins. Á heimleiðinni var komið við í Lágafellslaug þar sem krakkarnir skemmtu sér vel og gátu skolað af sér ferðarykið. 
Þetta var góð og fróðleg ferð með skemmtilegum krökkum.
Kv Sigga, Áslaug , Hildur Karen og Ingibjörg Eggerts.
Myndir úr ferðinni má sjá á myndasíðu skólans.</description>
Sund í 1. bekk
	<description>Nú er sundkennslan hafin af fullum krafti í 1. bekk.  Krakkarnir fara fjórum sinnum í viku í sund og finnst þetta óskaplega gaman.  Myndatöku maður okkar mætti á svæðið og tók meðfylgjandi myndir af sundgörpunum.</description>
7. bekkur á Akrafjall ásamt dönskum gestum
	<description>Í gær komu til landsins danskir nemendur frá Lilleskolen í Danmörku. Þeir munu skoða Akranes og eru gestir nemenda í 7. bekk Grundaskóla.
Í morgun var farið í Akrafjallið þar sem gengið var uppá topp, kvittað í gestabókina og farið aftur niður.
Að lokum fóru allir í mat til Systu og svo var slegið á létta strengi.
Við tókum að sjálfsögðu myndir og settum á myndasíðu skólans.</description>
Bjarteyjarsandur 2012
	<description>Í dag fór 2. bekkur á Bjarteyjarsand. Við fórum með rútu og á leiðinni sagði Ella kennari okkur sannsögulega draugasögu. Arnheiður, Kolla og Gummi tóku á móti okkur. 
Fyrst fórum við í fjárhúsin. Þar var nóg um að vera. Fimm lömb fæddust á meðan við vorum á Bjarteyjarsandi. Gummi bóndi og Gunna skólaliði þurftu að hjálpa tveimur lömbum í heiminn. 
Við vorum líka að hoppa í heyinu, héldum á kanínum, klöppuðum hestum og sáum tvær mýs. Næst fengum við okkur gómsætt nesti og röltum svo í fjöruna. Þar sáum við krabba og krossfiska sem sumir héldu á.
Þegar klukkan var orðin hálf tólf héldum við heim á leið. Ferðin var mjög skemmtileg og við vorum stillt og prúð.
Nemendur í 2. bekk</description>
Leirlistarval
	<description>Nytjalistin hefur verið ofan á í leirlistarvali þessa önn. Nemendur hafa unnið skálar, diska, könnur, bolla o.fl. Bollinn hefur þó átt vinninginn og ótrúlega margir fallegir bollar orðið til, í þessari skapandi og skemmtilegu vinnu. Ólíkir litir, form og strúktúr hafa birst og áhugi nemenda er gífurlegur. Myndirnar hér að neðan sýna aðeins brot af vinnunni í vetur. 
Njótið.</description>
Hjólreiðar í 2. bekk
	<description>Krakkarnir í 2. EBD mættu öll á hjólum í dag, föstudag. Eftir frímínútur hjóluðum við af stað. Fyrsti viðkomustaður var Aggapallur. Þar var borðað nesti í blíðunni. 
Síðan hjóluðum við heim til allra barnanna í bekknum og tókum mynd af þeim fyrir framan húsin þeirra. Einn nemandi í bekknum er með hænur og gullfiska í garðinum. Þar var stoppað og heilsað uppá dýrin. Ferðin gekk ljómandi vel og voru krakkarnir ótrúlega duglegir að hjóla.
Kveðja, 2. bekkur</description>
Akrafjallsferð miðstigsins
	<description>Fimmtudaginn 3.maí  fóru allir nemendur og starfsmenn  miðstigs  hjólandi upp að Akrafjalli. Það voru 160-170 börn sem lögðu af stað og um 145  börn sem skráðu nafn sitt í gestabókina upp á Háahnjúk sem er frábært. 
Mörg afrek voru unnin í ferðinni  og skein gleði í andlitum allra þeirra og voru þau stolt af sjálfum sér að komast alla leið upp. Aðalfjörið var að sjálfsögðu að borða nestið á toppnum og skrifa í gestabókina. Nokkuð mörg börn voru að fara í fyrsta skiptið upp á Háahnjúk og sum þeirra voru að fara í fyrsta skiptið á fjall. 
Við tókum að sjálfsögðu myndir frá ferðinni og hægt er að sjá myndirnar á myndasíðu skólans.</description>